Leikur í kvöld gegn Þrótti R.
skrifað 29-11-2011 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkismenn leika æfingaleik í kvöld við Þrótt R. Leikurinn hefst kl 20:00 í Egilshöllinni. Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að mæta, enda verður gaman að sjá hvernig liðið kemur út.
Strákarnir hafa verið að æfa vel að undanförnu og er nokkuð um ný andlit í hópnum. Bæði eru það leikmenn sem hafa verið fengnir til liðsins og aðrir sem hafa komið af sjálfsdáðun og fengið að prófa að æfa. Einn þeirra er Kári Ársælsson fyrrverandi fyrirliði Breiðabliks sem mun líklega spila í kvöld. Þá er einnig von á að Finnur Ólafsson spili sinn fyrsta leik í Fylkisbúningi.

