Risaupphitunarpakki: KR-ingar mæta í Árbæinn
skrifað 08-07-2011 (1 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir - KR
Pepsi-deild, 10.umferð
Sunnudagur, 10.júlí 2011
Kl. 20:00
Fylkisvöllur
Næsti leikur Fylkismanna er heimaleikur gegn toppliði KR. Leikurinn er tilvalið tækifæri fyrir okkar menn að rífa sig upp eftir dapran leik gegn Stjörnunni.
Fylkir: Fylkismenn áttu skelfilegan dag gegn Stjörnunni í síðustu umferð og þurfa heldur betur að spýta í lófana ætli þeir sér að eiga möguleika gegn KR. Langflestir leikmenn voru að spila langt undir getu og vonandi ná þeir sér aftur á strik. Með sigri á Stjörnunni hefðu Fylkismenn getað gert leikinn gegn KR að toppslag en með tapinu erum við nú sex stigum á eftir KR-ingum sem einnig eiga leik til góða.
KR: KR-ingar eru enn taplausir í deild, bikar og Evrópukeppni og hafa farið á kostum í sumar. Þeir hafa ekki sýnt glansfótbolta í öllum leikjunum en hafa heldur betur skilað stigum í hús og verið besta lið deildarinnar það sem af er móti. Sjálfstraustið er mikið í þeirra herbúðum þessa dagana og leikmannahópurinn er ógnarsterkur.
Völlurinn:
Fylkisvöllur

Áhorfendaaðstaða: 2832 manns (560 sæti, 720 manns í stæði, önnur ósamþykkt aðstaða 1552) samkvæmt ksi.is. 4833 áhorfendur mættu þó á leik Fylkis og KR þann 15.09.2002.
Árangur Fylkis síðan árið 2000
2000-2.sæti
2001-5.sæti-og-bikarmeistari
2002-2.sætiog-bikarmeistari
2003-4.sæti
2004-4.sæti
2005-5.sæti
2006-8.sæti
2007-4.sæti
2008-9.sæti
2009-3sæti
2010-9 sæti
Viðureignir liðanna í gegnum tíðina:
KR-ingar hafa leikið samfleytt í efstu deild frá árinu 1979 og langlengst allra þeirra liða sem nú eru í Pepsi deildinni. Við Fylkismenn erum næstir KR-ingum en okkar drengir hafa leikið samfleytt í efstu deild frá árinu 2000. Nánast allar viðureignir liðanna í deildarkeppni hafa verið í efstu deild ef undanskildar eru tveir leikir í B-deild 1978 sem KR vann báða. 1989 léku Fylkismenn svo í fyrsta skipti meðal þeirra bestu. Þá hafa liðin aðeins mæst þrisvar sinnum í bikarkeppni KSÍ og í öll skiptin hafa þau mæst í 16-liða úrslitum keppninnar.
1978
Fylkir – KR 0-2 Markaskorara vantar.
KR- Fylkir 4-0 Markaskorara vantar.
