Stórsigur á Gróttu
skrifað 18-01-2012 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir - Grótta 5-1
1-0 Hermann Ármannsson
2-0 Hákon Ingi Jónsson
3-0 Emil Ásmundsson
3-1 Hrafn Jónsson
4-1 Hákon Ingi Jónsson
5-1 Ásgeir Börkur Ásgeirsson (víti)
Mjög ungt lið Fylkis átti ekki í miklum vandræðum með Gróttumenn og unnu að lokum 5-1. Ásmundur Arnarsson stillti upp kornungu liði og flestir sem spiluðu leikin gegn Haukum á sunnudag fengu hvíld. Ungu drengirnir stóðu sig með mikilli prýði og var Fylkisliðið með undirtökin allan tímann. Leikurinn var mjög opinn sérstaklega í síðari hálfleik og bæði lið hefðu hæglega getað bætt við fleiri mörkum.
Lið Fylkis: Ólafur Íshólm- Ásgeir Börkur, Ásgeir Eyþórs, Elís Rafn, Benedikt Óli - Emil, Magnús Þórir, Andri Már - Hermann, Styrmir, Rúrik
Varamenn sem komu inná: Ísak Björgvin, Runólfur Sveinn, Hákon Ingi, Jóhann Andri, Ari Páll, Ingimundur Sigurður Helgi.
Næsti leikur okkar er gegn Fjölni næsta sunnudag í Egilshöll kl 20:00.

