Umfjöllun: 21 árs bið á enda
skrifað 30-08-2011 (5 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Keflavík 1 - 2 Fylkir
0-1 Albert Brynjar Ingason ('21)
1-1 Guðmundur Steinarsson (víti) ('36)
1-2 Ingimundur Níels Óskarsson (víti) ('45)
Fylkismenn unnu sögulegan sigur á Keflvíkingum þegar þeir höfðu betur 1-2 á Nettóvellinum. Albert Brynjar Ingason og Ingimundur Níels Óskarsson sáu um markaskorun fyrir Fylki en Guðmundur Steinarsson skoraði mark Keflvíkinga.
Tvær breytingar voru á Fylkisliðinu frá leiknum gegn Breiðabliki. Ingimundur og Valur Fannar snéru til baka úr leikbanni og komu inn í stað Þóris sem tók út leikbann og Tomma sem hafði átt við veikindi að stríða en var þó til taks á bekknum.
Ágætis kraftur var í Fylkisliðinu strax í upphafi og greinilegt að leikmenn ætluðu að selja sig dýrt. Fyrsta færið fengu hinsvegar Keflvíkingar eftir um kortersleik þegar þeir fengu aukaspyrnu rétt utan teigs. Spyrnusérfræðingurinn Guðmundur Steinarsson átti þá hörkuskot sem Fjalar lenti í vandræðum með en Gústi náði að skalla boltann aftur fyrir endamörk á elleftu stundu.
Á 20 mínútu fengu svo Fylkismenn fínt tækifæri. Hjörtur átti þá flotta hornspyrnu sem fór beint á kollinn á Val Fannari en Ómar í marki Keflavíkur varði glæsilega í fyrsta en alls ekki eina skiptið í leiknum. Fylkismenn fengu aðra hornspyrnu upp úr þessu og hún endaði með marki.
Aftur kom Hjörtur með hættulega sendingu fyrir og Alli var fyrstur á boltann og skallaði hann laglega inn. Ekki á hverjum degi sem kallinn skorar með skalla og því ber að hrósa honum sérstaklega fyrir þetta mark.
Örskömmu síðar fengu Fylkismenn kjörið tækifæri til að bæta við öðru marki þegar Alli tók á mikinn sprett upp kantinn og lagði boltann út á Baldur Bett sem var einn gegn Ómari en skot Baldurs var ekki nógu gott og Ómar varði.
Gestirnir úr Árbænum voru svo áfram miklu líklegri til að skora og spiluðu á köflum mjög vel sín á milli og voru einnig nokkuð þéttir varnarlega. Helsta hætta Keflvíkinga skapaðist í kringum Guðmund Steinarsson sem átti nokkur hættuleg skot utan teigs.
Á 36 mínútu fengu Keflvíkingar síðan hræódýra vítaspyrnu. Þeir áttu þá hornspyrnu og eins og venja er í þeim var hörð barátta um boltann. Allt í einu heyrist í flautu dómarans og virtust þá flestir halda að verið væri að dæma sóknarbrot á Keflavík en svo var ekki. Vilhjálmur Alvar dómari dæmdi vítaspyrnu á eitthvað sem hann einn sá í teignum. Gummi Steinars fór á punktinn og skoraði af öryggi þó að Fjalar færi í rétt horn.
Vilhjálmur Alvar dæmdi síðan aðra vítaspyrnu rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var hún einnig í ódýrari kantinum. Ingimundur átti þá skiptingu yfir til hægri á Trausta sem kom á fleygiferð en varnarmaður Keflvíkinga flæktist eitthvað fyrir honum og Trausti féll við.
Ingimundur tók vítið og skoraði en Ómar var nálægt því að verja skot hans. Skömmu síðar var flautað til leikhlés og Fylkismenn yfir í hálfleik 1-2.
Seinni hálfleikur var nánast eign Fylkisliðsins frá upphafi til enda. Vel gekk að finna Alla vel í fætur upp á topp en hann var mjög duglegur að koma niður og sækja boltann og koma honum í spil. Oft voru fínir möguleikar í að komast bakvið vörnina og færin urðu þónokkur í seinni hálfleik.
Eftir langa sendingu fram völlinn skallaði Ingimundur boltann niður fyrir Alla sem fékk boltann einhvern veginn í sig og hann sveif vel yfir markið.
Fylkismenn gerðu síðan réttilega tilkall til þess að fá vítaspyrnu þegar Haraldur Freyr ríghélt í Val Fannar og dró hann niður. Vilhjálmur dómari var hins vegar ekki á því að dæma fleiri víti. Þetta var þó líka í eina skiptið sem hann hefði átt að dæma víti.
Hinn árvökuli ljósmyndari Einar Ásgeirsson náði þessum myndum af atvikinu
Varnarmenn Keflvíkinga réðu ekkert við þá Alla og Ingimund í seinni hálfleik. Alli komst í góða stöðu hægra megin og sendi á Ingimund sem kom með honum í sóknina. Hann náði hinsvegar alls ekki nógu föstu skoti og Ómar átti ekki í vandræðum með að verja. Ingimundur átti síðan feykilega góðan sprett sem endaði með ágætis skoti en enn og aftur var Ómar vel á verði í markinu.
Hjörtur Hermannsson sem átti stjörnuleik á miðjunni hjá Fylki átti síðan feykilega öflugt hlaup innfyrir vörnina en náði ekki nægilega góðu skoti og enn á ný var það langbesti maður Keflvíkinga í leiknum Ómar markvörður sem bjargaði.
Ingimundur og Alli voru áfram aðgangsharðir og eftir fína sendingu þess fyrrnefnda var Alli í býsna fínu færi en auðvitað var Ómar mættur til að verja skot hans í horn.