1989
KR – Fylkir 2-2
1. deild karla. KR-völlur 5. júní, 3. umferð
1-0 Pétur Pétursson (‘6)
2-0 Björn Rafnsson (’39)
2-1 Baldur Bjarnason (’46)
2-2 Hilmar Sighvatsson (víti) (’53)
Fylkir – KR 1-2
Fylkisvöllur 1. ágúst, 12. umferð
0-1 Heimir Guðjónsson (’42)
1-1 Örn Valdimarsson (’88)
1-2 Steinar Ingimundarson (’89)
1992
Fylkir – KR 2-1
Mjólkurbikar karla. Fylkisvöllur 21. júlí, 16-liða úrslit
0-1 Atli Eðvaldsson (‘7)
1-1 Zoran Micovic (’82)
2-1 Finnur Kolbeinsson (víti) (’85)
1993
Fylkir – KR 2-1
Getraunadeild karla. Fylkisvöllur 11. júní, 4. umferð
0-1 Tómas Ingi Tómasson (’23)
1-1 Salih Heimir Porca (’28)
2-1 Salih Heimir Porca (’33)
KR- Fylkir 1-3
Getraunadeild karla. KR-völlur 17. ágúst, 13. umferð
1-0 Bjarki Pétursson (’12)
1-1 Salih Heimir Porca (’38)
1-2 Kristinn Tómasson (’59)
1-3 Finnur Kolbeinsson (víti) (’71)
1996
Fylkir – KR 0-2
Sjóva – Almennra deild karla. Fylkisvöllur 24. júní, 5. umferð
0-1 Heimir Guðjónsson (’63)
0-2 Guðmundur Benediktsson (’66)
KR – Fylkir 1-1
Sjóva – Almennra deild karla. KR-völlur 29. ágúst, 14. umferð
0-1 Þórhallur Dan Jóhannsson (’72)
1-1 Ríkharður Daðason (’74)
1999
KR- Fylkir 4-3
Coca Cola bikar karla. KR- völlur 30. júní, 16-liða úrslit
0-1 Sturla Guðlaugsson (‘8)
0-2 Þórhallur Dan Jóhannsson (’24)
1-2 Guðmundur Benediktsson (’37)
2-2 Guðmundur Benediktsson (’56)
3-2 Einar Þór Daníelsson (’64)
3-3 Theodór Óskarsson (’71)
4-3 Arnar Jón Sigurgeirsson (’80)
2000
Fylkir – KR 1-1
Landsímadeild karla. Fylkisvöllur 10.júní 2000, 6. umferð
0-1 Einar Þór Daníelsson (’57)
1-1 Gylfi Einarsson (’85)
KR – Fylkir 2-1
Landsímadeild karla. KR-völlur 20. ágúst, 15. umferð
1-0 Þórhallur Hinriksson (’37)
1-1 Kristinn Tómasson (’51)
2-1 Andri Sigþórsson (’84)
2001
Fylkir – KR 1-0
Símadeild karla. Fylkisvöllur 15. maí, 1. umferð
1-0 Steingrímur Jóhannesson (’42)
KR- Fylkir 0-0
Símadeild karla. KR- völlur 21. júní, 6 .umferð
KR – Fylkir 0-1
Coca Cola bikar karla. KR- völlur 5. júlí , 16-liða úrslit
0-1 Sævar Þór Gíslason (víti) (’50)
2002
KR- Fylkir 1-1
Símadeild karla. KR-völlur 27. júní, 8. umferð
0-1 Theodór Óskarsson (’39)
1-1 Gunnar Einarsson (’82)
Fylkir – KR 1-1
Símadeild karla. Fylkisvöllur 15. september, 17. umferð
1-0 Ómar Valdimarsson (’52)
1-1 Jón Skaftason (’83)
2003
Fylkir – KR 2-1
Landsbankadeild karla. Fylkisvöllur 22. júní, 6. umferð
0-1 Sigurður Ragnar Eyjólfsson (’19)
1-1 Haukur Ingi Guðnason (’37)
2-1 Björn Viðar Ásbjörnsson (’88)
KR- Fylkir 4-0
Landsbankadeild karla. KR-völlur 24. ágúst, 15. umferð
1-0 Arnar Gunnlaugsson (‘5)
2-0 Veigar Páll Gunnarsson (’10)
3-0 Arnar Gunnlaugsson (’54)
4-0 Arnar Gunnlaugsson (’82)
2004
KR- Fylkir 1-1
Landsbankadeild karla. KR-völlur 10. júlí, 10. umferð
1-0 Arnar Jón Sigurgeirsson (’12)
