Umfjöllun: Ingimundur hetjan í blálokin
skrifað 31-05-2011 (1 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 2 - 1 Keflavík
0-1 Jóhann Birnir Guðmundsson ('3)
1-1 Ingimundur Níels Óskarsson ('24)
2-1 Ingimundur Níels Óskarsson ('90)
Ingimundur Níels Óskarsson mun eflaust stela flestum fyrirsögnunum eftir leik Fylkis og Keflavíkur enda skoraði hann bæði mörk Fylkis í sigrinum gegn Keflavík. Keflvíkingar komust yfir en Fylkismenn náðu að jafna fyrir hálfleik. Þegar allt virtist stefna í jafntefli kom sigurmarkið á 90 mínútu og gríðarlega sætur sigur þar með í höfn.
Ólafur Þórðarson gerði þrjár breytingar á liðinu frá leiknum gegn FH. Fjalar og Valur Fannar komu inn úr banni og Björgvin og Stjáni Vald fóru út úr liðinu í þeirra stað. Þá kom Baldur Bett inn fyrir Jóa Þórhalls sem var meiddur. Addi var því áfram úti hægra megin, Ingimundur vinstra megin og Alli fremstur. Gylfi var kominn fremstur á miðjuna og Ásgeir og Baldur fyrir aftan hann.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn mun betur og Fylkismenn voru hálf sofandi. Eftir aðeins 3 mínútur voru þeir búnir að ná forystunni þegar Jóhann B. Guðmundsson hitti boltann frábærlega upp í bláhornið, óverjandi fyrir Fjalar í markinu.
Fylkismenn voru í miklum vandræðum með að halda boltanum fyrsta korterið og Keflvíkingar voru mun sterkari. Adam Larsson fékk dauðafæri þegar boltinn hrökk til hans eftir aukaspyrnu Guðmundar Steinarssonar. Fjalar bjargaði okkur þá með stórkostlegri markvörslu og því mátti engu muna að Keflvíkingar kæmust í tveggja marka forystu eftir aðeins 9 mínútna leik.
Eftir afleita byrjun náðu Fylkismenn loksins smá takti og samleikur milli manna fór að ganga betur. Addi var þar manna sprækastur og hann átti fyrsta hættulega færið þegar hann kom inn frá hægri og átti fínt skot með vinstri sem small í stönginni á Keflavíkurmarkinu.
Þetta gerðist á 19 mínútu og leikurinn var áfram mjög fjörugur. Guðmundur Steinarsson átti aukaspyrnu á stórhættulegum stað sem Fjalar sló yfir markið. Addi hélt áfram að spila vel og átti frábæra sendingu inn á Ingimund sem var kominn í dauðafæri en Ómar í marki Keflavíkur bjargaði mjög vel.
Ingimundur var ekki lengi að bæta upp fyrir þetta klúður og á 23 mínútu kom jöfnunarmarkið. Ásgeir Börkur átti þá laglega skiptingu út til vinstri á Alla sem gerði vel í að draga sig út í svæðið. Alli kom honum síðan fyrir á Ingimund sem klippti hann glæsilega í hornið. Feykiflott mark hjá Fylkismönnum og klárlega mark umferðarinnar.
Guðmundur Steinarsson hélt áfram að ógna með aukaspyrnum sínum og í þetta skiptið fór boltinn rétt framhjá. Fylkismenn tóku smátt og smátt völdin þegar leið á hálfleikinn og Albert Brynjar var í dauðafæri og skallaði framhjá en var dæmdur rangstæður.
Albert ásamt Andrési og Ásgeiri voru sprækir það sem eftir var af fyrri hálfleik. Ásgeir átti þrjú skot utan teigs, tvö voru of laus og fóru beint á Ómar og það þriðja fór síðan hátt yfir. Hann lagði síðan upp þokkalegt færi fyrir Baldur Bett en skalli hans framhjá.
