STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Enn og aftur búið í hálfleik

skrifað 19-08-2011 (0 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Valur 3 - 1 Fylkir
1-0 Kolbeinn Kárason ('19)
2-0 Guðjón Pétur Lýðsson ('37)
3-0 Kolbeinn Kárason ('45)
3-1 Valur Fannar Gíslason ('52)

Fylkismenn töpuðu 3-1 fyrir Valsmönnum á Vodafone vellinum sl. mánudag. Enn var staðan okkur einkar óhagstæð þegar flautað var til leikhlés en Valsmenn höfðu 3-0 yfir í hálfleik og gátu tekið lífinu með ró í seinni hálfleik. Valur Fannar Gíslason náði að klóra í bakkann fyrir Fylkismenn áður en yfir lauk og loka niðurstaðan 3-1.

Fylkismenn stilltu upp óbreyttu byrjunarliði frá því í leiknum gegn Fram. Hjá Valsmönnum vantaði hins vegar Harald Björnsson sem var í agabanni og þá kom Kolbeinn Kárason nýr inn í framlínuna og Andri Fannar Stefánsson fremst á miðjuna.

Leikurinn var í þó nokkru jafnvægi í upphafi og Fylkismenn komust meðal annars í mjög góða sókn þegar Ingimundur komst upp hægra megin og átti fyrirgjöf sem fór í Atla Svein og aftur fyrir endamörk en hefði allt eins getað endað í netinu.

Fylkismenn áttu ágætis kafla í upphafi og virkuðu ágætlega ferskir. Valsmenn byrjuðu líka ágætlega og á 12 mínútu fékk Guðjón Pétur Lýðsson gott færi þegar hann komst inn í teiginn vinstra megin en þrumaði framhjá.

Valsmenn náðu síðan forystunni á 19 mínútu eftir klaufagang í vörn Fylkis. Valsmenn áttu þá hornspyrnu og Atli Sveinn náði skalla í átt að marki, Trausti náði að hreinsa frá en alls ekki nógu langt og beint á Kolbein Kárason sem skoraði af stuttu færi.

Valsmenn hertu tökin á leiknum eftir þetta og Fylkismenn náðu ekki að skapa sér teljandi færi. Haukur Páll áttii síðan fínt skot að marki sem Fjalar varði vel og Hlíðarendapilar voru áfram aðgangsharðir.

Á 37 mínútu kom svo annað mark Valsmanna og það var af ódýrustu gerð. Útspark fram völlinn, Kolbeinn vann Val Fannar í skalleinvígi og boltinn barst til Matthíasar á hægri kantinum sem sendi fyrir á Guðjón Pétur sem átti frekar slakt skot sem Fjalar varði en Guðjón náði boltanum aftur og skoraði. Þarna hefði Fjalar hugsanlega getað slegið boltann betur frá en einnig verður að setja spurningarmeki við Trausta sem hefði átt að geta komið boltanum frá þarna.

Fylkismenn voru slegnir út af laginu og síðan endanlega rotaðir rétt áður en flautað var til hálfleiks þegar Kolbeinn Kárason bætti við öðru marki sínu. Það var reyndar mjög glæsilegt mark hjá stráknum, en það verður að segjast að varnarmenn Fylkis létu hann líta aðeins of vel út í þessum leik.

Okkar menn höfðu reyndar fengið ágætis færi rétt áður þegar Tommi komst í gott færi eftir fína sókn en skot hans var varið.

í þriðja skiptið í sumar var því hægt að tala um að leikurinn væri búinn í hálfleik því eins og menn vita er gríðarlega erfitt að vinna upp þriggja marka forystu þó að auðvitað sé allt hægt í fótbolta.

Fylkismenn náðu reyndar að minnka muninn strax á 52 mínútu þegar Valur Fannar stýrði boltanum laglega inn eftir frekar laust skot frá Gústa. Því miður tókst okkar piltum ekki að fylgja þessu marki nægilega vel eftir.

Færin í seinni háfleik voru í raun ekki ýkja mörg og Valsmenn sem voru í afar þægilegum málum fóru sér hægt og voru þéttir til baka. Fylkismenn fá þó hrós fyrir að reyna allan seinni hálfleikinn en því miður dugði það ekki til enda liðið komið í ansi erfiða stöðu.

