Umfjöllun: Eyjamenn í þægilegri lautarferð
skrifað 04-08-2011 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 1 - 3 ÍBV
0-1 Þórarinn Ingi Valdimarsson ('8)
0-2 Tryggvi Guðmundsson ('24)
0-3 Tryggvi Guðmundsson ('43)
1-3 Ásgeir Örn Arnþórsson ('88)
Eyjamenn þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að hirða þrjú stig á Fylkisvelli. Þeir komust yfir snemma og bættu síðan við mörkum. Staðan var 0-3 í hálfleik og Fylkismenn áttu enga von eftir það. Fylkismenn náðu reyndar að klóra í bakkann rétt fyrir leikslok og lokatölur urðu 1-3.
Þó nokkur skörð voru hoggin í Fylkisliðið og munaði heldur betur um það. Addi er auðvitað farinn til Noregs og Gylfi, Baldur og Andri Már meiddir og þá var Tommi í leikbanni. Í ljósi þess var nokkuð óvænt að Þórir hafi byrjað leikinn á bekknum.
Eyjamenn voru mun grimmari í upphafi leiks og ætluðu sér greinilega að hirða öll stigin sem í boði voru. Fylkismenn voru hinsvegar ekki byrjaðir og virtustu bara bíða eftir því að fá á sig mark snemma eins og hefur gerst í undanförnum leikjum.
Eyjamenn lögðu leikinn vel upp og pressuðu Fylkismenn hátt á vellinum. Þórarinn Ingi Valdimarsson var færður í senterinn og miðverðir Fylkismanna réðu ekkert við hraða hans og kraft. Strax á annarri mínútu slapp hann framhjá vörn Fylkis en náði ekki nægilega góðu skoti sem sigldi vel framhjá.
Rasmus Christiansen fékk síðan fínt skallafæri eftir aukaspyrnu þegar hann var óvaldaður í teignum en hitti ekki markið. Ekki var það varnarmönnum Fylkis að þakka þarna að lenda ekki varð mark úr og enn heldur dekkningin áfram að vera afleit í föstum leikatriðum.
Á 8 mínútu gerðist svo það sem í stefndi, Eyjamenn komust yfir. Tryggvi Guðmundsson var með boltann úti hægra megin, Valur Fannar átti mispheppnaða skriðtæklingu og Trygggvi kom því boltanum óáreittur fyrir og beint á Þórarinn Inga sem var óvaldaður og skoraði af stuttu færi. Varnarleikur Fylkis í molum og enginn að dekka senterinn hjá Eyjamönnum.
Fylkismenn skánuðu aðeins eftir markið og aðeins betur gekk að láta boltann ganga. Eyjamenn voru þó áfram með undirtökin í leiknum. Á 24 mínútu dökknaði útlitið hjá okkar mönnum þegar Eyjamenn komust í 0-2. Tryggvi Guðmundsson fékk þá boltann og átti skot í Davíð Þór Ásbjörnsson og boltinn breytti um stefnu og því ómögulegt fyrir Fjalar að forða marki.
Örskömmu áður komst Jói Þórhalls á auðan sjó innfyrir vörnina en gerði mistök í að leggja boltann ekki fyrir sig með bringunni og skallaði boltann beint á Albert í markinu.
Fylkismenn voru slegnir eftir þetta og náðu einhvern veginn aldrei að komast almennilega inn í leikinn. Eyjamenn drógu sig eðlilega aðeins aftar og sóttu hratt, enda komnir með þægilega forystu.
Andri Þór Jónsson sem var skásti maður Fylkis í leiknum gerði vel í nokkur skipti í fyrri hálfleik að koma sér upp hægri vænginn. Það var eftir hans spretti sem Fylkismenn fengu sín hálffæri í leiknum og þau voru aðeins hálffæri, því nánast ekkert alvörufæri skapaðist. Í fyrra skiptið sendi hann á Ingimund sem lagði boltann út á Gústa sem hitti boltann alls ekki með hægri fæti í fínu skotfæri. Í síðara skiptið lagði Andri boltann út á Ingimund sem átti þokkalega skottilraun sem Albert varði í horn.
Eyjamenn gerðu síðan út um leikinn á markamínútunni þeirri fertugustu og þriðju þegar að þeir skoruðu eftir laglega sókn. Þórarinn Ingi komst þá upp í hornið vinstra megin og náði fyrirgjöf þar sem Tryggvi stakk sér framfyrir sofandi varnarmenn Fylkis og potaði boltanum inn.
Eyjamenn því komnir í frábæra stöðu og leiddu með þremur mörkum í hálfleik. Í síðari hálfleik gátu þeir sett í hlutlausa gírinn og sigldu sigrinum örugglega í höfn. Fylkismenn höfðu engar lausnir á varnarleik gestanna og þó að leikur liðsins hafi skánað sérstaklega í kjölfar þess að Þórir kom inn í miðvörðinn fyrir Stjána að þá skipti það ekki nokkru máli, því úrslitin voru ráðin.
