STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Upprifjun á stöðu mála - Síðan komin aftur í gang!

skrifað 14-11-2011 (1 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Nú er síðan okkar loksins komin upp eftir röð tæknilegra vandamála. Á meðan á þessu stóð hefur heldur betur margt gerst hjá okkar mönnum, nýjir leikmenn og þjálfarar hafa bæst við, auk þess sem nokkrir leikmenn hafa horfið á braut. Við skulum rifja upp hvað hefur gengið á.

Aðeins fyrst að ástæðunni fyrir því að síðan lá niðri. Þannig var mál með vexti að við vorum að skipta um hýsingaraðila og illa gekk að keyra síðuna upp að nýju. Það var ekki fyrr en við leitum til Fannars Óla Ólafssonar sem hjólin fóru að snúast og nú er síðan komin í eðlilegt horf. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir aðstoðina. Einu mistökin voru að leita ekki til hans fyrr :)

En að leikmanna og þjálfaramálum. Örskömmu eftir að síðan datt niður, var tilkynnt um ráðningu nýs aðstoðarþjálfara. Haukur Ingi Guðnason var ráðinn til starfa en hann er eins og allir vita fyrrverandi leikmaður Fylkis. Haukur sem er íþróttasálfræðingur hafði mikinn áhuga á að fara út í þjálfun og strax kominn með fínar hugmyndir, t.a.m. aukna áherslu á einstaklingsþjálfun, en það er eitthvað sem hefur varla þekkst hjá Fylki. Þá á sálfræðimenntun hans einnig að nýtast liðinu vel enda hefur því oft á tíðum skort andlegan styrk. Þá er aldrei að vita nema að Haukur taki fram skóna og leiki með liðinu ef þörf krefur.

Þá var hinn þrautreyndi Kristján Finnbogason fyrrverandi landsliðsmarkvörður ráðinn sem markmannsþjálfari meistaraflokks og annars flokks. Kristján sem var besti leikmaður Gróttu á síðasta tímabili fékk einnig félagaskipti yfir í Fylki og er til taks sem leikmaður ef á þarf að halda.

Fyrsti eiginlegi leikmaðurinn sem við fengum til liðs við okkur var svo enginn annar en Björgólfur Takefusa einn mesti markahrókur Íslandsmótsins undanfarin ár. Björgólfur kemur að láni frá Víkingum í eitt ár. Er hann mikill fengur fyrir liðið enda gríðarlega marksækinn leikmaður sem varnarmenn andstæðinganna hræðast.

Árni Freyr Guðnason fyriliði ÍR bættist síðan í hópinn en Árni hefur verið burðarás í Breiðholtsliðinu undanfarin ár. Nú er hann loksins kominn í efstu deild og fær tækifæri til að láta ljós sitt skína. Árni er hæfileikaríkur leikmaður sem getur leikið sem sóknarmaður eða sem fremsti miðjumaður.
Þess má geta að Árni er bróðir Atla Guðnasonar sem er margfaldur Íslandsmeistari með FH og var valinn besti leikmaður Pepsi deildarinnar árið 2009.

Nýlega gekk svo í okkar raðir ungur Keflvíkingur Magnús Þórir Matthiasson en hann hefur látið að sér kveða í liði Suðurnesjamanna undanarin misseri.
Magnús er 21 árs sóknarmaður/kantmaður sem vonandi getur nýst liðinu, sérstaklega upp á breiddina.

Vonandi eru síðan fleiri leikmenn á leiðinni, enda ljóst að bæta þarf við fleiri leikmönnum sérstaklega inná miðsvæðið og jafnvel í vörnina líka.
Fylkir hefur t.a.m. gert ÍBV tilboð í Finn Ólafsson sem yrði gríðarlegur liðsstyrkur fyrir liðið en Finnur var einn af öflugri miðjumönnum deildarinnar í
fyrra. Það yrði sérstaklega ánægjulegt að krækja í hann, sérstaklega þar sem Gylfi Einarsson og Baldur Bett eru báðir horfnir á braut.

Fleiri leikmenn hafa einnig yfirgefið skútuna. Fjalar Þorgeirsson sem hefur varið mark Fylkismanna frá því að hann kom árið 2006 mun ekki endurnýja samning sinn við Fylki og á enn eftir að finna sér nýtt lið. Er hann helst orðaður við ÍBV og Þrótt R. í þeim efnum.

