Rvk mótið - Leikur við Val í kvöld
skrifað 27-01-2012 (0 athugasemdir)
Valur Ingi Johansen
Fylkir spilar sinn annan leik í Reykjarvíkurmótinu í kvöld. Fyrsti leikur Fylkis endaði með 2-2 jafntefli gegn Fjölni þar sem Fylkir var 2-0 yfir í hálfleik en klúðraði niður forustunni í restina.
Leikurinn í kvöld er við Val, en Valsarar gerðu einnig jafntefli í sínum fyrsta leik gegn Þrótti 0-0. Leikurinn er spilaður í Egilshöll eins og allir aðrir leikir í Reykjarvíkurmótinu og hefst hann kl.21:00.
Fyrir þá sem komast ekki er leikurinn sýndur beint á sporttv.is

