Upphitun: Fylkismenn mæta brjálaðir í Krikann
skrifað 25-05-2011 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
FH - Fylkir
Valitor bikarinn 32 liða úrslit
Fimmtudagur, 26.maí 2011
Kl.20:00
Kaplakriki
Beint á Stöð 2 Sport
Veðurspá: Lítils háttar rigning, 4-6°c
Vindur: 6-8 m/s
Fylkismenn fá verðugt verkefni á fimmtudagskvöldið þegar þeir spila fyrsta leik sinn í Valitor bikarnum. Við drógumst gegn bikarmeisturum FH á útivelli í 32 liða úrslitum og því ljóst að okkar menn þurfa toppleik til að komast áfram í 16 liða úrslit.
Fylkir: Okkar menn hafa verið nokkuð kaflaskiptir í sínum leik og stöðugleika hefur vantað. Við höfum náð góðum sigrum gegn sterkum andstæðingum eins og Val og ÍBV en þess á milli dottið niður og lent í vandræðum eins og í síðasta leik gegn Breiðabliki. Í leiknum gegn FH er hins vegar að duga eða drepast, ef sá leikur tapast getum við kvatt bikarkeppnina. Það er því á hreinu að okkar menn munu mæta vígbúnir til leiks og berjast fyrir hverjum einasta bolta af lífi og sál.
FH: FH-ingar hafa farið mun verr af stað en flestir bjuggust við. Þeir hafa verið frekar ólíkir sjálfum sér og Heimir Guðjóns hefur kvartað mikið yfir því að leikmennirnir séu ekki að leggja sig nægilega vel fram og að þeir hafi orðið undir í baráttunni. Hópur þeirra er mjög breiður og skipaður frábærum leikmönnum sem hafa flestir verið lengi saman. Auk þess hafa þeir bætt við sig mönnum eins og Hólmari og Hannesi sem eru feykilega öflugir leikmenn. Veikleiki þeirra er kannski helst hraðinn í vörninni en og vonandi geta okkar menn nýtt sér það.
Viðureignir liðanna frá 2000:
2001: FH – Fylkir 0-0, Fylkir – FH 0-2
2002: FH – Fylkir 0-3, Fylkir – FH 2-1, Fylkir – FH 4-1 (Bikarkeppni)
2003: Fylkir – FH 3-0, FH – Fylkir 1-2
2004: Fylkir – FH 1-0, FH – Fylkir 1-0
2005: Fylkir – FH 2-5, FH – Fylkir 1-2
2006: Fylkir – FH 1-2, FH – Fylkir 2-2
2007: FH – Fylkir 0-0, Fylkir – FH 1-2
2008: FH – Fylkir 1-2 , Fylkir – FH 0-2
2009: FH – Fylkir 3-2, Fylkir – FH 1-1,
2010: Fylkir – FH 2-2, FH – Fylkir 4-2
Samanlagt: 21 leikur; Fylkir 8 sigrar, 5 jafntefli, FH 8 sigrar.
Markatala: Fylkir 32 – FH 31
Það er alltaf jafn gaman að kíkja á mark Kristins Tómassonar sem rændi FH Íslandsmeistaratitlinum í lokaumferðinni 1989
Leikmenn sem hafa spilað með báðum liðum
Allan Dyring
Andri Marteinsson
Baldur Bett
Erlendur Þór Gunnarsson
Halldór Arnar Hilmisson
Ólafur Hafsteinsson
Ólafur Páll Snorrason
Ólafur Þór Gunnarsson
Sigurður K. Sveinbjörnsson
Leifur Sigfinnur Garðarsson og Jón Þórir Sveinsson hafa báðir leikið með FH og þjálfað Fylki.

Fagmaðurinn Óli Haffa hefur leikið í búningi beggja liða
Lykilmenn:
FH Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Atli Viðar Björnsson, Matthías Vilhjálmsson.
Fylkir Gylfi Einarsson, Þórir Hannesson, Ingimundur Níels Óskarsson, Andrés Már Jóhannesson.
Líkleg byrjunarlið:
FH Gunnleifur Vignir Gunnleifsson – Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Freyr Bjarnason, Pétur Viðarsson, Viktor Örn Guðmundsson – Hólmar Örn Rúnarsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson (F) – Atli Guðnason, Atli Viðar Björnsson, Hannes Þorsteinn Sigurðsson
Meiddir: Ólafur Páll Snorrason
Fylkir Ísak Björgvin Gylfason - Andri Þór Jónsson, Kristján Valdimarsson, Þórir Hannesson, Kjartan Ágúst Breiðdal – Gylfi Einarsson (F), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Andrés Már Jóhannesson – Ingimundur Níels Óskarsson, Jóhann Þórhallsson, Tómas Joð Þorsteinsson.
Leikbönn: Fjalar Þorgeirsson, Valur Fannar Gíslason
Meiddir: Bjarni Þórður Halldórsson, Baldur Bett (tæpur), Oddur Ingi Guðmundsson, Albert Brynjar Ingason
Dómarar:
Dómari Magnús Þórisson
Aðstoðardómari 1 Gunnar Sverrir Gunnarsson
Aðstoðardómari 2 Birkir Sigurðarson
Eftirlitsmaður Þórður Ingi Guðjónsson
Stuðlar á Lengjunni:
1 FH: 1,25
X Jafntefli: 3,65
2 Fylkir 5,70
Aðrir leikir í 32 liða úrslitum Valitor bikarsins:
Þriðjudagurinn 24.maí
Hamar sigraði KFS 2-0
Miðvikudagurinn 25.maí:
18:00 BÍ/Bolungarvík - Reynir S.
18:00 Kjalnesingar - ÍBV
19:15 Berserkir - Fram
19:15 ÍR - Þróttur R.
19:15 Fjölnir - Selfoss
19:15 Valur - Víkingur Ó.
19:15 KA - Grindavík
19:15 Haukar - KF
19:15 Stjarnan - KR
19:15 Njarðvík - HK
Fimmtudagurinn 26.maí
19:15 Breiðablik - Völsungur
19:15 KV - Víkingur R.
19:15 Þór - Leiknir F.

