Umfjöllun: Fyrsta jafntefli sumarsins í frábærum fótboltaleik
skrifað 30-07-2008 (4 athugasemdir)
Fylkir 3-3 Keflavík
0-1 Guðmundur Steinarsson ('1)
1-1 Ian Jeffs ('35)
1-2 Guðmundur Steinarsson ('42)
1-3 Hörður Sveinsson ('48)
2-3 Kjartan Ágúst Breiðdal ('73)
3-3 Kjartan Ágúst Breiðdal ('86)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkismenn sýndu fínan fótbolta og náðu fram 3-3 jafntefli eftir mikinn mótbyr gegn toppliði Keflavíkur síðastliðið mánudagskvöld í frábærum fótboltaleik.
Fylkismenn gerðu tvær breytingar frá bikarleiknum gegn Haukum. Andrés Már Jóhannesson kom í stað Víðis Leifssonar sem sleit líklega krossband á teppinu í Hafnarfirði. Haukur Ingi Guðnason tók síðan stöðu Jóhanns Þórhallssonar í fremstu víglínu og verður að segjast að sú breyting hafði mikið að segja og gafst vel.
Leikurinn var varla byrjaður þegar knötturinn lá í netinu á Fylkismarkinu. Keflvíkingar sendu þá langan bolta fram á Hörð Sveinsson sem skallaði út fyrir fætur Guðmundar Steinarssonar sem hamraði boltann í bláhornið, menn litu á vallarklukkuna 24 sekúndur liðnar, já sæll!
Og áfram héldu Keflvíkingar að þjarma að Fylkismönnum meðan þeir voru að ná áttum og Magnús Þorsteinsson komst tvisvar í ágætis færi en brást bogalistinn.
Fylkismenn fóru nú smám saman að spila boltanum betur á milli sín og tókst framan af fyrri hálfleik að spila vel en vantaði smá sjálfstraust til að binda endahnútinn á sóknirnar.
Ian Jeffs komst loks í gegn en missti boltann of langt frá sér og Ómar markvörður Keflavíkur komst fyrir knöttinn. Jeffs spólaði sig svo aftur í gegn eftir um 25.mínútna leik en Ómar varði í hliðarnetið. Jeffsy var hins vegar ekki hættur og tíu mínútum síðar fann hann netmöskvana, átti þá laglegan samleik við Allan Dyring og náði góðu skoti niðrí nærhornið.
Eftir þetta róaðist leikurinn örlítið, Keflvíkingar komust síðan í skyndisókn á 42. mínútu sem endaði með marki, Hólmar Örn Rúnarsson átti þá sendingu beint á kollinn á Guðmund Steinarsson sem skallaði í jörðina og gerði Fjalari erfitt fyrir að verja því boltinn spýttist af grasinu og í netið. Slök varnarvinna hjá Kristjáni Valdimarssyni þarna sem dekkaði sinn mann ekki, en Keflvíkingar semsagt með forystu eftir fjörugan fyrri hálfleik.
Hafi fyrri hálfleikur verið fjörugur kom enn meira fjör í þeim síðari. Fylkismenn byrjuðu vel og héldu áfram að halda boltanum með jörðinni, staðráðnir í að jafna metin og Keflvíkingar féllu aftur á völlinn. Þeim var hinsvegar afhent dauðafæri snemma í síðari hálfleik þegar Ian Jeffs sem hafði verið einn besti maður vallarins átti skelfilega þversendingu inní vítateig beint á Hörð Sveinsson sem þakkaði pent fyrir sig og jók forystuna í 1-3.
Oftar en ekki höfum við séð Fylkismenn leggja árar í bát í þessari stöðu, en því var til allrar hamingju ekki fyrir að fara í þessum leik. Þeir héldu ótrauðir áfram að berjast og reyna að spila góðan fótbolta en hefðu kannski rotast ef annaðhvort Hólmar Örn Rúnarsson eða Hörður Sveinsson hefðu náð að bæta fjórða markinu við úr ágætis tækifærum. Það gerðist hins vegar ekki og Fylkismenn tóku nú öll völd á vellinum og herjuðu á Suðurnesjapilta sem féllu í skotgrafirnar.
Eftir enn eina hornspyrnu Fylkismanna sem þeir fóru reyndar hræðilega illa með allan leikinn, kom loksins hætta þegar Ian Jeffs átti skalla sem Ómar varði og varnarmenn Keflvíkinga komust svo fyrir þrumufleyg Gústa í kjölfarið.
Áfram héldu þeir appelsínugulu, Halldór Hilmisson komst á auðan sjó einn gegn Ómari en hann lokaði vel. Það breytir þó því ekki að Halldór átti sannarlega að nýta þetta færi.
Á 73.mínútu komust Fylkismenn aftur í gegn, í þetta skiptið Allan Dyring sem var felldur rétt utan teigs af aftasta varnarmanni Brynjari Guðmundssyni sem var réttilega sendur í sturtu og Keflvíkingar því einum leikmanni færri.
Úr aukaspyrnunni kom þrumufleygur frá Gústa í varnarmann Keflavíkur og í netið og Fylkismenn minnkuðu því muninn i 2-3 þegar rétt um 17 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Og áfram sóttu Árbæingar látlaust, Allan Dyring komst í færi þar sem auðveldara var að skora heldur en klúðra en Ómar sá enn til þess að Keflvíkingar héldu forystu.
Pressan bar hinsvegar ávöxt á 86.mínútu þegar Andrés Már sendi góðan bolta fyrir á Gústa eða Kjartan Ágúst Breiðdal eins og hann heitir víst fullu nafni sem skoraði sitt annað mark í leiknum og jafnaði metin í 3-3.
