Fylkir tapaði fyrir Þór
skrifað 15-09-2011 (0 athugasemdir)
Fylkismenn töpuðu 2-0 fyrir Þórsurum á Akureyri í kvöld. David Disztil og Sveinn Elías Jónsson skoruðu mörk Þórsara. Fylkismenn eru þar með nokkurnveginn fastir í 6.sætinu með 25 stig og sigla hinn fræga lygna sjó.
Lið Fylkis: Fjalar Þorgeirsson – Trausti Björn Ríkharðsson, Þórir Hannesson (Davíð Þór Ásbjörnsson '60), Valur Fannar Gíslason (F), Tómas Joð Þorsteinsson - Baldur Bett (Elís Rafn Björnsson '60), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Hjörtur Hermannsson - Ásgeir Örn Arnþórsson, Albert Brynjar Ingason, Rúrik Andri Þorfinnsson (Styrmir Erlendsson 46').
Ónotaðir varamenn: Bjarni Þórður Halldórsson (M), Andri Már Hermannsson, Benedikt Óli Breiðdal, Ásgeir Eyþórsson.
Þar sem starfsmenn Fylkismanna.is höfðu ekki tök á að fara norður verður engin umfjöllun eða viðtöl eftir þennan leik. Við bendum fólki á að skoða umfjöllun og viðtöl á fótbolta.net, vísi.is, mbl.is og sport.is.

