Umfjöllun: Tvö dýrmæt stig í súginn
skrifað 27-06-2011 (1 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 1 - 1 Þór
0-1 Sveinn Elías Jónsson ('8)
1-1 Albert Bynjar Ingason ('11)
Fylkismenn voru klaufar að leggja ekki Þór á Fylkisvelli í gær. Þórsarar náðu forystunni en Fylkismenn voru snöggir að jafna metin. Okkar menn fóru svo gríðarlega illa með mörg góð tækifæri og leikurinn endaði 1-1.
Leikurinn var afar fjörlegur í upphafi og Fylkismenn fóru vel af stað. Andrés Már komst inn í sendingu Þórsara og reyndi að leika á Rajkovic í markinu en hann bjargaði með góðu úthlaupi.
Þórsarar réðu ekkert við Andrés Már á hægri kantinum og hann átti frábæra fyrirgjöf beint á Alla sem hitti boltann engan veginn og skotið því vel framhjá.
Þórsarar náðu síðan forystunni þvert gegn gangi leiksins á 8 mínútu þegar þeir komust upp í hornið vinstra megin þar sem Atli Sigurjónsson sendi fyrir og boltinn barst að lokum út í teig og þar var mættur Sveinn Elías Jónsson sem afgreiddi boltann laglega í netið.
Fylkismenn voru þó sem betur fer snöggir að svara með frábæru marki. Ingimundur sendi þá fram á Adda sem tók frábærlega við boltanum og átti síðan magnaða hælspyrnu á Alla sem skoraði án vandkvæða. Addi var feykilega mikið í boltanum á upphafsmínútunum og hafði rétt áður skotið naumlega framhjá beint úr aukaspyrnu.
Addi var áfram aðalmaðurinn á vellinum. Fyrst átti hann ágætis tilraun sem Rajkovic varði og síðan átti hann þrumuskot sem small í þverslánni.
Á 41 mínútu fengu Fylkismenn svo langbesta færi leiksins. Rajkovic óð út í agalegt úthlaup og Baldur Bett náði boltanum á undan honum. Baldur hætti við að skjóta strax sem hefði verið vænlegast, lék aðeins áfram og ákvað svo að gefa boltann til hliðar á Andrés Má sem skoraði en var rangstæður því Rajkovic var kominn út úr markinu og því aðeins einn varnarmaður til varnar hjá Þórsurum. Baldur hefði svo auðveldlega getað skorað sjálfur og tók þarna ferlega ákvörðun.
Fylkismenn gátu því heldur betur nagað sig í handarbökin að vera ekki yfir í hálfleik.
Seinni hálfleikur var síðan frekar leiðinlegur áhorfs. Þórsarar lágu til baka og reyndu að beita skyndisóknum. Skyndisóknir þeirra sköpuðu samt sem áður litla hættu og voru ekki nægilega vel útfærðar. Fylkismenn lentu í vandræðum með varnarmúr Þórsara og boltinn gekk of hægt á milli manna og sóknarmennirnir okkar voru ekki nægilega hreyfanlegir.
Ásgeir Börkur átti nokkur langsskot sem sköpuðu ekki mikla hættu. Jói Þórhalls kom inná en náði engan veginn að stimpla sig inn, hann átti þó skot beint úr aukaspyrnu talsvert frá marki sem Rajkovic lenti í furðulega miklum vandræðum með og sló vandræðalega frá.
Ingimundur sem var svolítið týndur komst í fínasta færi þegar Addi átti fyrirgjöf en því miður náði Ingimundur ekki að stýra boltanum í netið.
Ásgeir var þó mjög nálægt því að skora á 81 mínútu en Þórsarar náðu að komast fyrir á síðustu stundu. Síðasta færi Fylkis fékk svo Þórir þegar hann átti hörkuskalla sem sveif yfir markið.
Þórsarar fengu tvö ágætis færi til að skora í lokin. Fyrst varði Fjalar frá David Disztl og síðan var Gunnar Már í góðri stöðu og sendi hættulegan bolta þvert fyrir markið þar sem Þórsarar misstu af boltanum.
Niðurstaðan því sorgleg, 1-1 jafntefli. Stigið gerir lítið fyrir okkur og tvö dýrmæt stig sem við misstum af. Því miður er alltof langt í næsta leik en hann er ekki fyrr en 6.júlí gegn Stjörnumönnum á teppinu.
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 6 – Tiltölulega rólegur dagur hjá honum og lítið við hann að sakast í markinu.
Andri Þór Jónsson 6 - Náði ekki að nýta þau svæði sem opnuðust og vantaði meiri slagkraft fram á við.