1-1 Sævar Þór Gíslason (’43)
Fylkir – KR 3-1
Landsbankadeild karla. Fylkisvöllur 19. september, 18. umferð
1-0 Kjartan Ágúst Breiðdal (’51)
1-1 Arnar Gunnlaugsson (’57)
2-1 Valur Fannar Gíslason (’64)
3-1 Kjartan Ágúst Breiðdal (’83)
2005
Fylkir – KR 1-2
Landsbankadeild karla. Fylkisvöllur 17. maí, 1. umferð
1-0 Hrafnkell Helgason (víti) (‘5)
1-1 Valur Fannar Gíslason (sjálfsmark) (’17)
1-2 Sigurvin Ólafsson (’90)
KR- Fylkir 1-3
Landsbankadeild karla. KR-völlur 11. júlí, 10. umferð
0-1 Christian Christiansen (’16)
0-2 Viktor Bjarki Arnarsson (’23)
0-3 Viktor Bjarki Arnarsson (’49)
1-3 Tryggvi Sveinn Bjarnason (’69)
2006
KR – Fylkir 1-0
Landsbankadeild karla. KR-völlur 24. maí, 3. umferð
1-0 Tryggvi Sveinn Bjarnason (’28)
Fylkir – KR 1-2
Landsbankadeild karla. Fylkisvöllur. 31. júlí, 12. umferð
0-1 Björgólfur Takefusa (víti) (’51)
0-2 Björgólfur Takefusa (’61)
1-2 Albert Brynjar Ingason (’90)
2007
Fylkir – KR 0-0
Landsbankadeild karla. Fylkisvöllur 4. júlí, 9. umferð
KR – Fylkir 1-1
Landsbankadeild karla. KR- völlur 29. september, 18. umferð
1-0 Óskar Örn Hauksson (’55)
1-1 Peter Gravesen (víti) (’89)
2008
KR- Fylkir 3-0
Landsbankadeild karla. KR-völlur 15. júní, 7. umferð
1-0 Björgólfur Takefusa (’32)
2-0 Björgólfur Takefusa (’49)
3-0 Björgólfur Takefusa (víti) (’71)
Fylkir – KR 0-2
Landsbankadeild karla. Fylkisvöllur 27. ágúst, 18. umferð
0-1 Guðjón Baldvinsson (’22)
0-2 Björgólfur Takefusa (’39)
2009
Fylkir – KR 2-2
Pepsi deild karla. Fylkisvöllur 1. júní, 6. umferð
0-1 Gunnar Örn Jónsson (’25)
1-1 Valur Fannar Gíslason (víti) (’45)
2-1 Þórir Hannesson (’51)
2-2 Óskar Örn Hauksson (’72)
KR – Fylkir 2-4
Pepsi deild karla. KR-völlur 17. ágúst, 17. umferð
0-1 Mark Rutgers (sjálfsmark) (’48)
0-2 Albert Brynjar Ingason (’53)
1-2 Guðmundur Benediktsson (’56)
2-2 Björgólfur Takefusa (’75)
2-3 Ingimundur Níels Óskarsson (’79)
2-4 Ingimundur Níels Óskarsson (’90)
2010
Fylkir – KR 1-4
Pepsi deild karla. Fylkisvöllur 26. ágúst, 18. umferð
1-0 Jóhann Þórhallsson (‘5)
1-1 Guðjón Baldvinsson (’15)
1-2 Kjartan Henry Finnbogason (’27)
1-3 Guðmundur Reynir Gunnarsson (’47)
1-4 Guðjón Baldvinsson (’78)
KR- Fylkir 3-0
Pepsi deild karla. KR völlur 25. september, 22. umferð
1-0 Egill Jónsson (‘9)
2-0 Guðjón Baldvinsson (’63)
3-0 Baldur Sigurðsson (’84)
A deild: 28 leikir: Fylkir 7 sigrar, 10 jafntefli, KR 11 sigrar. Markatala: Fylkir 33 – KR 44
B deild: 2 leikir: KR 2 sigrar. Markatala: Fylkir 0 – KR 6
Bikar: 3 leikir: Fylkir 2 sigrar, KR 1 sigur. Markatala: Fylkir 6 – KR 5
Alls: 33 leikir: Fylkir 9 sigrar, 10 jafntefli, KR 14 sigrar. Markatala: Fylkir 39 – KR 55
Markahæstu leikmenn: Björgólfur Takefusa (KR) 7 mörk, Guðjón Baldvinsson (KR) 4, Arnar Gunnlaugsson (KR) 4, Salih Heimir Porca (Fylki) 3.
