Umfjöllun: Fylkismenn heillum horfnir
skrifað 13-07-2011 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 0 - 3 KR
0-1 Guðjón Baldvinsson ('14)
0-2 Guðjón Baldvinsson ('24)
0-3 Guðjón Baldvinsson ('28)
Fylkismenn áttu lítinn möguleika gegn KR-ingum sem kláruðu leikinn á fyrsta hálftímanum með því að skora þrjú mörk. KR-ingar hefðu getað bætt við mörkum en Fylkismenn fengu hinsvegar fá færi. Ef spilamennskan verður áfram með þessum hætti er ljóst að okkar menn eiga erfiða tíma framundan.
KR-ingar byrjuðu leikinn af miklu meiri krafti og voru staðráðnir í að keyra á okkar menn. Óskar Örn Hauksson var öflugur og Þórir Hannesson var í stórkostlegum vandræðum í hægri bakvarðarstöðunni. Guðjón Baldvinsson olli varnarmönnum okkar einnig miklu hugarangri allan leikinn og átti eftir að koma mikið við sögu.
Fyrsta markið kom á 14 mínútu. Alli átti þá afleita sendingu inn á miðjuna, KR-ingar brunuðu fram og Fylkisvörnin reyndi að spila einhverskonar rangstöðutaktík og tókst reyndar að spila Kjartan Henry rangstæðan en vandamálið var að hann fékk ekki knöttinn heldur Guðjón sem var samsíða Val Fannari sem sat eftir og Guðjón kláraði síðan færið sitt örugglega.
KR-ingar voru síðan áfram sterkari en Fylkismenn tóku reyndar aðeins við sér. Grétar Sigfinnur var nálægt því að gefa okkur mark þegar hann skallaði alltof fast aftur á Hannes sem missti af boltanum en Alli var of seinn að taka við sér og KR-ingar sluppu með skrekkinn. Addi komst síðan í ágætis færi eftir að Ingimundur tók snöggt innkast en Addi var ekki í alveg nógu góðu jafnvægi til að skjóta og Hannes sá við honum.
Annað mark KR-inga kom síðan á 24 mínútu og var það skelfilega klaufalegt frá okkar bæjardyrum séð. Guðjón Baldvinsson var af einhverjum óskiljanlegum ástæðum algerlega gapandi óvaldaður í teignum og náði fínum skalla sem endaði í markhorninu. Það verður þó að segjast að Bjarni Þórður hafði nægan tíma til að fleygja sér á boltann og slá hann frá og því verður markið að skrifast á hann að einhverju leyti.
Þriðja mark KR-inga kom síðan skömmu síðar og enn var Guðjón að verki. Fylkismenn vildu þá fá vítaspyrnu hinumegin þegar virtist brotið á Jóa Þórhalls við vítateigshornið hægra megin, ekkert var dæmt og KR-ingar skunduðu í hraða sókn sem endaði með því að Guðjón skoraði. Þarna var furðulegt að sjá hversu fáliðaðir Fylkismenn voru í vörninni og í raun var Valur Fannar einn að verjast þeim og Ásgeir Börkur gerði reyndar einnig sitt besta í að keyra til baka.
Það má segja að þetta mark hafi endanlega stútað leiknum og þó voru ekki nema 28 mínútur liðnar. Fylkismenn reyndu af veikum mætti að svara fyrir sig en það er skemmst frá því segja að það gekk alls ekki.
Guðjón Baldvinsson hefði hæglega getað bætt fjórða markinu rétt fyrir leikhlé en skallaði framhjá úr dauðafæri. Seinni hálfleikurinn varð síðan aldrei spennandi eða skemmtilegur og KR-ingar gátu tekið lífinu með ró.
Helst bar til tíðinda að Fylkismenn söfnuðu spjöldum og KR-ingar áttu mjög góðar sóknir af og til. Guðmundur Reynir hamraði boltanum í þverslánna af 25 metra færi og síðan fékk Guðjón Baldvinsson enn eitt dauðafærið en skaut framhjá. Fylkismenn fengu engin alvöru færi og eina sem þeim varð ágengt í sóknarleiknum var að næla sér í hornspyrnur sem síðan voru ómarkvissar og sköpuðu enga hættu.
Það er ljóst að leikmenn okkar og þjálfari þurfa að fara í naflaskoðun því með þessu áframhaldi munum við síga niður töfluna og það hratt. Við sitjum nú í 8. sæti með jafnmörg stig og Keflavík og sem betur fer eru næstu tvö lið á eftir okkur með aðeins 8 stig. Það má því reikna með fjögurra liða móti á botni deildarinnar milli Grindavíkur, Þórs, Víkinga og Framara. Við getum hinsvegar hæglega sogast niður í þennan pakka enda nóg af leikjum eftir. Svartsýnin má þó ekki yfirgnæfa allt því vissulega getur leiðin einnig legið fljótt upp á við með nokkrum góðum sigrum.
Næsti leikur verður aftur á móti gríðarlega erfiður þegar við heimsækjum FH-inga í Kaplakrika, sérstaklega ef við ætlum að bjóða upp á sama varnarleik og í undanförnum tveimur leikjum. Nú er mikilvægasta verkefnið að stoppa í götin aftast og leitast við á fá sem fæst mörk á okkur. Við höfum fengið á okkur sjö mörk í tveimur síðustu leikjum (sem hefðu getað orðið enn fleiri ef KR-ingar hefðu nýtt öll sín færi) og því ljóst að breytinga er þörf.
