Upphitun: Síðasti leikur fyrir frí - Grill og ganga frá Blásteini
skrifað 05-06-2011 (0 athugasemdir)
Eftir Arnór Ásgeirsson og Kristján Gylfa Guðmundsson
Víkingur-Fylkir
Pepsi-deild, 7.umferð
Mánudagur, 6.júní 2011
Kl. 20:00
Víkingsvöllur
Beint á Stöð 2 sport
Veðurspá:Heiðskírt og sól, 8-10°c
Vindur:6-8 m/s
Sælir lesendur. Næsti leikur okkar Fylkismanna er útileikur gegn nágrönnum okkar í Víkingi R. Leikið er í 7.umferð Pepsi-deildar 2011 og er þetta síðasta umferð fyrir tveggja vikna frí. Víkingar hafa ekki riðið feitum hesti í viðureignum gegn Fylki síðastliðin 20 ár og má því segja að við höfum gott tak á Víkingum og vonum við að það haldi áfram.
Fylkir: Sigruðu Keflvíkinga í síðasta leik 2-1 á Fylkisvelli þar sem Ingimundur skoraði bæði mörk okkar Fylkismanna og kom það síðara á 90.mínútu. Þetta voru 3 mikilvæg stig til að halda okkur í baráttu efstu liða og með sigri í leiknum á morgun er óhætt að segja að Fylkismenn geta farið sáttir inní sumarfrí á meðan Íslenska U21-landsliðið keppir í Danmörku þar sem Andrés Már Jóhannesson verður í eldlínunni.
Víkingur: Víkingar sem eru nýliðar í deildinni hafa ekki náð sérstaklega góðri byrjun og má búast við erfiðu sumri hjá þeim. Eini sigurleikur þeirra kom í fyrstu umferð gegn Þór og síðan hafa þeir krækt í þrjú jafntefli meðal annars gegn FH í Krikanum sem verða að teljast mjög góð úrslit. Víkingar styrktu sig þónokkuð fyrir leiktíðina en leikmannahópur þeirra er samt sem áður brothættur og má illa við skakkaföllum. Víkingar munu leggja allt kapp á það að halda sér í deildinni í sumar og reyna að byggja ofan á það á komandi árum.
Völlurinn:
Víkingsvöllur
Áhorfendaaðstaða: 1249 (1149 sæti)
Viðureignir liðanna í gegnum tíðina:
Efsta deild:
1989: Víkingur R. – Fylkir 4-0, Fylkir – Víkingur R. 1-2
1993: Víkingur R. – Fylkir 0-2, Fylkir – Víkingur R. 1-2
2004: Fylkir - Víkingur R. 2-1, Víkingur R. – Fylkir 1-3
2006: Víkingur R. – Fylkir 0-2, Fylkir – Víkingur R. 1-0
2007: Víkingur R. – Fylkir 0-1, Fylkir – Víkingur R. 1-0
Næstefsta deild:
1994: Víkingur – Fylkir 0-3, Fylkir – Víkingur R. 4-3
1995: Fylkir – Víkingur 4-0, Víkingur R. – Fylkir 1-2
1997: Víkingur R. – Fylkir 1-0, Fylkir – Víkingur R. 4-1
1998: Víkingur – Fylkir 1-1, Fylkir – Víkingur R. 2-1
Samanlagt: 18 leikir; Fylkir 13 sigrar, 1 jafntefli, Víkingur R. 4 sigrar.
Markatala: Fylkir 34 - Víkingur R. 18
Leikmenn sem hafa spilað með báðum liðum:
Bjarni Þórður Halldórsson
Viktor Bjarki Arnarson
Björgólfur Takefusa
Andri Marteinsson
Björgvin Freyr Vilhjálmsson
Björn Viðar Ásbjörnsson
Jón Björgvin Hermannsson
Viðar Guðjónsson
Sigurgeir Kristjánsson
Lúðvík Bragason
Páll Guðmundsson
Jón Bjarni Guðmundsson
Björn Einarsson Núverandi formaður Knattspyrnudeildar Víkings
Þá hefur Aðalsteinn Aðalsteinsson fyrrum Víkings „legend" þjálfað yngri flokka hjá Fylki.
Lykilleikmenn:
Víkingur: Helgi Sigurðsson, Mark Rutgers, Baldur Ingimar Aðalsteinsson
Fylkir: Andrés Már Jóhannesson, Gylfi Einarsson, Albert Brynjar Ingason
Líkleg byrjunarlið:
Víkingur: Magnús Þormar – Walter Hjaltested, Mark Rutgers, Milos Milojevic, Hörður Bjarnason – Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Þorvaldur Sveinn Sveinsson, Halldór Smári Sigurðsson, Sigurður Egill Lárusson, Kemar Roofe – Helgi Sigurðsson.
Meiddir: Egill Atlason, Björgólfur Takefusa.
Leikbönn: Denis Abdulahi
Fylkir: Fjalar Þorgeirsson – Andri Þór Jónsson, Valur Fannar Gíslason, Þórir Hannesson, Tómas J. Þorsteinsson – Baldur Bett, Gylfi Einarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson - Andrés Már Jóhannesson, Ingimundur Níels Óskarsson, Albert Brynjar Ingason.
Meiddir: Bjarni Þórður Halldórsson, Oddur Ingi Guðmundsson, Jóhann Þórhallsson (tæpur)
Dómarar:
Dómari Kristinn Jakobsson
Aðstoðardómari 1 Smári Stefánsson
Aðstoðardómari 2 Eðvarð Eðvarðsson
Eftirlitsmaður Jóhann Gunnarsson
Varadómari Erlendur Eiríksson
Stuðlar á lengjunni:
1 Víkingur 3,05
X Jafntefli: 2,85
2 Fylkir: 1,85
Aðrir leikir í 7.umferð:
Mánudagurinn 6.júní:
19:15 Stjarnan - Grindavík
Þriðjudagurinn 7.júní
19:15 Breiðablik - Fram
19:15 Þór - ÍBV
20:00 KR- FH Stöð2 Sport
Fimmtudagurinn 30.júní
19:15 Keflavík - Valur
Upphitun á Blásteini
Fylkismenn ætla að hittast á Blásteini kl 17 þar sem kveikt verður í grillinu
Bjórinn á 600 kr fram að leik.
Nokkrir stuðningsmenn Fylkis ætla að ganga í Víkina með fána, trommur o.sfrv og vonast eftir því að fá sem flesta með og mynda skemmtilega stemningu.

