Ingimundur á lán til Sandness Ulf
skrifað 31-08-2011 (4 athugasemdir)
Ingimundur Níels Óskarsson, leikmaður meistaraflokks Fylkis, hefur verið lánaður til norska fyrstu deildar félagsins Sandnes Ulf og gildir samningurinn til næstu áramóta.
Sandes Ulf er sem stendur efst í fyrstu deild og stefnir á efstu deildar sæti, en með liðinu leikur Steinþór Freyr Þorsteinsson, fyrrum Stjörnumaður og leikmaður íslenska landsliðsins.
Ingimundur hefur spilað 16 leiki í efstu deild í ár, skoraði í þeim 7 mörk, og verið einn af lykilmönnum liðsins. Við óskum Ingimundi góðs gengis við þessa áskorun.
tekið af fylkir.com
Það er ljóst að þetta eru alls ekki góð tíðindi fyrir okkur Fylkismenn sem þurfum á öllum okkar sterkustu leikmönnum að halda. Liðið er reyndar sloppið úr öllu sem kallast fallbarátta og möguleiki á Evrópusæti er einnig mjög fjarlægur og því hefur ákvörðunin verið auðveldari að leyfa leikmanninum að fara.


eftir gormur 02:45 31-08-2011
það er greinilega lítill sem enginn metnaður hjá stjórnarmönnum fylkis fyrir þessu liði og maður fer að spyrja sig hvort þeir ættu ekki að fara að finna sér eitthvað annað að gera. liðið er sloppið við fall og þá eru menn greinilega sáttir og saddir!! engu að síður frábært fyrir Ingimund og óska ég honum alls hins besta!!
eftir haukur 03:35 31-08-2011
Nú spyr ég, er félagið svona rosalega á kúpunni að við verðum að taka öllum tilboðum sem berast eða eru menn virkilega bara saddir afþví við erum nokkuð öruggir með að vera lausir við fall?
Annars er þetta flott tækifæri fyrir Ingimund og það hefði kannski verið illa gert að standa í vegi fyrir honum þar sem Evrópudraumurinn er fátt lítið annað en mjög svo fjarlægur draumur. Eru einhver ákvæði um kaup að tímabili loknu eða er þetta bara illa basic lánsdíll?
eftir katabomm 05:45 31-08-2011
Gott og gaman fyrir Ingimund að fá tækifæri. En ég var að vona að að við myndum enda mótið með stæl og þá munar svo sannarlega um hann. Nú má búast við einhverjum meiðslum eins og venjulega og leikbönnum í lokaumferðunum og þá fer maður að spyrja sig hvort hægt verði að stilla upp liði. Það ætti að vera morgunljóst að ef við ætlum að selja eða lána frá okkur afburðaleikmenn þá þurfum við sterka aðkomumenn með uppöldum Fylkismönnum. En Ingimundur, takk fyrir sumarið og gangi þér sem best.
eftir Valli 11:08 1-09-2011
Til hamingju Ingi og gangi þér vel. Þetta eru hinsvegar ekki góðar fréttir fyrir liðið okkar en ég er ekki sammála þeim sem segja þetta vera metnaðarleysi. Hefði verið sanngjarnt að taka þetta tækifæri af honum? Verum jákvæð og áfram Fylkir