Valur Fannar virðist ekki vera í nokkru standi til að spila og er algerlega á síðustu bensíndropunum, orðinn stjarnfræðilega seinn. Því þykir mér einboðið að hann missi sæti sitt í liðinu. Þórir Hannesson er einnig að spila langt undir getu, en þar er á ferð piltur sem hefur fullt af hæfileikum og á geta mikið mun betur. Spilið út úr vörninni er annað vandamál sem reyndar hefur loðað talsvert við liðið undanfarin ár. Ég vil sjá Davíð Ásbjörnsson fá tækifæri í næsta leik en hann lék afar vel sem miðvörður undir lok síðustu leiktíðar.
En það er ekki bara varnarleikurinn sem hefur klikkað í síðustu leikjum því spilið hefur einnig verið mjög slakt. Menn eru líka að klikka á einföldum hlutum eins og móttöku á boltanum og að senda skammlaust á næsta mann.
Vissulega var andstæðingurinn að þessu sinni afar sterkur og KR-ingar illviðráðanlegir. En við höfum einnig tapað dýrmætum stigum gegn slakari liðunum Grindavík, Fram og Þór og því augljóst að vandamál Fylkis er stöðugleiki og það er vandamál sem er alls ekki nýtt af nálinni í Árbænum.
En betur má ef duga skal og ég trúi ekki öðru en að menn muni koma kolbrjálaðir í Kaplakrika næsta sunnudag og vaða eld og brennistein
fyrir klúbbinn. Sá leikur hefst kl 19:15 og hvetjum við allt Fylkisfólk til að mæta á hann.
Þessum pistli um leik okkar gegn KR verður þó ekki lokið nema með því að minnast aðeins á dapra frammistöðu dómarans. Tvö stór atriði féllu heldur betur með KR-ingum í leiknum. Hann sleppti því að dæma víti þegar Jói virtist felldur inn í teig og KR-ingar skora síðan þriðja markið í kjölfarið og klára leikinn. Klárlega vendipunktur í leiknum. Einnig var illskiljanlegt hvernig Grétar Sigfinnur komst upp með augljóst brot á Adda þegar hann var að sleppa framhjá honum. Klárlega einnig gult spjald að mínu mati og einhverjir vildu meina að spjaldið hefði jafnvel getað orðið rautt. Heilt yfir var frammistaða hans mjög döpur og í nokkur skipti gapti maður hreinlega af undrun og skipti þá ekki öllu fyrir hvort liðið var verið að dæma.
En nóg um það, þessi leikur tapaðist á engan hátt vegna dómarans heldur vegna þess að getumunurinn á liðum Fylkis og KR var talsverður.
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Bjarni Þórður Halldórsson 5
Þórir Hannesson 4
Valur Fannar Gíslason 3
Kristján Valdimarsson 5
Tómas Þorsteinsson 4
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 7
Gylfi Einarsson 5
Andrés Már Jóhannesson 6
Albert Brynjar Ingason 4
Ingimundur Níels Óskarsson 4
Jóhann Þórhallsson 5
Kjartan Ágúst Breiðdal 6
Andri Már Hermannsson 6
Rúrik Andri Þorfinnsson -
Fylkir: Bjarni Þórður Halldórsson - Þórir Hannesson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason (Andri Már Hermannsson 68), Tómas Joð Þorsteinsson - Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Gylfi Einarsson (Rúrik Andri Þorfinnsson 85), Andrés Már Jóhannesson - Ingimundur Níels Óskarsson (Kjartan Ágúst Breiðdal 46), Albert Brynjar Ingason, Jóhann Þórhallsson
Ónotaðir varamenn: Ísak Björgvin Gylfason (M), Davíð Þór Ásbjörnsson, Andri Þór Jónsson, Hjörtur Hermannsson.
KR: Hannes Þór Halldórsson - Magnús Már Lúðvíksson (Dofri Snorrason 83), Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Skúli Jón Friðgeirsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson - Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson (Ásgeir Örn Ólafsson 58), Viktor Bjarki Arnarson - Óskar Örn Hauksson, Kjartan Henry Finnbogason (Gunnar Örn Jónsson 68), Guðjón Baldvinsson
Ónotaðir varamenn: Atli Jónasson (M), Gunnar Þór Gunnarsson, Aron Bjarki Jósepsson, Jordao Diogo.
Markskot: Fylkir 5 (1) - KR 13 (6)
Horn: Fylkir 7 - KR 4
Aðstæður: Flottar
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr. 3 – Afleitur. Skrýtnar áherslur í dómgæslunni og Salómonsdómar hér og þar sem voru út í bláinn.
Aðstoðardómarar: Jóhann Gunnar Guðmundsson og Oddbergur Eiríksson
Maður leiksins: Guðjón Baldvinsson KR
Gul spjöld: Dofri Snorrason (KR) (90 mín.), Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir) (88 mín.), Andri Már Hermannsson (Fylkir) (80 mín.), Jóhann Þórhallsson (Fylkir) (75 mín.), Ólafur Þórðarason (þjálfari Fylkis) (75 mín), Valur Fannar Gíslason (Fylkir) (63 mín.), Andrés Már Jóhannesson (Fylkir) (57 mín.), Gylfi Einarsson (Fylkir) (28 mín.), Þórir Hannesson (Fylkir) (7 mín.).
Áhorfendur: 1815