Það er ekki hægt að skilja við leikinn nema að minnast á skondið atvik í fyrri hálfleik þegar Ásgeir Börkur átti tæpa stutta sendingu út á kant sem þó rataði á samherja. Þá heyrðist kallað úr stúkunni „Ekki tapa boltanum Ásgeir" sem er ekki frásögum færandi nema fyrir þær sakir að Ásgeir svaraði til baka og sagði viðkomandi áhorfanda að þegja. Áhorfandinn var Margeir Þ. Sigfússon sem situr í meistaraflokksráði.

Næsti leikur okkar manna er gegn Breiðabliki á mánudagskvöldið á Fylkisvelli kl 18:00 og vonandi að menn nái að laga heimavallar árangurinn aðeins en síðustu heimaleikir okkar hafa verið hreinasta hörmung.

Stemmingin fyrir Fylkisliðinu það sem eftir er af móti er svo sem ekki mikil enda kannski ekki að miklu að keppa. Draumurinn um Evrópusæti er nánast horfinn og að sama skapi þurfum við engar áhyggjur að hafa af botnbaráttu því Fram og Víkingur virðast dæmd til að falla.

Samt sem áður eru enn sjö leikir eftir og menn hljóta að vilja gera vel í þeim. Nú er tækifærið til að hleypa yngri leikmönnum að á kostnað þeirra eldri og horfa til framtíðarleikmanna sem munu móta liðið á komandi árum. Einn þeirra er Hjörtur Hermannsson sem spilaði seinni hálfleikinn gegn Val en hann er aðeins 16 ára gamall. Hjörtur hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu en hann var meðal annars í u-17 landsliði Íslands sem sigraði í Norðurlandamótinu sem fór fram á dögunum. Þá hefur hann einnig leikið með U-19 ára landsliðinu og var fyrirliði þegar Íslenska liðið tók þátt í móti í Svíþjóð í júlí.

Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:

Fjalar Þorgeirsson 6

Trausti Björn Ríkharðsson 4

Valur Fannar Gíslason 5

Þórir Hannesson 5

Kjartan Ágúst Breiðdal 4

Gylfi Einarsson 6

Ásgeir Börkur Ásgeirsson 5

Tómas Joð Þorsteinsson 6

Ingimundur Níels Óskarsson 5

Albert Brynjar Ingason 5

Jóhann Þórhallsson 5

Hjörtur Hermannsson 6

Ásgeir Örn Arnþórsson 5

Andri Már Hermannsson -

Valur: Sindri Snær Jensson – Jónas Tór Næs, Halldór Kristinn Halldórsson, Atli Sveinn Þórarinsson (F), Pól Jóhannus Justinussen – Haukur Páll Sigurðsson (Sigurbjörn Hreiðarsson '68), Guðjón Pétur Lýðsson, Andri Fannar Stefánsson - Jón Vilhelm Ákason (Ingólfur Sigurðsson '62), Matthías Guðmundsson, Kolbeinn Kárason (Arnar Sveinn Geirsson '81).

Ónotaðir varamenn: Haraldur Björnsson (M), Hörður Sveinsson, Christian Mouritsen, Brynjar Kristmundsson.

Fylkir: Fjalar Þorgeirsson – Trausti Björn Ríkharðsson (Ásgeir Örn Arnþórsson '63), Þórir Hannesson, Valur Fannar Gíslason, Kjartan Ágúst Breiðdal - Tómas Joð Þorsteinsson, Gylfi Einarsson (F) (Andri Már Hermannsson '76), Ásgeir Börkur Ásgeirsson – Ingimundur Níels Óskarsson, Albert Brynjar Ingason, Jóhann Þórhallsson (Hjörtur Hermannsson '46).

Ónotaðir varamenn: Bjarni Þórður Halldórsson (M), Rúrik Andri Þorfinsson, Davíð Þór Ásbjörnsson, Baldur Bett.

Markskot: Valur 14 (7) - Fylkir 5 (3)

Horn: Valur 6 - Fylkir 7

Aðstæður: Völlurinn í toppstandi og fínt veður.

Dómari: Kristinn Jakobsson 6

Aðstoðardómarar: Sigurður Óli Þorleifsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson.

Maður leiksins: Kolbeinn Kárason

Gul spjöld: Ingimundur Níels Óskarsson ('47), Andri Fannar Stefánsson ('65), Þórir Hannesson ('72), Andri Már Hermannsson ('83), Valur Fannar Gíslason ('87).

Rauð spjöld: Andri Fannar Stefánsson ('87).

Áhorfendur: 928