Komnir og farnir
eftir TobbZ 10:34 14-11-2011
Þjálfarateymið lítur gríðarlega vel út og heillar greinilega leikmenn. Fleiri leikmenn vilja koma til liðsins vegna þeirra. Nýju leikmennirnir eru mjög góð viðbót við liðið að mínu mati, þeir Magnús, Björgólfur og Árni Freyr. Ef við fáum Finn Ólafs einnig þá erum við í flottum málum held ég.
Þannig það hafa jákvæðir hlutir verið að gerast í leikmanna og þjálfaramálum undanfarið. Svo þarf að fara að vinna í vallarmálum, allavega allt annað en Laugardalsvöllur á næsta tímabili. Það er bara þannig.
ÁFRAM FYLKIR


eftir katabomm 05:18 14-11-2011 (1 athugasemdir)
Sælir félagar. Gott að síðan er komin upp aftur og vonandi fer spjallið líflega í gang. Hvernig líst mönnum á stöðuna núna? Það er að segja þjálfarateymi, nýjir leikmenn, leikmenn sem eru farnir. Lítur þetta ekki bara nokkuð vel út allt saman?
Skrá athugasemd