STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Fylkismenn stóðu í KR-ingum

skrifað 26-09-2011 (0 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

KR 3 - 2 Fylkir
1-0 Bjarni Guðjónsson (víti) ('28)
1-1 Styrmir Erlendsson ('35)
2-1 Baldur Sigurðsson ('49)
2-2 Bjarni Guðjónsson ('52, sjálfsmark)
3-2 Dofri Snorrason ('64)

Fylkismenn þurftu að sætta sig við 3-2 tap í Vesturbænum á sunnudaginn þrátt fyrir hetjulega baráttu. Þeir gáfu KR-ingum ekkert eftir og hefðu hæglega getað fengið eitthvað út úr leiknum. Með sigrinum tryggðu KR-ingar sér Íslandsmeistaratitilinn.

Enn var breytt Fylkislið sem mætti til leiks. Fjalar var kominn aftur í markið, Valur Fannar kom inn fyrir Davíð sem tók út leikbann, Baldur Bett kom inn fyrir Gylfa Einars og Styrmir Erlendsson lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði og leysti af hólmi Tomma sem átti við meiðsli að stríða.

Leikurinn var nokkuð fjörugur lengst af og hart tekist á. Fylkismenn voru nokkuð sprækari í byrjun en síðan náðu KR-ingar betri tökum á leiknum. Fyrstu hættulegu tilraunina átti Egill Jónsson KR-ingur þegar hann náði ágætis skoti sem Fjalar sló yfir.

Á 28 mínútu fengu KR-ingar frekar ódýra vítaspyrnu þegar Valur Fannar stjakaði aðeins við Baldri Sigurðssyni sem datt með tilþrifum í teignum. Bjarni Guðjónsson skoraði síðan af öryggi úr vítinu. Vítaspyrnudómurinn kom eftir annan fáranlegan dóm en Gústi steig Dofra út við hornfánann en aðstoðardómarinn flaggaði Gústa brotlegan. KR-ingar fengu aukaspyrnu og upp úr henni vítaspyrnu.

Fylkismenn létu þetta ekki slá sig útaf laginu og jöfunuðu metin sjö mínútum síðar. Ásgeir Börkur krækti í aukaspyrnu út við hornfánann. Hjörtur sendi fyrir, Valur Fannar flikkaði boltanum áfram á Styrmi sem stakk sér laglega fram fyrir Dofra og skallaði boltann í netið. Gríðarlega vel gert hjá Styrmi sem stóð sig með mikilli prýði í leiknum.

Fimm mínútum síðar gerðu okkar menn tilkall til vítaspyrnu þegar Grétar virtist draga Alla niður í teignum. Gunnar Jarl lokaði hins vegar augunum fyrir þessu atviki og kom það manni svo sem ekki á óvart, enda ekki í fyrsta skipti sem það gerist á KR-vellinum í sumar.

KR-ingar fengu síðan tvö hættuleg færi undir lok fyrri hálfleiks, fyrst Guðmundur Reynir sem spændi upp völlinn og átti skot eða sendingu sem fór í Guðjón baldivinsson og framhjá. Guðjón fékk svo gott skallafæri eftir frábæra fyrirgjöf frá Bjarna en Fjalar bjargaði með frábærri markvörslu.

1-1 í hálfleik og leikurinn galopinn. Fylkismenn neyddust til að gera breytingu í hálfleik og því miður varð sú breyting til þess að veikja liðið. Gústi þurfti að fara útaf og Rúrik kom í hans stað. Ásgeir Örn færðist í hægri bakvörðinn og Trausti í vinstri bakvörðinn. Trausti sem var búinn að vera fínn í fyrri hálfleik lenti hins vegar í stórkostlegum vandræðum allan síðari hálfleik.

KR-ingar tóku forystuna eftir aðeins þrjár mínútur í seinni hálfleik. Dofri átti greiða leið upp kantinn hægra megin og sendi fyrir á hinn eitraða Baldur Sigurðsson sem skoraði með ágætis skoti.

Það tók þó Fylkismenn ekki nema fjórar mínútur að jafna metin aftur. Því er ekki að neita að talsverður heppnisstimpill var yfir því marki. Styrmir lagði þá boltann út á Baldur Bett sem þrumaði að marki, skot sem virtist vera á leið framhjá. Skotið fór hins vegar beint í belginn á Bjarna Guðjóns og þaðan í bláhornið.

Tíu mínútum síðar fengu okkar menn svo kjörið tækifæri til að komast yfir í leiknum. Hjörtur átti þá góðan sprett af miðjunni og reyndi skot sem Hannes lenti í bullandi vandræðum með og sló beint út í teiginn á Alla sem var í upplögðu færi til að setja boltann í markið. Alli rann hinsvegar á blautum vellinum og færið rann út í sandinn. Gríðarleg óheppni þarna því Alla setur 9 af hverjum 10 svona færum í netið.

