STAÐAN

01
KR
22
47
02
FH
22
44
03
ÍBV
22
40
04
Stjarnan
22
37
05
Valur
22
36
06
Breiðablik
22
27
07
Fylkir
22
25
08
Keflavík
22
24
09
Fram
22
24
10
Grindavík
22
23
11
Þór Ak.
22
21
12
Víkingur R.
22
15
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(8)

Frekar vel

(0)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Þór Ak.
Fjölnir
Ú
Fylkir
Grindavík
Ú
Fylkir
Fylkir
H
FH
Fylkir
H
Leiknir R.
Höttur
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
2-2
Valur
Víkingur Ó.
4-2
Fylkir
Fylkir
0-1
KR
Afturelding
1-0
Fylkir
Fylkir
1-1
Þróttur R.
Fylkir
3-2
Valur
nánar

NÆSTA SEASON - áríðandi.

eftir HelgiMar 09:57 20-09-2011 (50 athugasemdir)

Sælir góðir hálsar, það er orðið svolítið síðan ég hef tjáð mig um málefni Fylkis en núna langaði mig aðeins að koma af stað umræðu sem er mjög mikilvæg. Næsta tímabil:

Það er nokkuð ljóst að það verða miklar breytingar á hópnum og sterkir póstar sem eru að yfirgefa okkur. Nægir að nefna Andrés Má, Ingimund og Gylfa Einars. Ekkert smá stór pakki það. Það má fastlega gera ráð fyrir að fleiri leikmenn séu að fara frá okkur, nefni ég leikmenn eins og Baldur Bett og Fjalar..... einnig er líklegt að Óli Þórðar sé hugsanlega kominn á endastöð að þessu sinni.

Peningastaða klúbbsins er orðin mun betri en hún var fyrir ári síðan eftir sölu leikmanna og uppeldisbætur.

Af þessu má dæma að það hlýtur að teljast mjög mikilvægt að styrkja hópinn með nokkrum sterkum leikmönnum fyrir næsta tímabil ef það á ekki illa að fara. Sterk lið eru að koma upp og má t.d. gera ráð fyrir að Skagamenn verði mjög aktívir á leikmanna markaðnum.

Ég vil opna umræðuna hérna strax svo það sé hægt að byrja að þrýsta á meistarflokksráð og nuddast í þessum málum þannig að við náum strax í einhverja góða bita á markaðnum. Ef við t.d. myndum strax semja við tvo öfluga leikmenn nú á haustdögum gæfi það skilaboð út á við að við séum að fara gera stóra hluti næsta sumar. Þannig komum við sömuleiðis í veg fyrir mögulegan flótta úr herbúðunum.

Orðið er laust.

Skrá athugasemd

eftir tom 10:46 20-09-2011

Það er klárt að með brotthvarfi manna eins og Gylfa og líklega Vals Fannars og Fjalars myndast nokkuð svigrúm til að greiða sterkum mönnum laun. Hér er listi yfir nokkra áhugaverða leikmenn sem verða nú samningslausir.

Albert Brynjar Ingason, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Baldur Bett, Fjalar Þorgeirsson, Kjartan Ágúst Breiðdal, Valur Fannar Gíslason

Atli Guðnason, f. 1984 (FH)
Bjarki Páll Eysteinsson, f. 1986 (Stjarnan)
Colin Marshall, f. 1984 (Víkingur)
Denis Sytnik, f. 1986 (ÍBV)
Dofri Snorrason, f. 1990 (KR)
Egill Jónsson, f. 1991 (KR)
Eyþór Helgi Birgisson, f. 1989 (HK)
Guðjón Árni Antoníusson, f. 1983 (Keflavík)
Gunnar Valur Gunnarsson, f. 1982 (Fjölnir)
Gunnar Örn Jónsson, f. 1985 (KR)
Hilmar Rafn Emilsson, f. 1986 (Haukar)
Jón Vilhelm Ákason, f. 1986 (Valur)
Kristinn Steindórsson, f. 1990 (Breiðablik)
Mark Rutgers, f. 1986 (Víkingur)
Matt Garner, f. 1984 (ÍBV)
Matthías Guðmundsson, f. 1980 (Valur)
Ólafur Páll Snorrason, f. 1982 (FH)
Pétur Viðarsson, f. 1987 (FH)
Sveinbjörn Jónasson, f. 1986 (Þróttur) - Markakóngur 1. deildar
Tryggvi Sveinn Bjarnason, f. 1983 (Stjarnan)
Viktor Örn Guðmundsson, f. 1989 (FH)

