STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Skagamönnum færður sigurinn í lokin

skrifað 20-03-2010 (0 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

ÍA 2-1 Fylkir
1-0 Fannar Freyr Gíslason ('4)
1-1 Tómas Joð Þorsteinsson ('19)
2-1 Ragnar Leósson ('90, víti)

Fylkismenn þurftu að sætta sig við tap gegn ÍA í Akraneshöllinni á fimmtudagskvöldið. Leikurinn var í járnum lengst af en afleit ákvörðun Kristins Jakobssonar FIFA dómara um að dæma vítaspyrnu nokkrum andartökum fyrir leikslok færði Skagamönnum sigurinn í uppbótartíma.

Skagamenn byrjuðu leikinn af fídómskrafti og settu strax mikla pressu fram á við. Það skilaði marki strax á fjórðu mínútu þegar fín sending kom fyrir frá vinstri beint á kollinn Ragnari Leósson sem skallaði í stöngina, frákastið féll síðan til Fannars Freys Gíslasonar sem kom boltanum í netið.
Þeir héldu áfram að sækja og voru mun betri í upphafi. Fjalar hafði nóg að gera og gerði vel í að slá boltann frá eftir aukaspyrnu sem stefndi í netið.

Fylkismenn komust smátt og smátt inn í leikinn án þess þó að ná nógu góðum takti í spilið. Á 19 mínútu tókst þeim þó að jafna þegar Tómas Þorsteinsson hamraði boltann í bláhornið rétt utan vítateigs.

Nokkuð jafnræði var með liðunum það sem eftir var af fyrri hálfleik og bæði lið sýndu lipra takta og ekkert var gefið eftir í baráttunni. Fylkismenn skoruðu mark þegar Tómas komst upp vinstra megin og sendi fyrir á Albert sem skoraði. Markið var hinsvegar dæmt af vegna rangstöðu og er ég allsendis óviss um þá ákvörðun, þar sem ég gat ekki séð betur en að Tómas væri ekki að gefa fram fyrir sig heldur að Albert hefði verið samsíða Tómasi og því gat hann ómögulega verið rangstæður.

Síðasta færið áttu svo Skagamenn þegar Fannar slapp í gegn en Fjalar bjargaði með góðu úthlaupi. Staðan 1-1 eftir nokkuð fjörugan fyrri hálfleik.

Fylkismenn voru mikið sterkari í síðari hálfleik og sýndu oft lipra takta en það vantaði að klára dæmið og ná inn öðru marki. Skagamenn komust lítt áleiðis og reyndu helst langar sendingar fram völlinn. Fylkismenn héldu boltanum mjög vel en vantaði herslumuninn lengi vel til að skapa sér almennileg færi, nokkur hálffæri litu þó dagsins ljós.

Mikið fjör færðist í leikinn síðustu 10-15 mínúturnar og Fylkismenn fengu tvö ákjósanleg færi. Ingimundur lét verja frá sér úr frábæru skotfæri og Pape komst í kjörstöðu til að skjóta en skaut framhjá. Skagamenn hresstust líka og klaufangur hjá varnarmönnum Fylkis varð til þess að Fjalar varð að koma út og bjarga þegar að einn skagamaður virtist vera að ná til boltans í upplögðu færi. Skagamaðurinn féll við og æptu stuðningsmenn þeirra á vítaspyrnu en Kristinn mat það þannig að Fjalar hafi náð til boltans fyrst og verð ég að viðurkenna að ég sá atvikið ekki nægilega vel til að meta niðurstöðu þessa dóms.

Það virtist því allt stefna í jafntefli þegar Davíð Þór Ásbjörnsson virtist stöðva Skagamenn löglega innan vítateigs. Hann fór í boltann og enginn Skagamaður bað um víti í þetta skiptið en þá ákvað Kristinn Jakobsson öllum til mikilllar furðu að dæma vítaspyrnu. Fylkismenn mótmæltu auðvitað kröfuglega en uppskáru lítið eins og flestir sem mótmæla dómum í knattspyrnu. Ragnar Leósson fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi og tryggði Skagamönnum þar með dyrmætan sigur sem þýddi að þeir hafa nú 13 stig eftir 5 spilaða leiki en Fylkir er með 4 stig úr 3 leikjum.

