Fylkisvöllur
eftir haukur 03:40 31-08-2011
mig minnir einsog að síðast þegar að var gáð hafi allt ennþá setið í strand hjá okkur Fylkismönnum og borgin löngu búin að afgreiða málið. Leiðréttið mig endilega ef mig misminnir.
Er þetta ekki bara spurning um að smella sætum í restina af stúkunni og henda upp einhverju mjög basic þaki? eða einhverja álíka kreppulega leið með einhverskonar skítamixi sem tryggir okkur áframhaldandi veru í Árbænum. Allir aðrir vellir eru alltof langt frá Elliðaánum til þess að teljast heppilegir kostir.
eftir Stinni 08:17 31-08-2011
Getur einhver með vitneskju um þetta tjáð sig um þetta hér og sagt nákvæmlega hvað er að frétta ?
Ég fíla heldur ekki að dúndra upp málamiðlunarþaki sem endar með að vera viðvarandi ástand næsta áratuginn.
eftir tom 02:58 5-09-2011
Algjört rugl að ekki fáist skýr svör varðandi þetta! Fylkismenn.is mega kanna málið
eftir Stinni 06:48 12-09-2011
Já, við verðum svolítið að vinna þetta eftir lýðræðislegum leiðum. Verðum að fá að vita nákvæma stöðu á málunum svo hægt sé að þrýsta á embættismenn og um leið færa haldbær rök fyrir málefnum Fylkis. Bætt aðstaða áhorfanda er ekki bara einhver gróðasjónarmið knattspyrnudeildar heldur sjálfsögð framför hjá Fylki sem íþróffafélagi. Knattspyrna hefur verið þungamiðjan í glæsilegri sögu félagsins, en aðrar greinar komið öflugar inn í seinni tíð. Stúka með þaki og aðstöðu fyrir leikmenn og aðra þjónustu í kringum vallarstæðið myndi gera upplifun allra betri. Um leið og fólki líður vel sama hvernig viðrar er það tilbúið að sjá sína menn etja kappi við okkar menn. Ég reikna með að við gætum aukið meðaltals ásókn gríðarlega með þessu og það telur hjá félagi með takmarkað fjármagn. Með auknum tekjum knattspyrnudeildar minkar jafnvel þörfin á fjármagni frá aðalstjórn. Því segi ég að reisuleg stúka sé eitt af mikilvægustu málefnum aðalstjórnar og er það ósk mín að eitthvað gerist sem gefur í hið minnsta hugmynd um tímaramma. síðasta ár undanþágu KSÍ er að ljúka og svo spilum við bara á Vodafonevellinum heimaleikina næsta sumar, einmitt !
Við viljum stúku og spila alla heimaleiki í Árbænum okkar hvort sem það er í deild eða evrópukeppni !
Áfram Fylkir !
eftir Kjartan 02:27 14-09-2011
Sælir félagar
Það er ekki meiningin að svelta stuðningsmenn á upplýsingum um stöðu mála. Í oktober í fyrra var breytt deildiskipulagi fyrir Fylkissvæðið og nú er búið að teikna stúkuna. Aðalstjórn vinnur nú að því að fá fjármagn í verkefnið frá borginni og er það verkefni næstu vikna, Fáist fjármagn eða samningur um það verður hafist strax handa við að reisa mannvirkið. Eins menn hafa komið inná erum við á síðasta ári á undanþágu fyrir að spila við þessar aðstæður. Við verðum að vona að Aðalstjórn félagsins verði eitthvað ágengt með Borgina þannig að við fáum langþráða aðstöðu fyrir okkar frábæru stuðningsenn og þurfum ekki að leita á náðir annara með spila heimaleiki okkar í efstu deild þar sem við erum öruggir með spila þar á næsta ári eða 13. keppnistímabilið í röð. Svo er kominn til að vinna þetta mót.
Áfram Fylkir
eftir katabomm 11:05 14-09-2011
Takk Kjartan. Gott að fá að heyra hvað er að gerast og vonandi gengur þetta allt hratt og vel upp bæði hvað varðar fjármagn og svo vinnu.
eftir fylkismadur 08:12 15-09-2011
Frábært að fá svör frá stjórn. Okkar fallega félag á svo sannarlega skilið að eiga fallegan heimavöll.