Þetta er auðvitað ekki tæmandi listi en ég tók þarna saman nöfn leikmanna sem eru að verða samningslausir og ég myndi telja bæði áhugavert og ekki síður raunhæft að fá til Fylkis. Þarna sleppti ég mönnum eins og t.a.m. Kjartan Henry Finnbogason. Þá eru eflaust fjölmargir áhugaverðir leikmenn í 1. deild sem ég þekki ekki nógu vel til.

Eins skilst mér að það sé orðið nokkuð ljóst að Óli Þórðar hverfi á braut að loknu tímabili. Þeir möguleikar sem ég sé í stöðunni:

Heimir Hallgrímsson (ÍBV)
Ólafur Jóhannesson (KSÍ)
Willum Þór Þórsson (Keflavík)
Ólafur Kristjánsson (Breiðablik)
Þorvaldur Örlygsson (Fram)
Zoran Miljkovic (Leiknir)
Andri Marteinsson

Endilega skoðið og ræðið. Fínt að fá spjallið af stað.
Það er allvega morgunljóst að Pepsi-deildin verður sterkari árið 2012 en hún var í ár með tilkomu Selfoss og ÍA í stað Víkinga og Fram/UMFG/Þórs. Algjörlega klárt að við verðum að mæta til leiks með að minnsta kosti jafn sterkan hóp og við höfðum í maí ef ekki á illa að fara.

Fylkiskveðja

eftir TobbZ 12:31 20-09-2011

Já við megum ekki við flótta úr hedbúðum okkar eftir tímabil, semja strax við ósamningsbundna leikmenn. Verðum svo að strykja liðið með svona allavega 3 nýjum leikmönnum.

Ég vil engan veginn sjá Andra Marteins taka við liðinu, hann er búinn að falla með tvö lið á tveimur árum. Það væri skandall bara það að tala við hann um þjálfarastöðuna. Ég væri mest til í að fá Heim Hallgríms til að taka við liðinu...

eftir TobbZ 12:36 20-09-2011

Kannski galinn hugmynd, en að fá Gylfa Einars til taka við liðinu. Maður sem kann fótbolta og vill spila í fætur meðfram jörðinni og náttúrulega er Fylkismaður.

Í staðinn fyrir endalausan kraftabolta og síður fallegan, bara svona hugmynd. Hvað finnst ykkur?

eftir freysi 01:23 20-09-2011

Gylfi Einars væri örugglega mjög góður kostur sem þjálfari. Hann hefur mikla reynslu úr atvinnumennsku, er Fylkismaður og svo þekkir hann þessa stráka í liðinu. Bara spurning hvort hann hafi áhuga á starfinu. Held hann gæti orðið mjög verðmætur sem þjáflari og ef ekki aðaljþálfari þá kannski aðstoðarþjálfari.

eftir HelgiMar 02:19 20-09-2011

Flottar umræður komnar hér af stað.... þetta árið látum við meistaraflokksráð ekki komast upp með það að láta tímann líða í aðgerðaleysi.
Við verðum að byrja á að semja við okkar leikmenn en til þess að auka líkurnar á að það gerist er að klára allavega eitt eða tvö signings til að gefa út þau skilaboð að við hyggjumst vera í efrihluta deildarinnar á næsta ári.

eftir HelgiMar 02:41 20-09-2011

Ef Óli verður ekki áfram væri ég til að að sjá Heimi, Willum, Guðjón Þórða eða Gylfa/Finn

eftir laxi 06:50 20-09-2011

Ég held að Það ætti að vera forgangur hjá klúbbnum að semja við þá leikmenn sem eru í hópnum í dag sem á annað borð er áhugi að semja við, láta hvorki Albert Brynjar eða aðra teygja okkur á asnaeyrum ef að ætlunin er að komast að hjá öðru liði, hann hefur jú gert það áður.

