STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Fylkir - Fjölnir 1-0

skrifað 07-02-2010 (0 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Fylkir sigraði Fjölni 1-0 og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins. Liðið endar því riðilinn með 7 stig og markatöluna 5-3 nákvæmlega eins og Framarar en Fram og Fylkir unnu bæði Leikni og Fjölni 1-0 og gerðu 3-3 jafntefli í innbyrðis leik liðanna. Það verður því fróðlegt að sjá hvaða aðferð er notuð til að kveða úr um hvort liðanna endar í efsta sæti riðilsins.

Fylkir 1-0 Fjölnir
1-0 Pape Mamadou Faye ('87)

Leikurinn var afar lítið fyrir augað og fannst mér Fjölnismenn spila heldur betri fótbolta heilt yfir. Þeir áttu tvö stangarskot, annað alveg undir blálokin. Auk þess varði Fjalar Þorgeirsson sem var kominn aftur í Fylkismarkið nokkrum sinnum vel. Fylkismenn áttu sín færi í leiknum, aðallega í síðari hálfleik. Albert slapp í gegn en vippaði boltanum framhjá, Pape átti fínt færi eftir atgang í teignum en Hrafn markvörður Fjölnis varði.

Það var svo Pape sem skoraði sigurmarkið eftir fínan undirbúning frá Friðriki Inga sem var nýkominn inná sem varamaður. Ásgeiri Börkur sem lék sinn fyrsta leik í vetur eftir meiðsli sendi boltann út til vinstri á Friðrik sem sendi fyrir á Pape sem skallaði boltann í fjærhornið og tryggði Fylkismönnum 1-0 sigur rétt fyrir leikslok.

Það ræðst svo fljótlega hverjir andstæðingar Fylkismanna verða í undanúrslitum en undanúrslitaleikirnir verða leiknir næsta sunnudag, sá fyrri kl 18:00 og sá seinni kl 20:00.

Lið Fylkis: Fjalar Þorgeirsson - Andrés Már Jóhannesson, Davíð Ásbjörnsson, Þórir Hannesson, Orri Ólafsson - Ingimundur Níels Óskarsson (Ásgeir Örn Arnþórsson 87 ), Valur Fannar Gíslason, Baldur Bett (Ásgeir Börkur Ásgeirsson 46), Tómas Þorsteinsson - Jóhann Þórhallsson (Pape Mamadou Faye 46), Albert Brynjar Ingason (Friðrik Ingi Þráinsson 79).