Addi til Haugasund - Fylkir búið að samþykkja tilboðið!
skrifað 29-07-2011 (4 athugasemdir)
Valur Ingi Johansen skrifar
Andrés Már Jóhannesson er að fara til Haugasund í Noregi. Fylkir samþykkti nú í morgun tilboð Haugasund en þetta staðfesti Addi við mig núna rétt í þessu. Addi fór út í byrjun þessarar viku spilaði æfingaleik og skoðaði aðstæður. Þar spilaði hann hægri bakvörð og leist þeim strax vel á hann. Í gær hófust svo viðræður milli félaganna og Fylkir samþykkti svo í morgun tilboð Normannanna. Samkvæmt okkar heimildum hljóðaði tilboðið uppá 15-20 milljónir.
Addi hefur verið lykilmaður í Fylkisliðinu undanfarin ár og hefur verið kosin leikmaður ársins af
stuðningsmönnum tvö ár í röð. Addi fer út strax á sunnudaginn og þá munu samningaviðræður milli hans og Haugasund hefjast. Því hefur Addi að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik með Fylki í bili.
Addi á þetta tækifæri svo sannarlega skilið og vil ég óska honum góðs gengis í Noregi og vonandi verður þetta stökk pallur fyrir hann í eitthvað stærra og meira á komandi árum.


eftir benni 02:23 29-07-2011
Mjög gott fyrir Adda, hann á þetta skilið !
eftir gormur 02:57 29-07-2011
Gott fyrir Andrés, til hamingju!! en virkilega slæmt fyrir Fylki. þurfum við ekki að næla okkur í eins og einn framúrskarandi leikmann til að fylla þetta stóra skarð sem hann skilur eftir sig? svo má ekki gleyma að Andri er að hverfa á braut líka..
eftir Valli 10:26 29-07-2011
Addi á þetta svo skilið! Frábær leikmaður og besti leikmaður Fylkis undanfarin ár. Með þessari sölu er ljóst að við fáum einhverjar kúlur í kassann en við þurfum að styrkja liðið, það er klárt.... Þurfum einn miðjumann þar sem Gylfi og Balli eru að glíma við meiðsli. Nú er pressa á Dodda Gísla og félögum !!
eftir gormur 11:17 30-07-2011
Verð að vera sammála Helga. þessar kúlur fara bara í utanlandsferð fyrir stjórnina. það er ekki séns að þeir splæsi í nýjan leikmann.. Evrópusæti var góður möguleiki þar sem fleiri kúlur en 20 hefðu getað komið í kassan en nú stefnir allt í miðjumoð vegna magrar buddu!!