Umfjöllun: Fylkir - Fjölnir 2-2
skrifað 23-01-2012 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 2 - 2 Fjölnir
1-0 Jóhann Þórhallsson ('19)
2-0 Magnús Þórir Matthíasson ('31)
2-1 Bergsveinn Ólafsson ('79)
2-2 Bergsveinn Ólafsson ('88)
Fylkismenn gerðu jafntefli í sínum fyrsta leik í Reykjavíkurmótinu gegn Fjölni. Eftir að hafa komið sér í þægilega stöðu í fyrri hálfleik með tveimur góðum mörkum voru okkkar menn værukærir í þeim síðari og Fjölnismenn náðu að jafna áður en yfir lauk.
Ásmundur Arnarsson stillti upp þriggja manna vörn og spilaði 3-5-2 í leiknum. Fjölnismenn voru sprækari í upphafi og virtust ætla að ná frumkvæðinu í leiknum en Fylkismenn skoruðu hinsvegar fyrsta markið úr sinni fyrstu alvöru sókn. Þetta gerðist á 19 mínútu og var það Jóhann Þórhallsson sem skoraði eftir að hafa sloppið í gegn og leikið framhjá markverði Fjölnismanna.
Eftir um hálftíma leik skoraði Magnús Þórir Matthíasson einkar laglegt mark. Hann fékk þá gott pláss inná miðjunni, lék áfram og lét vaða utan teigs með hægri fæti en Magnús er yfirleitt meira fyrir að nota vinstri fótinn.
Fylkismenn þar með komnir í þægilega stöðu sem þeir tóku með sér inn í hálfleikinn. Spilamennskan varð hins vegar mun verri í síðari hálfleik, illa gekk að halda boltanum innan liðsins sem hafði gengið ágætlega í þeim fyrri og Fjölnismenn tóku völdin á vellinum. Þeir ógnuðu samt sem ekki mikið fyrr en að líða tók á leikinn.
Þeir náðu að minnka muninn þegar um 10 mínútur voru eftir. Fjölnismenn tóku aukaspyrnu snöggt út á kantinn og þaðan kom boltinn fyrir á Bergsvein sem laumaði boltanum inn á fjærstönginni.
Þeim tókst síðan að jafna metin og var það einnig eftir klaufagang í Fylkisvörninni. Eftir langt innkast var boltanum flikkað á fjærstöng þar sem Bergsveinn var aftur mættur og skoraði.
Niðurstaðan 2-2 jafntefli og værukærð Fylkismanna í síðari hálfleik kostaði þá sigurinn. Fjölmarga leikmenn vantaði í liðið en sannarlega var algjör óþarfi að missa þennan leik niður í jafntefli.
Lið Fylkis:5-3-2/3-5-2 Bjarni Þórður Halldórsson - Ásgeir Örn Arnþórsson (Rúrik Andri Þorfinnsson '46), Elís Rafn Björnsson, Kristján Valdimarsson (F), Davíð Þór Ásbjörnsson, Benedikt Óli Breiðdal (Andri Már Hermannsson '46) - Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Magnús Þórir Matthíasson, Styrmir Erlendsson (Hermann Ármannsson '62) - Árni Freyr Guðnason (Hákon Ingi Jónsson '62), Jóhann Þórhallsson
Ónotaðir varamenn: Ísak Björgvin Gylfason (m), Jóhann Andri Kristjánsson, Ari Páll Ísberg
Mörkin úr leiknum má sjá hér á tenglinum að neðan:
http://www.sporttv.is/Alltefnid/Efni/240