Auk þess vil ég lýsa algerri óánægju yfir framkomu Fylkis í garð Vals Fannars, mér finnst hann ekki eiga skilið hvernig amk mér finnst klúbburinn hafa komið fram við hann,

Það væri óðs manns æði að semja ekki við Fjalar, hann er klárlega einn að 4. bestu markvörðum deildarinnar,

KV
JÞJ

eftir HelgiMar 06:57 20-09-2011

Sammála Laxaþ. :)

eftir HelgiMar 08:12 20-09-2011

eftir katabomm 08:29 20-09-2011

Eru einhverjir leikmenn að teygja okkur á asnaeyrunum Laxi? Hverjir eru það þá? Hvað sem Albert hefur gert einhverntímann áður skiptir engu máli. Hann hefur verið heill og góður hjá okkur og staðið sig vel í sumar.

eftir laxi 09:06 20-09-2011

Það er enginn sérstakur að teyma okkur á asnaeyrum að mér vitandi, það sem ég sagði var að við ættum að forðast það,
Albert Brynjar Ingason, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Baldur Bett, Fjalar Þorgeirsson, Kjartan Ágúst Breiðdal, Valur Fannar Gíslason
Allt eru þetta leikmenn sem ég heæd að meirihluti Fylkismanna vilji halda í hópnum, auðvityað er mér ekki kunnugt um launamál ákveðinna leikmanna, en geri ráð fyrir að Stjórnin vinni eftir -eh línu hvað það varðar.
Það sem ég vil er að Bæði Fylkir og þeir leikmenn sem samningslausir eru séu ekki að sóa tíma hvorsannars ef að svo ekkert verður úr samningum,

Auðvitað á að leggja allt kapp í að halda Alberti en ef að geta Fylkis að keppa við FH eða Kr er ekki til staðar nú þá þarf ekki að sóa tímanum, þá fer hann annað og aðrir fá tækifæri eða nýjir menn koma inn.

Í lista Helga eru nokkrir athyglisverðir leikmenn, það mætti td. taka séns á Matthíasi Guðmund frá Val, ef að hann er nokkuð heill orðinn þá gæti verið tækifæri fyrir hann að koma í Árbæinn "Fresh Start"

Hvað Þjálfara Varðar þá líst mér vel á að reyna við Heimi Hallgríms, og e-h rótgróin Fylkismann honum til aðstoðar, Gylfa, Óla Stígs etc....

Kv
Jón Þór

ps er ekki hægt að laga villur í texta eftir að maður commentar ?

Ég held td

eftir BJ 09:29 21-09-2011

Ef eitthvað er að marka sögusagnir munu Fjalar, Valur Fannar og Óli Þórðar allir hverfa á braut. Auk þess höfum við misst Gylfa, Adda og hugsanlega Ingimund. Það er því alveg klárt að Fylkisliðið þarf að styrkja verulega fyrir næsta sumar. Reyndar held ég að deildin verði sterkari á næsta ári með Selfoss og ÍA heldur en hún hefur verið í sumar.

Lykilatriði er að semja fyrst við þá menn sem hafa hug á að vera áfram hjá Fylki. Síðan þarf að styrkja hópinn umfram það með amk. 3-4 lykilmönnum, þá á ég ekki við menn sem koma bara til að breikka hópinn. til þess eigum við nóg af góðum efnivið.

Þó mér sé almennt illa við að fá marga útlendinga í liðið þá hefur það verið að gefa góða raun sem ÍA, Fram og ÍBV hafa verið að gera með að fá unga Breta til liðs við sig, spurning hvort við getum leikið þann leik eftir.

