Öruggur sigur gegn Haukum
skrifað 16-01-2012 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
1-0 Kjartan Ágúst Breiðdal
2-0 Ásgeir Eyþórsson
3-0 Jóhann Þórhallsson
Fylkismenn unnu í gær öruggan 3-0 sigur á Haukum. Fylkismenn voru sterkari aðilinn allan tímann og spiluðu nokkuð góðan leik. Gústi skoraði fyrsta markið í fyrri hálfleik eftir góða sókn Fylkismanna. Varamaðurinn Ásgeir Eyþórsson skoraði skondið mark í síðari hálfleik. Fylkismenn áttu hornspyrnu sem Daði Lárusson markvörður Hauka lenti í vandræðum með og sló boltann í Ásgeir. Boltinn hrökk síðan af Ásgeiri og í netið. Okkar menn því komnir í þægilegra stöðu og Haukar ógnuðu lítið. Jóhann Þórhallsson skoraði síðan laglegt mark og tryggði Fylki sannfærandi sigur.
Þorvaldur Sveinn Sveinsson sem hefur leikið allan sinn feril með Víkingum spilaði seinni hálfleikinn í gær en hann er samningslaus og er nýbyrjaður að æfa með Fylki. Hann er reyndar í námi í Bandaríkjunum og fer fljótlega utan aftur og kemur aftur í maí. Hann heldur síðan aftur til náms í ágúst eins og allnokkrir leikmenn okkar, Andri Þór, Daníel Freyr og Oddur Ingi sem eru núna staddir erlendis.
Lið Fylkis: Bjarni Þ. - Davíð Þór, Hjörtur, Kristján, Gústi - Finnur, Ásgeir Börkur, Árni Freyr - Ingimundur, Jóhann, Ásgeir Örn
Varamenn sem komu inná: Þorvaldur Sveinn, Elís, Styrmir, Andri Már, Hermann, Jóhann Andri, Ásgeir Eyþórs
Stutt er í næsta leik okkar manna en hann er gegn Gróttu á morgun (þriðjudag) kl 20:00 í Egilshöll.