Nánast ekkert markvert gerðist í seinni hálfleik og marktækifærin voru sannarlega af skornum skammti. Stuðningsmenn Fylkis biðu þess eins að leikurinn yrði flautaður af og tíminn leið satt best að segja ansi hægt. Tryggvi Guðmundsson kom sér í enn eitt færið á 63. mínútu þegar hann náði fínu skoti úr þröngri stöðu en Fjalar varði ágætlega. Denis Sytnik komst svo í álitlega stöðu þegar Davíð átti skelfilega þversendingu beint á hann en Úkraníumaðurinn fór afar illa með stöðuna. Fylkismenn unnu boltann og brunuðu í sókn.
Varamaðurinn Rúrik Andri Þorfinnsson fékk boltann og lék framhjá Matt Garner og náði fyrirgjöf sem hafnaði í stönginni, boltinn barst síðan út í teiginn og þar var mættur Ásgeir Örn Arnþórsson sem skoraði sárabótarmark fyrir Fylki á 88 mínútu.
Eyjamenn gátu því fagnað vel í leikslok og unnu sannfærandi sigur. Fylkismenn gerðu þeim auðvelt fyrir í þessum leik og sigur ÍBV var fyrirhafnarlítill þar sem þeir kláruðu dæmið í fyrri hálfleik.
Vandamál Fylkismanna halda áfram og þrátt fyrir að sigur hafi náðst í síðasta leik virtist það engu skipta og menn virðast mæta hræddir og óöruggir til leiks trekk í trekk. Vissulega vantaði sterka menn í liðið en það er engin afsökun fyrir þessari frammistöðu. Liðið náði aldrei takti í leiknum og lítið um jákvæða punkta. Leikur liðsins er afskaplega tilviljunarkenndur og uppspilið vandræðalegt á löngum köflum. Miðverðirnir féllu alltof oft í þá gryfju að negla löngum vonlausum boltum fram völlinn, meira að segja þegar að það voru fríir menn inn á miðjunni til að spila á.
Það er ljóst að margt þarf að breytast til að liðið nái viðeigandi stöðugleika í sinn leik. Stutt er í næsta leik okkar en það er útileikur gegn Fram næsta sunnudag og þar eru gríðarlega mikilvæg þrjú stig í boði.
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 6
Andri Þór Jónsson 7
Davíð Þór Ásbjörnsson 3
Kristján Valdimarsson 3
Kjartan Ágúst Breiðdal 5
Valur Fannar Gíslason 4
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 5
Ingimundur Níels Óskarsson 4
Ásgeir Örn Arnþórsson 4
Albert Brynjar Ingason 4
Jóhann Þórhallsson 4
Þórir Hannesson 6
Rúrik Andri Þorfinsson 6
Trausti Björn Ríkharðsson -
Fylkir: Fjalar Þorgeirsson - Andri Þór Jónsson (Trausti Björn Ríkharðsson '78),, Kristján Valdimarsson (F) (Þórir Hannesson '45), Davíð Þór Ásbjörnsson, Kjartan Ágúst Breiðdal - Valur Fannar Gíslason, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Ingimundur Níels Óskarsson (Rúrik Andri Þorfinsson '58) - Ásgeir Örn Arnþórsson, Jóhann Þórhallsson, Albert Brynjar Ingason.
Ónotaðir varamenn: Bjarni Þórður Halldórsson (M), Benedikt Óli Breiðdal, Elís Rafn Björnsson, Ásgeir Eyþórsson.
ÍBV: Albert Sævarsson – Arnór Eyvar Ólafsson, Rasmus Christiansen, Eiður Aron Sigurbjörnsson (Yngvi Magnús Borgþórsson '84), Matt Garner – Brynjar Gauti Guðjónsson, Finnur Ólafsson (Tonny Mawejje '42), Tryggvi Guðmundsson (F) - Ian Jeffs, Guðmundur Þórarinsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson (Denis Sytnik '79).
Ónotaðir varamenn: Abel Dhaira (M), Aaron Spear, Kjartan Guðjónsson, Kelvin Mellor.
Markskot: Fylkir 7 (5) - ÍBV 12 (6)
Horn: Fylkir 4 - ÍBV 6
Aðstæður: Toppaðstæður til knattspyrnuiðkunar á rennisléttum Fylkisvelli
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson 7
Aðstoðardómarar: Áskell Þór Gíslason og Sverrir Gunnar Pálmason
Maður leiksins: Tryggvi Guðmundsson ÍBV
Gul spjöld: Valur Fannar Gíslason ('14), Ingimundur Níels Óskarsson ('21), Andri Þór Jónsson ('58)
Áhorfendur: 1052