Varðandi þjálfaramál þá myndi ég glaður halda Óla Þórðar en í viðtölum virðist vera einhver þreyta hjá honum sýnist mér. Ef við skiptum um þjálfara er fyrir mér fyrsti kostur að fá Tóta Dan frá Álftanesi með Gylfa Einar og jafnvel aðrar kempur honum til aðstoðar.

eftir katabomm 10:59 21-09-2011

Við erum að koma upp með hóp af yngri leikmönnum sem verða reynslunni ríkari næsta sumar og eiga eftir að setja skemmtilegan svip á mótið. Auðvitað er eðlilegt að styrkja einnig liðið með sterkum leikmönnum hvort sem það eru íslendingar eða útlendingar. En umhverfið verður þá að vera þannig að markmiðið sé sett hátt, toppbarátta/evrópusæti og svo framvegis. Svoleiðis yfirlýst stefna laðar frekar að leikmenn heldur en miðjumoð. En- svo er þetta auðvitað spurningin um peningamálin. Getur félagið greitt það sama og nokkur önnur félög geta boðið? Vilja samningslausir leikmenn vera áfram hjá félaginu eða eru önnur félög að bjóða betur? Og síðast en ekki síst, það heillar mig svolítið að hafa grjótharðan Fylkismann í brúnni, unga Fylkismenn og styrkingu í réttar stöður með afburðaleikmönnum. Áfram Fylkir.

eftir haukur 12:44 21-09-2011

það hlýtur að teljast algert forgangsmál að semja við þá sem eru tilstaðar fyrir, þar sem enginn áhugi virðist vera hjá sjórninni á því að fá nýja leikmenn til liðsins.

eftir gormur 01:18 21-09-2011

sælir. í sambandi við Val Fannar, þá hefur hann ekki verið í neinu standi til að spila í sumar þannig að ábyrgðin er hans, menn skapa sín eigin tækifæri og lukku í þessu og ef þú ert ekki í formi þá áttu ekki að vera í liði. það verður samt ekki af honum tekið að hann er búinn að þjóna okkar félagi virkilega vel og hans verður minnst fyrir tímabilin á undan þessum því að ;þegar Valur Fannar tæklar þá er stuð;. Ég var mjög ánægður með hvernig Fylkisliðinu var stillt upp síðastliðinn sunnudag þar sem valinn Fylkismaður var nánast í hverju rúmi. ég fer ekki ofan af því að Fylkisliðið á að vera skipað Fylkismönnum þó að það þíði miðjumoð í 2 til 3 tímabil. allir þessir strákar eiga eftir að springa út og blómstra í Fylkisbúningnum og það má ekki gleyma því að þegar Fylkisstjarnan reis sem hæst þá var liðið nánast eingöngu byggt upp á heimamönnum.

það þarf að semja við Ásgeir, Alla, Breiðdal og okkar uppöldu stráka. en ekki endurnýja við þessa gömlu jaxla svo sem Val, Fjalar og fleiri. Ef þessir menn detta af launaskránni ásamt Gylfa þá ætti að vera eitthvað ráðrúm til að semja við 2-3 góða unga leikmenn og næla svo í einn reynslubolta líka til að berja kjúklingana áfram.
Ég persónulega myndi ekki vilja Gylfa í stjórastólinn en Finnur og Sverrir eru sterkir kandítatar með Kidda Tomm innan seilingar. Ég er virkilega ánægður með störf Óla en ég held að við þurfum teknískari þjálfara sem kennir mönnum að spila fótbolta. það er ekki alltaf nóg að öskra bara menn áfram...
Stúku strax í dag!!!!

eftir TobbZ 02:55 21-09-2011

Hvernig væri að ná í Hastein Briem í HK, honum langar í pepsi-deildina samkvæmt þessari frétt. Hann mundi styrkja liðið held ég.

http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=115045

eftir TobbZ 02:55 21-09-2011

Hafstein meina ég ekki Hastein...

eftir HelgiMar 11:49 21-09-2011

http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=115038 OG http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=115045.

Nú getur stjórnin ekki vælt yfir peningaskorti eftir að hafa fengið um 60 milljónir í kassann nú í sumar. Nú reynir bara á framtakssemi og hvort þeir séu með pung yfir höfuð.

eftir HelgiMar 11:49 21-09-2011

Akkúrat TobbZ tókst af mér orðið :)

eftir fylkismadur 08:20 22-09-2011

Allt tal hér á spjallinu um að stjórnin sé eða hafi ekki verið tilbúin að sýna metnað og annað er tóm þvæla fyrir mér. Þeir peningar sem fást fyrir sölu leikmanna eiga að mínu mati 90% að renna beint í uppbyggingarstarf félagsins en ekki í greiðslur til annara félaga fyrir leikmenn nema þá að mjög takmörkuðu leyti. Einnig eiga þessi söluverð ekki að fara beint í launagreiðslur. Rekstur félagsins verður að vera sjálfbær og tekjur að standa undir gjöldum.

