STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Valur Fannar ekki að hætta

skrifað 26-09-2011 (0 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson

Auðvitað er leiðinlegt að gefa víti, fá rautt og tapa. Maður getur ekki hætt svoleiðis, maður verður að hætta á betri nótum en það," sagði Valur Fannar Gíslason leikmaður Fylkis við Fótbolta.net í dag.

Valur Fannar lék sinn síðasta leik á tímabilinu í 3-2 tapinu gegn KR í gær en hann verður í leikbanni gegn FH í lokaumferðinni um næstu helgi. Hinn 34 ára gamli Valur Fannar býst við að leika áfram með Fylkismönnum næsta sumar.

,,Ég stefni að því að taka 1-2 tímabil í viðbót. Skrokkurinn er fínn og ég hef gaman að þessu en þetta er aðallega spurning um tíma."

,,Ég geri fastlega ráð fyrir því að vera áfram uppi í Árbæ. Ég nenni ekki að fara að söðla um og herja á ný lið. Ég skoða þetta eftir tímabilið en mér finnst mjög ólíklegt að ég fari eitthvað annað. Mér líður mjög vel upp frá og þetta er liðið mitt."

Valur Fannar fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að brjóta á Guðjóni Baldvinssyni í leiknum í gær.

,,Þetta er merki um það að maður er orðinn aðeins seinn. Maður sá boltann og ætlaði að sparka í burtu en þá kom fljótur maður og pikkaði í boltann."

Valur Fannar fékk einnig á sig vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar hann braut á Baldri Sigurðssyni þegar aukaspyrna kom inn á teiginn.

,,Ég er ekki búinn að sjá þetta í sjónvarpinu en mér fannst þetta vera voðalega lítið. Þessi 90 kílóa dreki hrynur við smá snertingu en svona gengur þetta fyrir sig í vítateigunum oft á tíðum. Manni er oft ríghaldið og aldrei fær maður vítaspyrnu. Ég get ekki metið þetta þar sem ég hef ekki séð þetta í sjónvarpinu," sagði Valur Fannar.

Tekið af fótbolta.net

Valur Fannar verður samningslaus þann 16. október næstkomandi en hefur greinilega áhuga á að vera áfram í Árbænum.