Þórir Hannesson 7 – Nokkuð traustur og hefði verið gaman að sjá hann skalla eitt inn í lokin.
Kristján Valdimarsson 7 – Fínn leikur hjá Stjána og skilaði sínu að mestu leyti býsna vel.
Tómas Joð Þorsteinsson 8 - Kannski ekki hans allra besti leikur, fékk spjald snemma fyrir óþarfa brot og þurfti því að fara gætilega eftir það.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 8 - Fremstur meðal jafningja í Fylkisliðinu og var öflugur allan leikinn. Vann boltann trekk í trekk af Þórsurum og var meira að segja nálægt því að skora en varnarmaður Þórsara komst fyrir.
Gylfi Einarsson 7 - Gjörsamlega át Gunnar Már Guðmundsson í loftinu og vann nánast alla skallabolta gegn honum. Frábært hvernig hann tímasettur stökkin sín og hvernig hann nær að hanga í loftinu.
Baldur Bett 5 - Fann sig ekki í leiknum og ákvörðun hans að gefa á Adda í stað þess að skora sjálfur reyndist afdrifarík að lokum.
Andrés Már Jóhannesson 8 – Gríðarlega frískur og líflegur í fyrri hálfleik og var að skapa mikið fram á við og var í færum en vantaði að skora. Frábær undirbúningur hjá honum í markinu, glæsileg hælspyrna. Fékk nokkur góð tækifæri til að skora og það verður að fara að gerast hjá honum, þurfum að fá mörk frá honum líka.
Albert Brynjar Ingason 7 – Gott mark hjá honum og var ógnandi á köflum en datt út þess á milli.
Ingimundur Níels Óskarsson 6 – Frekar dapur í þessum leik og náði ekki alveg takti.
Kjartan Ágúst Breiðdal - Kom inná þegar um tíu mínútur voru eftir og gerði ágætlega.
Rúrik Andri Þorfinnsson - Kom inná rétt í restina
Jóhann Þórhallsson 4 - Afleit innkoma og gaf varla boltann eftir að hann kom inná. Hann virtist ætla að sigra Þórsarana einn og sér og sólaði sig áfram þangað til að hann missti boltann.
Fylkir: Fjalar Þorgeirsson - Andri Þór Jónsson (Rúrik Andri Þorfinnsson '85), Kristján Valdimarsson, Þórir Hannesson, Tómas Joð Þorsteinsson (Kjartan Ágúst Breiðdal '79) - Gylfi Einarsson (F), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Baldur Bett (Jóhann Þórhallsson '55) - Andrés Már Jóhannesson, Ingimundur Níels Óskarsson, Albert Brynjar Ingason.
Ónotaðir varamenn: Bjarni Þórður Halldórsson (M), Valur Fannar Gíslason, Daníel Freyr Guðmundsson, Andri Már Hermannsson.
Þór Srdjan Rajkovic - Gísli Páll Helgason, Þorsteinn Ingason, Janes Vrenko, Ingi Freyr Hilmarsson - Baldvin Ólafsson (Ármann Pétur Ævarsson '56), Gunnar Már Guðmundsson, Sveinn Elías Jónsson Atli Sigurjónsson, Sigurður Marinó Kristjánsson (Ottó Hólm Reynisson '72), - Jóhann Helgi Hannesson (David Disztl '35).
Ónotaðir varamenn: Björn Hákon Sverrisson (M), Kristján P. Hannesson, Kristján Sigurólason, Pétur Heiðar Kristjánsson.
Markskot: Þór 8 (3) - Fylkir 20 (11)
Horn: Fylkir 10 - Þór 4
Aðstæður: Fínar
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson 7 – Dæmdi leikinn vel þó að auðvitað hafi nokkur atriði orkað tvímælis.
Aðstoðardómarar: Gylfi Már Sigurðsson og Halldór Breiðfjörð
Maður leiksins: Ásgeir Börkur Ásgeirsson Fylki
Gul spjöld: Tómas Þorsteinsson ('23), Ingimundur Níels Óskarsson ('71), Kjartan Ágúst Breiðdal ('90).
Áhorfendur: 1079


eftir TobbZ 12:09 28-06-2011
Flott umfjöllun Krissi, en mjög svekkjandi að klára ekki þennan leik. En gríðarlega gaman að sjá spilamensku Fylkis í fyrri hálfleik þrátt fyrir að það vantaði að nýta færin. Þá er það bara málið að vinna á teppinu í næsta leik. Áfram Fylkir. Jee