Aftur á móti er nú líklega að myndast nokkuð svigrúm til launagreiðsla þegar Addi og Gylfi eru farnir og hugsanlega menn eins og Valur Fannar, Fjalar og mögulega Ingimundur. Þetta svigrúm á tvímælalaust að nýta til að fá til félagsins öfluga leikmeinn og greiða þeim laun í samræmi við það.

Lykilatriði finnst mér vera að semja við þá leikmenn sem hafa áhuga og vilja á að vera áfram hjá félaginu, ég set þó spurningamerki við frammistöðu Vals Fannars í sumar þó það verði ekkert af honum tekið að hann hefur gert ótrúlega góða hluti fyrir okkar félag í gegnum tíðina og á fyrir það hrós skilið!

eftir fylkismadur 08:21 22-09-2011

Og eitt varðandi launamálin, þá tel ég augljóst að laun eiga vera árangurstengd, þannig að t.d. fall úr deild sé leikmönnum dýrt á meðan evrópusæti eða deildar/bikar meistaratitill gæti skilað rífelgum bónus til leikmanna.

Það má vel vera að þetta sé svona í dag, ég þekki það ekki.

eftir HelgiMar 10:45 22-09-2011

Ef það koma 60 milljónir í kassann þá skapast svigrúm til að gera meira til að styrkja hópinn. Þannig er það bara, allveg sama hvernig menn hyggjast verja þeim á endanum. Skuldir, uppbyggingarstarf, tryggja okkur einhverja bita á leikmannamarkaðnum eða eiga hann á reikningi.

eftir HelgiMar 10:47 22-09-2011

Svo varðandi comment frá nokkrum um að það beri að semja við þá leikmenn sem VILJA vera áfram hjá okkur. Fjöldi þeirra leikmanna sem eru á þeirri skoðun eykst ef það er verið að styrkja hópinn með topp leikmönnum og sýna metnað til að vilja vera í toppbaráttu.

eftir HelgiMar 10:50 22-09-2011

Hér er einn.... http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=115048

Ef menn eru ekki byrjaðir að vinna í þessum málum á fullu núna, hringja símtöl...koma á einhverjum samskiptum þá missa menn af þessum bitum.

eftir katabomm 12:21 22-09-2011

Það eru núna stöðugar fréttir um það að þessi og hinn séu að æfa og spá í KR og ÍBV. Afhverju? Þessir leikmenn vilja fá að spila með liðum sem eru í toppbaráttu og fara í evrópusæti. Þar er svo orðinn möguleiki að komast að erlendis. Fylkir verður því að setja markið hátt. Þannig eru meiri líkur á að félagið fái enhverja styrkingu sterkra leikmanna. Þannig að það er annaðhvort þetta eða að sætta sig bara við það að keyra á uppöldum mönnum og vera glaðir og sáttir, vera fyrir miðju og vonast til að lenda ekki í fallbaráttu.

eftir Mikki 03:01 26-09-2011

Fylki þarf að styrkja hópinn og það vel! Það eru margir leikmenn sem mega fara leita annað. Fylkir hefur misst of marga góða menn og það gengur ekki lengur að stija á rassgatinu og hugsa það að styrkja ekki hópinn. Kannski er það vilji hjá stjórninni að vera í endalausu miðjuhnoði eða fallbaráttu.
Það er nóg af leikmönnum sem hægt er að fá en vanda þarf valið. Ekki kaupa bara til að kaupa. Við eigum fullt af ungum leikmönnum en ég ég set spurningamerki við þá alla næsta sumar, þeir eru ungir og það er nægur tími fyrir þá að sanna sig. Það ríkir mikil vonbrigði með leik liðsins í sumar á meðal stuðningsmanna, og andinn er furðulegur í Árbænum.
T.d var ekki heyrandi í stuðningsmannaliði á leikjum liðsins í sumar, það eitt segir heilmikið um andann. Ég var einn að stofnendum "Djöflagengisins" um aldarmótin, þá var stuð! Klúbburinn stóð vel við bakið á okkur og hópurinn var öflugur og stóð sig með prýði. Nú heyrist ekkert á pöllunum, Það eru meiri læti í kirkjugarði en í „Kidda Tomm“ þetta sumarið. Þessu verður að breyta! Klúbburinn verður að styðja við bakið á stuðningsmannaklúbbnum og það verður að hvetja liðið.
Maður er fyrir löngu komin með nóg af þessu árangurleysi. Við þurfum að girða í brók og bretta upp ermar. Fólk er farið að þyrsta í alvöru árangur í Árbænum.
Áfram Fylkir