Fylkismenn voru í miklum ham á þessum kafla og öll þessi færi sem hér eru talin upp komu á stuttum kafla frá 60-65 mínútu. Boltinn gekk gríðarlega hratt á milli manna og auðveldlega gekk að tæta vörn Keflvíkinga sem var ekki upp á marga fiska í leiknum.
Þriðja markið hefði verið gríðarlega þýðingarmikið til að stúta leiknum en það lét á sér standa og þegar leið á fór að draga af Fylkismönnum og Keflvíkingar efldust aðeins. Þeir höfðu þó lítinn áhuga á að byggja upp sóknir með því að spila boltanum á milli sín og allur sóknarleikur þeirra í seinni hálfleik gekk út á að dúndra boltanum langt fram á Gumma Steinars sem síðan átti að búa eitthvað til. Varnarmenn Fylkis stóðu sína plikt mjög vel og Keflvíkingar komust því lítt áleiðis.
Alveg í blálokin kom síðan eina hættulega færi Keflvíkinga í seinni hálfleik. Dómarinn gaf þeim þá algjörlega óskiljanlega aukaspyrnu rétt utan teigs, Haraldur Freyr tók ágætis spyrnu yfir vegginn en Fjalar gerði vel í að verja. Að því loknu gall lokaflautið og stigin þrjú þar með í höfn hjá okkar mönnum.
Sigurinn var gríðarlega mikilvægur til að spyrna sér enn lengra frá botnliðunum og skilja Keflvíkinga þar eftir. Við erum nú endanlega öruggir með sæti okkar í deildinni og erum enn í sjötta sætinu fimm stigum á efir Stjörnunni. Sigur okkar var feykilega sanngjarn og ef ekki hefði verið fyrir frábæran leik Ómars í Keflavíkurmarkinu hefðum við unnið stærri sigur.
Næsti leikur er ekki fyrr en 11. september á heimavelli gegn særðum Víkingum. Víkingar hafa verið hörmulegir í allt sumar og hafa ekki unnið leik síðan 3. maí og eru svo gott sem fallnir. Okkar menn mega samt sem áður ekki vera værukærir í þeim slag og verða að mæta til leiks með sömu leikgleði og af sama krafti og í leiknum í Keflavík.
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 7
Trausti Björn Ríkharðsson 7
Kristján Valdimarsson 8
Valur Fannar Gíslason 7
Kjartan Ágúst Breiðdal 7
Baldur Bett 7
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 8
Hjörtur Hermannsson 8
Ásgeir Örn Arnþórsson 7
Ingimundur Níels Óskarsson 8
Albert Brynjar Ingason 9
Tómas Joð Þorsteinsson 7
Rúrik Andri Þorfinnsson -
Jóhann Þórhallsson -
Keflavík: Ómar Jóhannsson - Guðjón Árni Antoníusson, Adam Larsson (Jóhann Birnir Guðmundsson ('72), Haraldur Freyr Guðmundsson (F), Viktor Smári Hafsteinsson - Einar Orri Einarsson, Arnór Ingvi Traustason (Magnús Þór Magnússon '49) - Bojan Stefán Ljubicic, Guðmundur Steinarsson, Hilmar Geir Eiðsson - Magnús Þórir Matthíasson (Magnús Sverrir Þorsteinsson '72).
Ónotaðir varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson (M), Brynjar Örn Guðmundsson, Sigurbergur Elísson, Grétar Ó. Hjartarson.
Fylkir: Fjalar Þorgeirsson – Trausti Björn Ríkharðsson, Valur Fannar Gíslason, Kristján Valdimarsson (F), Kjartan Ágúst Breiðdal (Tómas Joð Þorsteinsson '56) - Baldur Bett, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Hjörtur Hermannsson - Ásgeir Örn Arnþórsson (Jóhann Þórhallsson'77), Albert Brynjar Ingason, Ingimundur Níels Óskarsson (Rúrik Andri Þorfinnsson '86).
Ónotaðir varamenn: Bjarni Þórður Halldórsson (M), Elís Rafn Björnsson. Davíð Þór Ásbjörnsson, Andri Már Hermannsson.
Markskot: Keflavík 10 (7) - Fylkir 12 (10)
Horn: Keflavík 4 - Fylkir 6
Aðstæður: Völlurinn frábær og veðrið með því allra besta sem menn muna eftir í Keflavík.
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson 4 - Mjög slakur
Aðstoðardómarar: Smári Stefánsson og Ásgeir Þór Ásgeirsson
Maður leiksins: Albert Brynjar Ingason
Gul spjöld: Baldur Bett ('9), Valur Fannar Gíslason ('17) , Einar Orri Einarsson ('22), Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('29), Magnús Þór Magnússon ('90).
Áhorfendur: 560
Hér er hægt að skoða fjölmargar myndir úr leiknum sem Einar Ásgeirsson tók.
Viðtöl sem tekin voru eftir leik eru síðan væntanleg innan skamms.


eftir Stinni 03:23 31-08-2011
Glæsilegt að vanda !
eftir Valli 09:30 31-08-2011
Frábær umfjöllun - Frábær sigur !
eftir ES 11:38 31-08-2011
Já mjög svo mikilvægur sigur og halda svo sama striki!
eftir haukur 01:15 31-08-2011
glæææææsilegt
eftir TobbZ 02:06 31-08-2011
Klassa leikur, gaman að sjá trúnna hjá leikmönnum í þessum leik sem hefur vantað í síðustu leikjum. Koma svo og klára tímabilið með sæmd. Áfram Fylkir. Jee