Gústi fékk síðan hálffæri til að skora þrennuna og tryggja dramatískan sigur eftir að Haukur Ingi komst upp að vítateigslínu en hann skóflaði boltanum yfir umkringdur varnarmönnum.
Fylkismönnum tókst ekki að búa til fleiri opin færi í leiknum en héldu áfram aðdáunarverðum krafti og Keflvíkingar ógnuðu aðeins með löngum boltum á sína fljótu fremstu menn, en niðurstaðan í Árbænum jafntefli 3-3.
Flestir spekingarnir á Blásteini voru sammála um að Fylkisliðið hafi verið að spila líklega sinn besta leik í sumar, alltént sóknarlega. Virkilega gaman að sjá liðið ná sér á strik, Haukur Ingi gerði mikið fyrir spilið og þessi fyrrum Keflvíkingur sem hefur verið þjakaður af meiðslum olli miklum usla í vörn Keflvíkinga.
Gústi heldur áfram að skora og ég hvet hann og liðið endilega til að halda því áfram, um að gera skora fjögur mörk á Valsara á útivelli eins og við gerðum á síðasta tímabili.
Ian Jeffs gerði alvarleg mistök í þriðja markinu en átti annars frábæran leik inná miðjunni, mjög slæmt að missa hann í bann gegn Val.
Einnig sá maður að Addi er að komast í betri leikæfingu, hann átti marga góða spretti upp völlinn og lagði upp þriðja markið.
Liðið í heild sinni að spila eins og áður segir mjög vel, vörnin verður þó heldur að herða sig og Stjáni Vald var einfaldlega á hælunum allan leikinn og kannski eini slaki Fylkismaðurinn í leiknum.
Það er auðvitað mest svekkjandi að spila svona vel og fá aðeins eitt stig út úr leiknum, hefðu átt að vera þrjú, en karakterinn í liðinu var frábær að koma til baka og jafna leikinn.
Næsti leikur er gegn Val og nú er ráð að byggja ofan á þessa frammistöðu, krækja í stig og helst þrjú á Hlíðarenda og halda áfram að spila góðan fótbolta.
Fylkir (4-1-4-1):Fjalar Þorgeirsson -, Þórir Hannesson, Ólafur Ingi Stígsson, Kristján Valdimarsson, Andrés Már Jóhannesson (Peter Gravesen '87) - Valur Fannar Gíslason- Kjartan Ágúst Breiðdal, Ian Jeffs, Halldór Arnar Hilmisson, Allan Dyring - Haukur Ingi Guðnason.
Ónotaðir varamenn: Jóhann Þórhallsson, Björn Metúsalem Aðalsteinsson (M), Freyr Guðlaugsson, Axel Ingi Magnússon, Björn Orri Hermannsson, Kjartan Andri Baldvinsson.
Keflavík (4-4-2): Ómar Jóhannsson - Brynjar Guðmundsson, Hallgrímur Jónsson, Kenneth Gustafsson, Guðjón Árni Antoníusson - Hólmar Örn Rúnarsson, Símun Eiler Samuelsen, Jóhann Birnir Guðmundsson (Hans Yoo Mathiesen '57), Magnús Sverrir Þorsteinsson (Patrik Redo '67)-Guðmundur Steinarsson (Högni Helgason '76), Hörður Sveinsson.
Ónotaðir varamenn: Einar Orri Einarsson, Magnús Þórir Matthíasson, Þórarinn Brynjar Kristjánsson, Magnús Þormar (M).
Markskot: Fylkir 12 (6) – Keflavík 12 (6)
Horn: Fylkir 6 – Keflavík 7
Rangstöður: Fylkir 2 – Keflavík 2
Aðstæður: Mjög blautur völlur sem virtist hjálpa Fylkismönnum að halda boltanum innan liðsins
Dómari: Jóhannes Valgeirsson stóð sig vel ef litið er á heildarmyndina
Aðstoðardómarar: Gunnar Sverrir Gunnarsson og Oddbergur Eiríksson
Maður leiksins: Kjartan Ágúst Breiðdal (Gústi) Fylkir
Gul spjöld: Ian Jeffs (Fylkir) ('32), Leifur S. Garðarsson Fylkir ('35). Báðir í banni gegn Val
Rauð spjöld: Brynjar Guðmundsson (Keflavík) ('72)
Áhorfendur: 877


eftir HjólaHjálmur13 11:28 30-07-2008
Þetta lið ykkar verður nú að fara að vinna leiki, hvað meinaru með að taka einn leik í einu. Ef þetta væru alvöru íþróttamenn með alvöru sjálfstraust eins og hjólreiðakapparnir í Tour De France þá myndu þeir vinna alla leiki.
Annars er ég að fara að hjóla til Neskaupstaðar á morgun á nýja Mongoose Tyax Super hjólinu mínu.
Hér er mynd af því
http://www.gap.is/reidhjol/Mongoose/Detail/?ew_5_cat_id=15409&ew_5_p_id=22639101
eftir haukur 11:41 30-07-2008
flott umfjöllun. greinilega ekki sterkur leikur hjá manni að missa af þessum leik.
eftir freysi 12:26 30-07-2008
Frábært að koma til baka og ná stigi! Eitthvað sem Fylkir hefur ekki gert mikið af. En annars svíður í augun að sjá þriðja markið hjá keflavík, annars góð sending hjá Jeffs
eftir tom 01:13 6-08-2008
Ótrúlegur leik, sjaldan liðið jafn illa og í stöðunni 1-3, en þetta gátu þeir og það glæsilega. Flottur leikur hjá Fylki