eftir HelgiMar 03:59 26-09-2011

Að mörgu leiti sammála þér Mikki. Það er eins og menn séu búnir að gefast uppá því að reyna að vera í toppbaráttu eins og þeirri sem við vorum í fyrir fyrir nokkrum árum. Að það sé bara allt í fína að vera að berjast um miðja deild. Það þarf að fá smá neista í klúbbinn aftur.

eftir HelgiMar 04:01 26-09-2011

Sendum þennan þráð sem við erum inná núna á stjórnina og meistaraflokksráð til að tryggja að þeir fái örugglega þetta feedback.

eftir thin 03:18 27-09-2011

Góðan daginn. Mér leikur forvitni á að vita hvar Fylkir fékk 60 milljónir í sumar? Fór þessi peningur ekki í að greiða skuldir félagsins? Skuldir voru nálægt þessari tölu því ætti það þá að vera rekið á núlli. Þá er spurning ætla menn að hella sér í skuldir aftur upp á von og óvon um gott gengi næsta sumar ? Er þá ekki miklu sniðugra að eyða einhverju í Lottó þar sem vinningslíkur eru betri?

eftir HelgiMar 02:09 28-09-2011

Það hefur örugglega farið slatti uppí skuldir, án efa. Staðan ætti því að vera mun betri og svigrúmið meira. Þessir peningar voru salan á Andrési Má, lánssamningur Ingimundar, uppeldisbætur vegna sölu Ragga Sig frá AIK til KFC og síðan var einn ungur leikmaður seldur sem ég man ekki í svipinn hvað heitir. Samtals gera þetta víst á bilinu 55 - 60 milljónir.

eftir Krissi 02:22 29-09-2011

Helgi- Kappinn heitir Ragnar Bragi Sveinsson og var seldur til Kaiserslautern í Þýskalandi

eftir HelgiMar 05:42 29-09-2011

Takk fyrir það.

eftir katabomm 09:57 29-09-2011

Sendum þennan þráð sem við erum inná núna á stjórnina og meistaraflokksráð til að tryggja að þeir fái örugglega þetta feedback.
Gerir það einhver hér? Eða les einhver þeirra spjallið? Fín umræða í gangi.
Á ekki tippari vikunnar að fara að koma inn svo maður geti tekið þátt?
Grindavík á eftir að vinna ÍBV þannig að hvaða lið fellur?

eftir HelgiMar 09:29 30-09-2011

Þór.

eftir haukur 10:26 30-09-2011

jæja, óli þórðar að beila á okkur fyrir víkinga. þá er bara spurning... hvern skal fá til að taka við?

eftir ES 01:50 30-09-2011

Já það er margt til í þessu. Annars tel ég að við ættum að krækja í einhvern virkilega góðan þjálfara og borga soldið meira en við höfum gert. Það er nóg að sjá hvernig Bjarni Jó hefur gengið með Stjörnuna hann hefur aðalega byggt á heimamönnum og þeir eru að berjast um Evrópusæti!

eftir Mikki 07:30 1-10-2011

Sorglegt að Óli sé að yfirgefa okkur sérstaklega í ljósi þess að nú eru kannski til peningar til að styrkja liðið. Hefði viljað halda Óla enda góður þjálfari.

eftir HelgiMar 09:51 3-10-2011

Er ekkert að gerast í þjálfaramálum eða leikmannamálum.... það væri flott að fá að vita hvað er raunverulega verið að vinna í þeim málum.

eftir Mikki 12:15 3-10-2011

Sá að það var verið að ræða það að Páll Einars eigi að taka við liðinu. Ég vona ekki! Miklu betri kostir þarna úti

eftir HelgiMar 02:46 3-10-2011

http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=115600 Slúðurpakkinn.

