STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Áhorfendastúka hjá Fylki ? Pistill frá formanni

skrifað 11-10-2011 (0 athugasemdir)

Mánudagur, 10. október

Mikið hefur verið rætt á meðal manna í Árbæjarhverfi um aðstöðumál áhorfenda við aðalknattspyrnuvöll Fylkis. Fylkir hefur mátt búa við það mörg undanfarin ár að vera með lélegustu aðstöðu fyrir áhorfendur af þeim félagsliðum sem spila í efstu deild KSÍ bæði í karla- og kvennaflokki.

Nú er svo komið að Fylkir getur ekki spilað heimaleiki sína í efstu deild á Fylkisvelli á næsta kepnistímabili nema til komi yfirbyggð áhorfendastúka við aðalknattspyrnuvöll félagsins. Samkvæmt reglum KSÍ þarf að rísa yfirbyggð áhorfendastúka hjá liðum í efstu deild fyrir keppnistímabilið 2012 og hjá Fylki þarf hún að rúma að lágmarki 1500 manns í sæti.

Fylkir hefur nú spilað samfellt í 12 ár í efstu deild karla sem er frábær árangur og einungis KR hefur verið lengur samfellt í deildinni eða 13 ár. Konurnar eru búnar að vera samfellt í 6 ár í efstu deild sem er mjög góður árangur.

Samþykkt deiliskipulag fyrir yfirbyggðri áhorfendastúku liggur fyrir þar sem núverandi áhorfendapallar eru við aðalknattspyrnuvöll félagsins.

Aðalstjórn Fylkis réðst snemmsumars í það að láta teikna stúkuna og stefnt er að því að byggingarnefndarteikningar verði tilbúnar í haust.

Óskað hefur verið eftir viðræðum við borgaryfirvöld varðandi stúkubygginguna og við skulum vona að undirtektir verði jákvæðar þannig að Fylkir þurfi ekki að spila heimaleiki sína í Laugardalnum á næsta keppnistímabili.

Björn Gíslason formaður Fylkis.

Tekið af fylkir.com

http://fylkir.com/index.php?option=com_content&view=article&id=1045:ahorfendastuka-hja-fylki-&catid=65:um-felagie&Itemid=111