Liðin fóru því með jafna stöðu 1-1 inn í hálfleikinn. Seinni hálfleikur bauð ekki upp á mörg opin færi. Keflvíkingar drógu lið sitt mjög aftarlega og virtust vera hæstánægðir með eitt stig og reyndu varla að sækja hratt þegar þeir unnu boltann, heldur dúndruðu honum þess í stað langt fram völlinn.
Fylkismenn náðu upp ágætis pressu en það helsta sem þeir höfðu upp úr því voru margar hornspyrnur sem síðan skiluðu litlu. Ingimundur átti reyndar fínt tækifæri á 61 mínútu þegar hann spólaði sig upp hægra megin en skaut naumlega framhjá.
Sóknarþungi Fylkis minnkaði eftir því sem á leið og Keflvíkingar náðu að sjá til þess að færin voru nánast engin. Leikurinn virtist vera að fjara út en Fylkismenn voru þó mun meira með boltann og vildu sækja sigurinn á meðan Keflvíkingar voru að reyna að verja stigið.
Rúrik og Gústi komu inná til að reyna að hressa upp á sóknarleikinn og síðan Andri Már Hermannsson þegar fimm mínútur voru eftir.
Andri Már kom við sögu í sigurmakinu sem kom á 90 mínútu. Eftir aukaspyrnu sem Keflvíkingar skölluðu frá náði hann að skalla boltann aftur inná hættusvæðið, þar var Andri Þór sem hitti boltann enganveginn en rétt snerti hann þó áfram og Ingimundur var fyrstur að átta sig og kom honum í netið af harðfylgi.
Marki Ingimundar gríðarlega vel fagnað
Keflvíkingar fengu eitt tækifæri í uppbótartímanum, Haraldur Freyr Guðmundsson náði til boltans eftir barning í teignum en Fjalar varði á nærstönginni og Fylkismenn unnu sanngjarnan sigur.
Gríðarlega mikilvægt mark og gríðarlega mikilvæg þrjú stig í höfn. Við erum nú með 10 stig eftir 6 leiki og það væri frábært að koma okkur í 13 stig með sigri á Víkingi í næsta leik. Sá leikur er næsta mánudag 6.júní kl 20:00 og er sýndur í beinni á Stöð 2 Sport.
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 8 – Átti stórbrotna markvörslu sem hélt okkur inn í leiknum og kom í veg fyrir að Keflvíkingar næðu tveggja marka forystu. Átti svo eitt skrautlegt úthlaup í seinni hálfleik sem hefði getað endað með ósköpum en hann slapp í þetta skiptið kallinn
Andri Þór Jónsson 7 - Strákurinn er að standa vel fyrir sínu, enda hélt hann sæti sínu í byrjunarliðinu. Þarf að vinna í og bæta sig í sendingum og í fyrirgjöfum, en það kemur vonandi með tíð og tíma. „Solid" varnarlega sem endranær.
Þórir Hannesson 7 – Miðverðirnir okkar voru ekki testaðir mikið í þessum leik enda enginn alvöru senter hjá Keflvíkingum. Þórir leysti sitt hlutverk ágætlega og gerði fá mistök.
Valur Fannar Gíslason 6 – Of margar misheppnaðar sendingar, en að öðru leyti voru vandræðin ekki mjög mörg. Mjög róleg dagskrá í seinni hálfleik því Keflvíkingar hættu að sækja.
Tómas Joð Þorsteinsson 7 - Líflegur og duglegur að taka þátt í sóknarleiknum, þó að það hafi ekki allt saman gengið upp hjá honum átti hann fínasta leik.
Baldur Bett 6 - Baldur hefur oft verið öflugri og átti í talsverðu basli með að skila boltanum á samherja, þó sérstaklega í byrjun leiks. Vann sig ágætlega inn í leikinn en var greinilega ekki tilbúinn til að klára 90 mínútur.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 7 - Kom ágætlega út í leiknum, á fullu allan tímann. Mér fannst miðjumenn okkar vera talsvert öflugri en miðjan hjá Keflavík. Var óhræddur við að skjóta og átti nokkur langskot í fyrri hálfleik en reyndar var ekkert af þeim sérstaklega hættulegt.