* Ekki eru teknir með æfingaleikir, leikir í Reykjavíkurmótinu, Deildarbikarnum eða Meistarakeppni KSÍ.
Leikmenn sem hafa spilað með báðum liðum:
Björgólfur Hideaki Takefusa
Viktor Bjarki Arnarsson
Ingimundur Níels Óskarsson
Jóhann Þórhallsson
Þórhallur Dan Jóhannsson
Björgvin Vilhjálmsson
Vilhjálmur Vilhjálmsson
Haukur Ingi Guðnason
Ómar Bendtsen
Þorsteinn Þorsteinsson
Salih Heimir Porca
Arnaldur Schram
Bjarki Pétursson
Mikael Nikulásson
Guðmundur Magnússon
Loftur Ólafsson
Stefán Steinsen
Andri Marteinsson
Óskar Sigurðsson
Magnús Jónatansson og Atli Eðvaldsson hafa þjálfað bæði lið
Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur sjúkraþjálfað bæði lið.
Magnús Pálsson var þjálfari Fylkis í efstu deild framan af leiktíðinni 1996 en hann var þjálfari mfl. kvenna hjá KR árin 2000 og 2001.
Aðrir sem hugsanlega gleymast eru beðnir velvirðingar á því og vinsamlega beðnir um að hafa samband
Lykilmenn:
Fylkir Andrés Már Jóhannesson, Gylfi Einarsson, Albert Brynjar Ingason.
KR Bjarni Guðjónsson, Skúli Jón Friðgeirsson, Óskar Örn Hauksson
Líkleg byrjunarlið:
Fylkir: Fjalar Þorgeirsson - Þórir Hannesson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason, Kjartan Ágúst Breiðdal – Gylfi Einarsson (F), Baldur Bett, Ásgeir Börkur Ásgeirsson – Ingimundur Níels Óskarsson, Albert Brynjar Ingason, Andrés Már Jóhannesson
Meiddir: Oddur Ingi Guðmundsson, Tómas Þorsteinsson (tæpur)
KR Hannes Þór Halldórsson - Magnús Már Lúðvíksson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Skúli Jón Friðgeirsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson - Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Ásgeir Örn Ólafsson - Óskar Örn Hauksson, Kjartan Henry Finnbogason, Guðjón Baldvinsson
Meiddir: Viktor Bjarki Arnarson
Dómarar:
Dómari Þóroddur Hjaltalín Jr.
Aðstoðardómari 1 Jóhann Gunnar Guðmundsson
Aðstoðardómari 2 Oddbergur Eiríksson
Eftirlitsmaður Þórður Georg Lárusson
Stuðlar á Lengjunni:
1 Fylkir 3,15
X 2,90
2 KR 1,80
Aðrir Leikir í 10. umferð:
laugardagurinn 9.juní
16:00 Breiðablik - Þór
sunnudagurinn 10.júlí
16:00 ÍBV - FH
mánudagurinn 11.júlí
19:15 Fram - Grindavík
19:15 Keflavík - Víkingur R.
20:00 Valur - Stjarnan
Upphitun
Það er alltaf góð stemming á Blásteini fyrir leiki og um að gera að kíkja þangað fyrir leik. Góður matur og kaldur á krananum.
Þá er Club Orange í síðasta skipti í sumar með mat fyrir leik og hefst kl 18.
Matseðill:
Sveppasúpa
Grillað lambalæri
Kaffi
Ís fyrir börnin
Borðapantanir í síma 8240403 og sigrun@ishamar.is


eftir TobbZ 04:30 10-07-2011
Já gaman að rifja þessa leiki upp, ég spái 4-2 fyrir okkur. Þetta verður eins og leikurinn á KR vellinum 2009, eini leikurinn sem KR tapa í þessar umferð. Koma svo stemning og læti á eftir. Áfram Fylkir. Jeee