Gríðarlega gaman væri ef Fylkismenn.is gæti birt þessar teikningar af stúku sem nú eru tilbúnar.
eftir TobbZ 11:43 16-09-2011
Já vonandi að það fáist vilyrði hjá borginni í þessa framkvæmd, það yrði skelfilegt að leika á öðrum velli en Fylkisvelli næsta sumar. Þetta eru flottar teikningar af nýju stúkunni í Árbæjarblaðinu.
eftir tom 12:05 19-09-2011
http://www.skrautas.is/arbaejarbladid/2011
Það styttist vonandi í að 9. tbl. komi hérna inn. Teikningarnar eru þar.
eftir BJ 10:22 23-09-2011
Nú hefur Vestmannaeyjabær samþykkt að koma að fjármögnun stúkubyggingar fyrir ÍBV. Verður Fylkir eina liðið á næstu leiktíð sem ekki hefur tilskylda aðstöðu til að leika í Pepsi-deild?!
eftir fylkismadur 11:29 23-09-2011
hér eru myndirnar úr árbæjablaðinu
http://imageshack.us/f/830/stukal.jpg/
eftir haukur 12:40 23-09-2011
ég tel að það sé borin von að við fáum fjármagn frá borginni til þess að klára stúkuna á næstunni, en maður veit svosem aldrei. Á morgun verður slétt ár frá því borgarráð samþykkti deiliskipulagið: http://www.fylkir.com/index.php?option=com_content&view=article&id=673&Itemid=65
eftir Mikki 03:10 26-09-2011
Algjört lykilatriði að við spilum ekki á öðrum velli!! Eins gott að borgin veiti félaginu fjámagn til að byggja stúkuna. Löngu komin tími til.
eftir Elliði 02:41 4-10-2011
Það verður væntanlega erfiðara að fá öfluga leikmenn og þjálfara ef Fylkir þarf að leika á Laugardalsvelli á næsta ári.
eftir TobbZ 12:37 11-10-2011
Ef þessi stúka fer ekki í byggingu núna fyrir næsta season, þá væri eina vitið að tala við Víking og reyna að semja við þá að fá að leika á vellinum þeirra á næsta tímabili. Því það yrði ömurlegt að spila á hinu illa hannaða mannvirki með tvöfalda hlaupabraut í Laugardalnum.
eftir Dilbert 05:02 17-10-2011
Hvar værum við í röðinni með alvöru aðstöðu. Í stað þess að bjóða verstu aðstöðu í deildinni.
http://fotbolti.net/fullStory.php?id=116211
Áfram Fylkir, að eilífu...
eftir Stinni 05:10 10-11-2011
Hver getur spurt út í þetta, setja pressu á svör... er hreyfing frá því fyrir 4 vikum síðan ????
Verðum að vera frekari núna, mikið í húfi og hver dagur er farinn að telja !!!!
eftir haukur 03:59 10-11-2011
var að skrifa póst og spurja út í málið, með vísan í bæði samþykkt borgarráðs: http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-725/4398_view-793/ og deiluskipulagsins sjálfs: http://reykjavik.is/Portaldata/1/Resources/skipbygg/skipulagsm_l/samthykkt_2010/Fylkisvegur6-Fylkir-27okt2010s.pdf
mig grunar sterklega að svörin verði að ekki séu til peningar hjá borginni fyrir þessari framkvæmd, en við sjáum til hvað þau segja.
eftir haukur 01:37 15-11-2011
Svörin sem ég fékk í þessum blessuðu stúkumálum eru á þá leið að borgin á ekki pening einsog er, en er tilbúin að reyna að þrýsta á KSÍ til að veita frekari undanþágur og samkvæmt upplýsingum borgarinnar er Vestamannaeyjabæjar í svipuðum hugleiðingum, þar sem ekki ku vera til peningur í stúku handa ÍBV heldur.
Hinsvegar liggur alveg fyrir samningur milli borgar og Fylkis frá góðærisárunum, sem mér skilst að verði staðið við, svona þegar að peningarnir eru á annað borð til, hvenær svosem það verður.
eftir jondri 07:31 14-01-2012
http://betri-hverfi-arbaer.betrireykjavik.is/priorities/777-stuka-vid-fylkisvoll
um að gera að allir láti vel í sér heyra á þessari síðu.



eftir fylkismadur 02:41 31-08-2011 (22 athugasemdir)
Ég er ekki viss um að allir hér átti sig á því en allar líkur eru á að í maí næstkomandi hefji Fylkir sögulegt tímabil í efstu deild þar sem ekki verður lengur leyfilegt að spila á Fylkisvelli.
Ég legg til að ritstjórn fylkismenn.is fari á stúfana og krefji framkvæmdarstjóra og stjórn Fylkis svara ásamt því að krefja borgaryfirvöld um svör.
Skrá athugasemd