Gylfi Einarsson 7 - Var ekkert sérstaklega áberandi og líður eflaust betur örlítið aftar á miðjunni. Átti ágætis kafla inn á milli þar sem náði að dreifa spilinu út á bakverðina og kantana.
Andrés Már Jóhannesson 8 – Einn af bestu mönnum vallarins. Átti skot í stöng og var gríðarlega virkur í spilinu og sennilega besti maður vallarins í fyrri hálfleik, en sást alls ekki jafn mikið í þeim síðari.
Albert Brynjar Ingason 7 – Manni fannst hann vera líklegur til að skora allan tímann og það er alltaf erfitt að eiga við hann. Lagði upp mark og kom sér í tvö færi en var í bæði skiptin rangstæður.
Ingimundur Níels Óskarsson 9 – Hetja leiksins með tvö mörk. Var mjög ógnandi allan og hefði getað skorað tvö í viðbót, í fyrri hálfleik þegar hann lét Ómar verja frá sér í dauðafæri og síðan snemma í seinni hálfleik þegar hann skaut rétt framhjá . Gríðarlega mikilvæg mörk og framlag til liðsins.
Rúrik Andri Þorfinnsson 6 – Sást ekki mikið en ógnaði með gríðarlegum hraða. Náði í nokkur skipti að stinga bakvörð Keflvíkinga af en þá vantaði aðeins betri sendingu fyrir markið.
Kjartan Ágúst Breiðdal 6 - Komst ekki alveg í takt við leikinn og var frekar mistækur.
Andri Már Hermannsson - Var ekki lengi inná en nógu lengi til að eiga skallann inn á teig sem endaði með að Ingimundur skoraði.
Fylkir (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson - Andri Þór Jónsson, Þórir Hannesson, Valur Fannar Gíslason, Tómas Joð Þorsteinsson - Baldur Bett (Rúrik Andri Þorfinnsson 67'), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Gylfi Einarsson (F) (Andri Már Hermannsson 85') - Andrés Már Jóhannesson, Ingimundur Níels Óskarsson, Albert Brynjar Ingason (Kjartan Ágúst Breiðdal 73').
Byrjunarlið Fylkis
Ónotaðir varamenn: Pétur Finnbogason (M), Daníel Freyr Guðmundsson, Davíð Þór Ásbjörnsson, Kristján Valdimarsson.
Keflavík: Ómar Jóhannsson - Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson (F) , Goran Jovanovski, Viktor Smári Hafsteinsson - Einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson, Jóhann Birnir Guðmundsson (Bojan Stefán Ljubicic 83') - Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson (Magnús Þórir Matthíasson 62'), Hilmar Geir Eiðsson.
Ónotaðir varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson (M), Arnór Ingvi Traustason, Theodór Guðni Halldórsson, Ásgrímur Rúnarsson, Magnús Þór Magnússon.
Markskot: Fylkir 12(7) - Keflavík 11 (5)
Horn: Fylkir 8 - Keflavík 3
Aðstæður: Fínt veður og Fylkisvöllurinn lítur betur út en áður.
Dómari: Erlendur Eiríksson 8 – Góður.
Aðstoðardómarar: Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon.
Maður leiksins: Ingimundur Níels Óskarsson Fylki - Gerði sannarlega gæfumuninn í leiknum. Fyrra markið auðvitað algerlega frábært og það síðara gríðarlega mikilvægt. Hann fær að launum gjafabréf fyrir tvo á BK kjúkling.
Gul spjöld: Engin. Samkvæmt leikskýrslu á ksi.is er Willum Þór Þórsson þjálfari Keflvíkinga þó skráður með áminningu á 94 mínútu.
Áhorfendur: 1504


eftir Valli 04:19 31-05-2011
Frábær umfjöllun eins og alltaf! Frábær sigur og fyllilega sanngjarn líka. Svo er það bara 3 stig í Víkini og þá förum við sáttir til Danmerkur.