Tap og jafntefli um helgina
skrifað 03-12-2011 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Meistaraflokkur Fylkis stóð í ströngu um helgina og spilaði tvo leiki. Þann fyrri á föstudagskvöld í íslandsmótinu í Futsal þar sem okkar menn töpuðu 3-4 fyrir Víkingi Ólafsvík í Fylkishöllinni.
Niðurstaðan var heldur betri í síðari leiknum sem fór fram í morgun (laugardagsmorgun) en þar skildu Fylkir og Breiðablik jöfn 2-2 í Fífunni.
Breiðablik - Fylkir. 2-2
1-0 Björgólfur Takefusa
1-1 Elís Rafn Björnsson (sjálfsmark)
2-1 Þórður Steinar Hreiðarsson
2-2 Trausti Björn Ríkharðsson
Fylkismenn komust yfir með marki frá Björgólfi Takefusa, gaman að hann hafi komist á blað en liðið mun þurfa að reiða sig á að hann skori nóg af mörkum næsta sumar. Blikar jöfnuðu og tóku síðan forystuna en Trausti Björn Ríkharðsson jafnaði metin með laglegu marki.
Byrjunarlið Fylkis (3-5-2): Bjarni - Runólfur, Davíð, Elís - Ásgeir Örn, Finnur, Ásgeir Börkur, Ingimundur, Magnús Þórir - Björgólfur, Árni Freyr
Inná komu: Ísak Björgvin, Andri Már, Ásgeir Eyþórs, Jóhann Andri, Trausti, Hermann, Ari Páll.
Næsti leikur sem liggur fyrir er Fútsal leikur við KB úr Breiðholti 8.desember í Íþróttahúsinu í Kórnum

