STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Nóg af fjöri í Árbænum

skrifað 05-10-2011 (0 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Fylkir 3 - 5 FH
1-0 Davíð Þór Ásbjörnsson ('10)
1-1 Matthías Vilhjálmsson ('39)
1-2 Atli Viðar Björnsson ('41)
1-3 Björn Daníel Sverrisson ('43)
2-3 Albert Brynjar Ingason ('45)
2-4 Atli Viðar Björnsson ('52)
2-5 Ólafur Páll Snorrason ('63)
3-5 Jóhann Þórhallsson ('73)

Fylkismenn enduðu í sjöunda sæti Pepsi deildarinnar eftir 3-5 tap í lokaleiknum á Fylkisvelli. Leikurinn var bráðfjörugur eins og tölurnar gefa til kynna og mörkin hefðu hæglega getað orðið talsvert fleiri.

Nokkar breytingar voru á Fylkisliðinu frá KR-leiknum og þó sérstaklega á vörninni. Davíð og Stjáni voru miðverðir og Trausti og Ásgeir Örn bakverðir. Þá kom Elís Rafn inn fyrir Ásgeir Börk sem var í leikbanni og Andri Már inn fyrir Gústa sem var meiddur.

Það er í raun ógjörningur að rifja upp öll þau fjölmörgu færi sem komu í leiknum en hér verður þó gerð heiðarleg tilraun til þess. Leikurinn byrjaði vel fyrir okkar menn sem voru komnir yfir eftir 10 mínútur. Þá kom löng aukaspyrna inn á teig þar sem Davíð Þór skallaði boltann í netið. Það verðu þó að segjast að afleitir tilburðir Gunnleifs landsliðsmarkvarðar gerðu honum kannski auðvelt fyrir.

Freyr Bjarnason átti mjög hættulega tilraun strax á eftir, hann átti þá skalla eftir horn sem var á leið inn en Stjáni Vald bjargaði á marklínu. Atli Viðar átti svo hættulegt skot sem Fjalar varði vel. FH-ingar þjörmuðu að Fylkismönnum á þessum kafla og Freyr fékk annað dauðafæri á 24 mínútu en skallaði framhjá.

Fylkismenn fengu svo tvö fín færi til að auka forystuna, sérstaklega Andri Már sem fór afar illa að ráði sínu og lét Gulla verja frá sér eftir frábæran undirbúning frá Alla. Alli fór áfram mjög illa með svifaseina varnarmenn FH og lagði upp annað færi á Styrmi en skot hans fór vel yfir markið.

Þarna voru tíu mínútur eftir af fyrri hálfleik og þessar síðustu 10 mínútur settu Hafnfirðingar í fluggírinn. Atli Guðnason fékk meðal annars mjög gott færi en Fjalar bjargaði virkilega vel. Það var svo á 39 mínútu sem FH-ingar náðu að skora og þar var að verki Matthías Vilhjálmsson sem skóflaði boltanum inn eftir fyrirgjöf. Fjalar var grátlega nálægt því að verja, en boltinn lak inn.

Áfram hélt sókn FH og tveimur mínútum síðar náðu þeir forystunni. Atli Guðnason lék þá af stað með boltann átti skot sem hrökk af varnarmanni beint til Atla Viðars sem afgreiddi færið af sinni alkunnu snilld.

Á markamínútunni þeirri fertugustu og þriðju skoruðu svo FH-ingar enn eitt markið og óhætt að segja að það hafi verið fallegasta mark þeirra í leiknum. Björn Daníel skoraði þá með bakfallspyrnu af stuttu færi eftir þunga sókn FH-inga.

Rétt áður en flautað var til leikhlés náðu Fylkismenn þó að svara fyrir sig og þar var mættur Alli sem skallaði laglega í fjærhornið eftir fína fyrirgjöf frá Elís Rafni.

Jói Þórhalls kom inná í háfleik fyrir Andra Már sem hafði verið arfaslakur og Jói átti fína spretti, sem því miður hafa verið allt of sjaldséðir í sumar.

Seinni hálfleikurinn bauð svo upp á sömu skemmtun fyrir áhorfendur. Hann var ekki nema fimm mínútna gamall þegar FH-ingar fengu gullið færi á að auka forystuna. Matthías skallaði þá framhjá úr úrvalsfæri, já varnarmenn Fylkis voru heldur betur gjafmildir í þessum leik.

Einn þeirra var Ásgeir Örn sem bar ábyrgð á fjórða marki FH. Eftir fyrigjöf átti hann afleita hreinsun beint á Atla Viðar sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði á 52 mínútu.

Skömmu síðar komst Atli Guðnason svo upp hægra megin og átti flott skot sem Fjalar varði meistaralega. Það var síðan á 63 mínútu sem FH-ingar skoruðu sitt fimmta og síðasta mark í leiknum. Ólafur Páll lék þá vörn Fylkis grátt og skoraði með fínu skoti í nærhornið.