Okkar mönnum var svo refsað fyrir þetta skömmu síðar (65 mínútu). Það mark var hinsvegar algjör gjöf. Trausti tók þá afleitt innkast beint á Dofra Snorrason sem geystist af stað og sendi á Guðjón Baldvinsson sem tók á rás. Trausti æddi til baka og reyndi að bæta fyrir mistökin. Það gekk ekki betur en svo að hann felldi Guðjón í teignum. Í stað þess að biðja um víti þá hélt Guðjón áfram og stóð af sér tæklinguna og sendi fyrir á Dofra sem kom á blússandi siglingu inn í teiginn og hamraði boltann í markið.

Eftir þennan feykilega fjöruga kafla hægðist heldur á leiknum. Viktor Bjarki kom sér í gott færi á 69 mínútu eftir laglegan einleik en skaut framhjá. Besta færi okkar manna eftir þetta fékk Rúrik þegar hann átti skalla eftir hornspyrnu en Dofri bjargaði á línu.

Þegar um tíu mínútur voru eftir lentu Fylkismenn í því að verða einum færri þegar Valur Fannar átti skelfilega tímasetta tæklingu á Guðjón rétt utan teigs og fékk sitt annað gula spjald. Guðjón tók aukaspyrnuna sjálfur en sú spyrna var alltaf á leiðinni framhjá enda endaði hún þar.

Lokafærið fékk svo Egill Jónsson sem hamraði boltann rétt framhjá. Okkar menn börðust þó til síðasta blóðdropa og fór þar fremstur í flokki Ásgeir Börkur sem fór í miðvörðinn og átti geggjaða tæklingu á Guðjón þegar hann var að sleppa upp kantinn en Ásgeir tók þarna eingöngu boltann.

Góð frammistaða hjá okkar drengjum sem geta verið stoltir af framgöngu sinni í leiknum þrátt fyrir tapið.

Lokaleikur okkar manna er svo næsta laugardag gegn FH kl 14:00 á Fylkisvelli og hvet ég alla til að mæta á þennan síðasta leik tímabilsins. Síldarveisla fyrir leik og lokaballið með Pál Óskari um kvöldið, þetta verður auglýst nánar hér á síðunni innan skamms.

Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:

Fjalar Þorgeirsson 7

Trausti Björn Ríkharðsson 4

Valur Fannar Gíslason 6

Þórir Hannesson 7

Kjartan Ágúst Breiðdal 6

Ásgeir Börkur Ásgeirsson 8

Hjörtur Hermannsson 6

Baldur Bett 6

Ásgeir Örn Arnþórsson 7

Albert Brynjar Ingason 7

Styrmir Erlendsson 7

Rúrik Andri Þorfinsson 5

Elís Rafn Björnsson 5

Andri Már Hermannsson -

KR Hannes Þór Halldórsson - Magnús Már Lúðvíksson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Skúli Jón Friðgeirsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson - Bjarni Guðjónsson (F), Baldur Sigurðsson, Viktor Bjarki Arnarsson, Egill Jónsson - Björn Jónsson (Gunnar Örn Jónsson '68) - Guðjón Baldvinsson

Ónotaðir varamenn: Atli Jónasson (M), Magnús Már Lúðvíksson, Torfi Karl Ólafsson, Hróar Sigurðsson, Aron Bjarki Jósepsson, Davíð Einarsson.

Fylkir: Fjalar Þorgeirsson - Trausti Björn Ríkharðsson, Þórir Hannesson, Valur Fannar Gíslason (F), Kjartan Ágúst Breiðdal (Rúrik Andri Þorfinnsson '46) – Hjörtur Hermannsson, Baldur Bett (Elís Rafn Björnsson '66), Ásgeir Börkur Ásgeirsson – Ásgeir Örn Arnþórsson, Albert Brynjar Ingason, Styrmir Erlendsson (Andri Már Hermannsson '82).

Ónotaðir varamenn: Bjarni Þórður Halldórsson (M), Benedikt Óli Breiðdal, Ásgeir Eyþórsson.

Markskot: KR 12 (6) - Fylkir 5 (4)

Horn: KR 10 - Fylkir 2

Aðstæður: Með besta móti, frábær stemming

Dómari: Gunnar Jarl Jónsson 5

Aðstoðardómarar: Jóhann Gunnar Guðmundsson og Frosti Viðar Gunnarsson

Maður leiksins: Dofri Snorrason

Gul spjöld: Baldur Bett ('23), Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('36), Þórir Hannesson ('43), Styrmir Erlendsson ('45), Valur Fannar Gíslason ('63)

Rautt spjald: Valur Fannar Gíslason ('81)

Áhorfendur: 3001