Væri ekki svolítið flott að reyna að fá Tryggva Guðmundssoon til að vera spilandi aðstoðarþjálfari. Hann gæti slegið markametið í árbænum. Ekki óraunhæft myndi ég halda ? Hugsa svolítið stórt núna ?

eftir Mikki 09:14 5-10-2011

Það er líka algjört lykilatriði að semja við þá leikmenn sem eru með lausan samninga. Held að það verði ekki gerð nein gloría í leikmannakaupum þetta árið en við verðum allavega að tryggja okkr þá sem fyrir eru nema við vilja stefna beina leið niður í 1 deild næsta sumar. Það er 8 mánuðir í næsta Íslandsmót byrji, við skulum vona að eitthvað gott gerist.

eftir HelgiMar 03:21 10-10-2011

Hvað með þennan leikmann.... getum við notað þennan til að auka breiddina. Það er eins og mig minni að það hafi komið ÍR-ingur á sama aldri til okkar í fyrra...sem var sömuleiðis fyriliði ÍR. :)

eftir HelgiMar 04:01 10-10-2011

http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=115899 ... þetta gengur ekki. Semja við manninn. Hann vill alvöru þjálfara þannig að það þýðir að menn verða standa sig þar.

eftir Krissi 12:15 11-10-2011

Hvaða leikmann í ÍR ertu að tala um Helgi?

eftir HelgiMar 09:20 11-10-2011

...æ já sorry. Linkurinn hefur eitthvað tapast. Árni Freyr... http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=115893 Veit lítið um hannþ... var bara að spyrja.

eftir Gunni107 09:13 12-10-2011

sælir allir ég er ánægður með ráðningu nýs þjálfara okkar held að hann muni nota okkar frábæru ungu leikmenn og ná í 3-4 menn peningamál okkar hafa verið í ólestri lengi sem og rekstur og stjórn félagsins þetta hefur verið á niður leið lengi enda lítil sem engin endurnýjun í stjórnun félagsins men eru orðnir metnaðarlausir fyrir löngu síðan og vita ekki sinn vitjunartíma það komast ekki nýjir að hjá félaginu á meðan, hafa menn spáð í það að kannski vilja samningslausir leikmenn ekki semja við núverandi valdhafa,ef svo er þá afhverju?af hverju er aðstoðarþjálfari 1 flokks ekki aðalþjálfari 2 flokks?þá veit aðalþjálfari minstakosti hvaða leikmenn er hægt að nota úr 2 flokki ekki eins og gert var í sumar hvorki óli né kiddi fylgdust neitt með leikjum eða æfingum hjá 2 flokki ég vona að Ásmundur taki upp betri vinnubrögð og komi með tæknibolta ekki kick and run og muna strákar að mæta á leiki ég sakna Mikka og Helga más koma svo Áfram Fylkir.

eftir Mikki 09:04 13-10-2011

Ég held að næstu vikur muni skipta gríðarlegu miklu máli hvað varðar margt. Við munum sjá hverjir fara og hverjir halda áfram og er það viss yfirlýsing þeirra til nýs þjálfara sem fara frá klúbbnum. Ég vona svo innilega að við höldum öllum og bætum í. Við þurfum að lagfæra vörnina, Nælum okkur í Atla Svein og Reyni Leós, yrði eitrað miðherja par. En svo er líka mikilvægt að klára þetta stúku mál, við viljum ekki spila í Laugardalnum næsta sumar! Ég vil svo minna Gunna á að ég mætti á lang flesta leiki liðsins í sumar og mun gera en betur næsta sumar í nýrri stúku, og horfa yfir lautina með bros á vör og á meðan hljómar brjálaður stuðningsmannasveit undir. Við verðum í topp þremur sætunum næsta sumar!

eftir Gunni107 07:36 13-10-2011

samála mikka

eftir HelgiMar 01:13 14-10-2011

Hvernig lýst mönnum á þennan ÍR-ing sem við vorum að gera tilboð í ?

eftir BJ 01:27 14-10-2011

Vel. Mjög vel.