Sá árangur er hreint ekki frábær, en við skulum þó fara varlega í að áætla hversu marktæk þessi æfingamót eins og Lengjubikarinn eru. En aðeins að því sem Fylkisliðinu virðist skorta um þessar mundir.
Mörkin hafa því miður ekki verið í samræmi við þau færi sem liðið hefur skapað og ef menn nýta ekki færin og skora ekki mörk er afar erfitt að vinna leiki. Fjögur mörk skoruð gegn Stjörnunni (þar af 3 gegn Stjörnunni), Njarðvík og ÍA er allt of lítið.

Fylkisliðið virðist sakna Gústa á vinstri kantinum meira en það ætti að gera og illa gengur að fylla hans skarð. Vonum að hann snúi sem allra fyrst til baka enda er hann gríðarlega mikilvægur hlekkur í liðinu. Það er helst að Tómas geti leyst þá stöðu en hann þurfti að leika sem bakvörður vegna meiðsla Þóris Hannessonar.
Jóhann Þórhallsson lék vinstra megin á kantinum og var algjörlega úti á túni, þó sérstaklega í fyrri hálfleik. Þó að hann hafi hreint ekki alltaf átt frábæra leiki með Fylki að þá hljóta þetta að vera hans verstu 45 mínútur á ferlinum og þegar ég segi að hann hafi verið farþegi þá er það í raun hrós miðað við frammistöðuna, svo döpur var hún. Hann var ekki inn í spilinu, vann illa til baka, var of seinn að koma sér inn í teiginn til að mæta fyrirgjöfum frá hægri og þegar hann fékk boltann gerðist ekkert að viti. Það var því með ólíkindum að Ólafur Þ. hafi ekki tekið hann útaf strax í hálfleik, það gerði hann ekki fyrr en á 70 mínútu. Maður fer ósjálfrátt að velta fyrir sér hvort að Jóhann eigi sér framtíð hjá félaginu. Miðað við það að við höfum misst bæði Theodór Óskarsson og Kjartan Andra Baldvinsson ætti hann að hafa nokkuð þýðingarmikið hlutverk innan liðsins, þar sem að það er mjög slæmt að missa marga menn sem spila svipaðar stöður á vellinum og breiddin í liðinu þarf að vera til staðar. Aftur á móti ef að frammistaðan er ekki betri en sú sem hann er að sýna þessa dagana er spurningin hvort ekki sé betra að leyfa einhverjum Fylkisstrák að fá sjensinn í hans stað og að niðurstaðan verði þá að Jóhann hverfi á braut.

Ingimundur lék fremstur á miðjunni og skapaði usla en tók oft einni snertingu of mikið og var of seinn að senda út á kantinn. Hans hæfileikar virðast nýtast betur úti á vængnum, þó að ég skilji vel pælinguna með að hafa hann fremstan á miðjunni. Vörnin var í ágætis lagi ef undan er skilið fyrstu mínúturnar og Fjalar stóð sig vel þegar á reyndi.
Ólafur þjálfari fær hér líka sinn skerf af gangrýni en hann gerði undarlega skiptingu á 82 mín þegar hann tók Alla útaf og setti Felix inná. Felix virðist eiga nokkuð í land og mín skoðun er sú að hann hafi hvorki afl né getu til að koma Fylkisliðinu að gagni í sumar. Þessi skipting hafði þveröfug áhrif, dró kraftinn úr sóknarleik Fylkis sem hafði verið mjög öflugur, sérstaklega mínúturnar á undan og Skagamenn komust betur inn í leikinn.

Næsti leikur er gegn Þór Akureyri sunnudaginn 28.mars næstkomandi í Boganum á Akureyri og þar sem enginn fulltrúi frá fylkismenn.is fer norður með liðinu verður því miður engin umfjöllun um þann leik. Leikurinn hefst kl 17:00 og að sjálfsögðu fylgjumst við vel með og setjum úrslit leiksins inn um leið og við fáum upplýsingar um þau.

Lið Fylkis (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson - Andrés Már Jóhannesson, Einar Pétursson (Davíð Ásbjörnsson 67), Kristján Valdimarsson, Tómas Þorsteinsson - Valur Fannar Gíslason (F) (Oddur Ingi Guðmundsson 66), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Ingimundur Níels Óskarsson - Ásgeir Örn Arnþórsson (Pape Mamadou Faye 46), Jóhann Þórhallsson (Friðrik Ingi Þráinsson 70), Albert Brynjar Ingason (Felix Hjálmarsson 82)