Valur 2-0 Fylkir
skrifað 07-08-2008 (3 athugasemdir)
Fylkir tapaði í kvöld 2-0 fyrir Val á útivelli. Ágætis leikur hjá Fylki en svekkjandi að skora ekki mark og fá eitthvað úr leiknum. Næstu tveir leikir eru gegn liðunum fyrir neðan okkur og þar þurfum við sigra.


eftir einaras 11:22 8-08-2008
myndir úr leiknum á:http://www.flickr.com/photos/11231525@N02/
eftir BJ 11:29 8-08-2008
Mjög mikil batamerki á liðinu undanfarið og á venjulegu tímabili þá hefði þetta bara fallið undir baráttu leik sem féll með hinu liðinu. Þetta er allt öðruvísi tap en t.d. gegn Blikum, KR, Fram (2x). Nú er bara að halda áfram og taka fleiri stig. Mér fannst við heldur betri en Valsmenn í gær þó það hafi vantað fleiri dauðafæri, en Valsmenn sigruðu og það var ekki ósanngjarnt, jafntefli hefði mér þótt sanngjörnust niðurstaða.
Nú eru næstu tveir leikur gegn HK og ÍA, og ég tel að eftir þessa tvo leiki verði ljóst hversu harðri fallbaráttu við verðum í til lok. Sigur í þessum tveimur leikjum held ég að komi okkur mjög langt. Ég er ánægður með 4 stig úr þessum leikjum sama hvernig þau skiptast. Þá erum við alltaf minnst 6 stigum frá þessum liðum.
eftir tom 12:59 8-08-2008
Tökum HK í næsta leik. Hvet Fylkismenn til að fara að láta sjá sig á vellinum þó það gangi ekki sérlega vel þessa dagana!