Albert Brynjar Ingason valdi að semja við FH í stað þess að semja við Fylki á nýjan leik, sem verða að teljast talsverð vonbrigði enda Albert verið lykilmaður síðan að hann snéri aftur heim eftir snubbóta dvöl hjá Val.

Þá söðlaði Valur Fannar Gíslason næstleikjahæsti leikmaður Fylki frá upphafi í efstu deild um og gekk í raðir Hauka.

Aftur á móti hefur Kjartan Ágúst Breiðdal samið áfram við Fylkismenn sem eru gleðitíðindi, hins vegar á Ásgeir Börkur enn eftir að semja um nýjan samning og vonandi tekst okkur að halda honum í Árbænum. Kjartan Ágúst er reyndar nýkominn heim úr dvöl hjá norska liðinu Sarpsborg en ólíklegt þykir að hann semji við liðið.

Hjörtur Hermannsson er nýkominn heim frá hollenska stórliðinu PSV þar sem hann var á reynslu og nú er bara spurning hversu lengi okkur tekst að halda honum hjá félaginu, vonandi verður hann allavega með okkur næsta sumar. Eldri bróðir hans Björn Orri Hermannsson sem var gríðarlegt efni á sínum tíma er án félags og æfir nú með Fylkismönnum. Björn hefur átt við langvarandi meiðsli að stríða en haldist hann heill og takist honum að standa sig vel á undirbúningstímabilinu sé ég ekkert því til fyrirstöðu að samið verði við hann.

Þá er Ingimundur Níels kominn aftur til okkar eftir lánsdvöl hjá Sandness Ulf sem er gríðarlega mikilvægt og verður hann í lykilhlutverki næsta sumar sem fyrr.

Ég held að flestir séu sammála um að nokkuð bjartir tímar séu framundan hjá okkar mönnum og þjálfarateymið lítur býsna vel út. Vonandi tekst okkur að bæta enn frekar í hópinn, ásamt því að ungir leikmenn fái áfram að blómstra við hlið reynslumikilla og öflugra leikmanna.

Eitt atriði sem mér finnst þó að þurfi að bæta er aðbúnaður 2. flokks karla en þar eru nú tæplega 40 strákar að æfa og aðeins einn þjálfari. Það er morgunljóst að það þarf að bæta við þjálfurum þar til að halda utan um efniviðinn sem þar er sannarlega til staðar. Það þarf að hlúa vel að þessum strákum og þó að þónokkrir þeirra séu að æfa með meistaraflokki er ljóst að núverandi aðstæður eru ekki boðlegar.

Að lokum vil ég minna á æfingaleikinn í kvöld gegn Fjölni kl 20:00 í Egilshöll og verður fróðlegt að sjá stöðuna á liðinu, reyndar er nokkuð um forföll sem er ekkert nema eðlilegt miðað við árstíma og reyndar eru það aðallega varnarmenn okkar sem eru meiddir og verða ekki með í kvöld.

Aukafréttir: Uppskeruhátíð eldri flokka var haldinn með glæsibrag þann 29. október síðastliðinn og verðlaunaafhendingin var með eftirfarandi hætti:

Bestur: Albert Brynjar Ingason
Efnilegastur: Hjörtur Hermannsson
Bestur að mati stuðningsmanna: Albert Brynjar Ingason

Þá hefur ný stjórn knattspyrnudeildar tekið til starfa en formaðurinn Kjartan Daníelsson gaf ekki kost á sér áfram og sömu sögu er að segja um Sigurgeir Smára Jónsson, Stefán Stefánsson og Magnús Inga Stefánsson. Ný stjórn er þannig skipuð:

Formaður: Ásgeir Ásgeirsson
Varaformaður: Atli Atlason
Gjaldkeri: Jón Óli Sigurðsson
Ritari: Valur Ingi Johansen
Meðstjórnandi: Ólafur Geir Magnússon

Áfram Fylkir!

Minni að endingu á að við munum taka viðtöl við nýjan þjálfara og einhverja leikmenn eftir leikinn í kvöld, fylgist vel með því!

eftir Valli 01:08 15-11-2011

Já bjartir tímar framundan og það yðri gríðalegur liðsstyrkur að fá Finn Ólafsson á miðjuna. Þá er miðsvæðið klárt ef Börkurinn fer að skottast til að setja nafnið sitt á blað. Leikurinn í kvöld er must see fyrir áhuga mann eins og mig, hlakka mjög til að sjá nýju leikmennina spreyta sig í appelsínugula búningnum!