Leikurinn róaðist loksins aðeins eftir þetta en Fylkismenn hertu sig aðeins í sinni spilamennsku. Ekki liðu þó nema tíu mínútur þangað til næsta mark kom, en þá setti Jói Þórhalls sitt fyrsta mark í sumar eftir fína sendingu frá Trausta Birni. Skömmu áður lá þó við að boltinn myndi liggja í markinu hjá FH.
Alli átti þá frábæra tilraun, bakfallsspyrnu úr teignum en því miður fór boltinn í slánna og út. Hefði sannarlega verið gaman að sjá þennan inni!

Fylkismenn voru hættulegra liðið það sem eftir var og gekk ágætlega að halda boltanum. Jafnframt lagaðist varnarleikurinn til muna, kannski var af því FH-ingar slökuðu nokkuð á í sínum leik.

Lokafærið fékk svo Alli skömmu fyrir leikslok en skaut framhjá úr algjöru dauðafæri. Hefði verið gaman fyrir hann að ná þarna sínu tíunda marki í deildinni, en það gekk ekki að þessu sinni. Vonandi tekst okkur þó að halda þessum magnaða leikmanni og ég held að fáir geti mótmælt því að hann hafi verið okkar besti leikmaður í sumar.

Lokaniðurstan 3-5 í ótrúlegum knattspyrnuleik.

Það er hægt að taka ýmislegt jákvætt út úr leik Fylkisliðsins. Margir ungu strákanna áttu ágætis spretti og þó nokkuð var um fína spilkafla. Okkur tókst að skapa helling af færum og við hefðum hæglega getað skorað fleiri en þrjú mörk. Að sama skapi fengu FH-ingar einnig urmul færa enda var varnarleikurinn afleitur lengst af og Fjalar bjargaði oft vel og varnaði því að FH-ingar skoruðu enn fleiri.

Lærdómsríkt tímabil að baki hjá Fylki þar sem skiptust heldur betur á skin og skúrir. Uppskeran eins og áður segir sjöunda sæti og 25 stig á töflunni. Markatalan var heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir 34-44, semsagt mínus 10 mörk. Þessi lokaleikur varð til þess að Fylkismenn fengu á sig flest mörk allra liða, tveimur mörkum meira en Blikar sem fengu á sig 42.

Nú er framundan langt og strangt undirbúningstímabil og nú er brýnt að fá öflugan þjálfara, semja við þá menn sem eru með lausa samninga og styrkja hópinn eins vel og kostur er með utanaðkomandi mönnum. Þetta er algjörlega nauðsynlegt ef ekki á illa að fara næsta sumar.

Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:

Fjalar Þorgeirsson 8

Trausti Björn Ríkharðsson 5

Davíð Ásbjörnsson 5

Kristján Valdimarsson 6

Ásgeir Örn Arnþórsson 4

Elís Rafn Björnsson 7

Hjörtur Hermannsson 6

Baldur Bett 5

Albert Brynjar Ingason 8

Styrmir Erlendsson 7

Andri Már Hermannsson 3

Jóhann Þórhallsson 7

Rúrik Andri Þorfinsson 6

Ásgeir Eyþórsson 7

Fylkir: Fjalar Þorgeirsson - Trausti Björn Ríkharðsson, Davíð Þór Ásbjörnsson, Kristján Valdimarsson (F), Ásgeir Örn Arnþórsson – Hjörtur Hermannsson (Ásgeir Eyþórsson '67), Elís Rafn Björnsson, Baldur Bett (Rúrik Andri Þorfinnsson '54) – Styrmir Erlendsson, Andri Már Hermannsson (Jóhann Þórhallsson '46), Albert Brynjar Ingason.


Meðalaldurinn var ekki sérstaklega hár í byrjunarliðinu en Fjalar og Baldur rifu hann þó aðeins upp

Ónotaðir varamenn: Bjarni Þórður Halldórsson (M), Benedikt Óli Breiðdal, Ari Páll Ísberg, Egill Trausti Ómarsson.

FH Gunnleifur Vignir Gunnleifsson – Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (Bjarki Bergmann Gunnlaugsson '65), Tommy Nielsen (F) (Jón Ragnar Jónsson '87), Freyr Bjarnason, Björn Daníel Sverrisson – Pétur Viðarsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Matthías Vilhjálmsson (F) – Ólafur Páll Snorrason, Atli Viðar Björnsson, Atli Guðnason (Gunnar Kristjánsson '83).

Ónotaðir varamenn: Gunnar Sigurðsson (M), Viktor Örn Guðmundsson, Guðmundur Sævarsson, Emil Pálsson.

Markskot: Fylkir 10 (6) - FH 14 (10)

Horn: Fylkir 5 - FH 3

Aðstæður: Kuldi og vindur en völlurinn þokkalega flottur miðað við árstíma.

Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson 7

Aðstoðardómarar: Smári Stefánsson og Frosti Viðar Gunnarsson

Maður leiksins: Atli Viðar Björnsson

Gul spjöld: Engin

Áhorfendur: 510