Umfjöllun: Bikardraumar lifa enn
skrifað 24-06-2008 (7 athugasemdir)
Þróttur 4-6 Fylkir (eftir vítaspyrnukeppni)
1-1 eftir venjulegan leiktíma og 2-2 eftir framlengingu
1-0 Andrés Vilhjálmsson (’36)
1-1 Jóhann Þórhallsson (’37)
1-2 Jóhann Þórhallson (’94)
2-2 Rafn Andri Haraldsson (’110)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkismenn unnu gríðarlega þýðingarmikinn sigur í frábærum bikarslag á Valbjarnarvelli, eftir mikla dramatík og spennu höfðu Fylkismenn betur eftir vítaspyrnukeppni þar sem Fjalar Þorgeirsson var hetja þeirra appelsínugulu.
Tvær breytingar voru á Fylksliðinu frá síðasta leik gegn KR, Guðni Rúnar Helgason og Halldór Hilmisson komu inn í stað Ásgeirs Barkar Ásgeirssonar og Allan Dyring.
Það kom mönnum hinsvegar töluvert á óvart að Gunnar Oddsson þjálfari Þróttar gerði þónokkrar breytingar á sínu liði og skipti m.a. um markvörð.
Leikurinn fór hægt af stað, en leikmenn beggja liða sýndu ágætis tilþrif með knöttinn og reyndu að halda honum á jörðinni í stað þess að beita háloftaspyrnum enda voru Grikkir að spila á sama tíma í EM og sáu algjörlega um háloftaspyrnur kvöldsins.
Fylkismenn voru full lengi í gang í leiknum og Þróttarar voru öllu sprækari, þó ekki mætti mikið sjá á milli liðanna. Fylkismenn fengu þó öllu betri færi, fyrst Valur Fannar Gíslason og síðan Ian Jeffs.
Fylkismenn reyndu síðan að auka sóknarþungann og það var einmitt rétt eftir þunga sókn Fylkis sem Þróttarar komust í skyndiupphlaup sem endaði með því að Andrés Vilhjálmsson skoraði fyrsta mark leiksins. Virkilega vel útfærð skyndisókn hjá Þrótturum.
Þeir voru hins vegar enn að fagna markinu þegar Jóhann Þórhallson náði skoti utan teigs sem virtist frekar hættulaust en Andri Fannar Helgason misreiknaði knöttinn illa og náði ekki að afstýra marki og því staðan orðin jöfn.
Ekkert markvert gerðist áður en Valgeir Valgeirsson prýðilegur dómari leiksins blés til hálfleiks.
Strax í byrjun síðari hálfleiks fengu Fylkismenn gott tækifæri á að taka forystuna á ný en Andri Fannar sá við Peter Gravesen í tvígang.
Fylkismenn réðu lögum og lofum í síðari hálfleik, þótt Þróttarar hafi fengið sín færi, en þegar skammt var eftir af leiknum fékk Guðni Rúnar Helgason upplagt færi en skóflaði boltanum yfir.
Nokkrum andartökum áður en venjulegur leiktími var úti fékk Hermann Aðalgeirsson knöttinn rétt utan teigs, lék á tvo Þróttara og hlóð fallbyssuna en skaut naumlega framhjá marki Þróttara.
Því þurfti að grípa til framlengingar og Fylkismenn héldu áfram að láta knöttinn ganga vel á milli sín og þurftu ekki að bíða nema í þrjár mínútur þegar Jóhann Þórhallsson kom þeim yfir. Einkar laglegt hjá Jóhanni sem er í miklum markaham þessa dagana.
Skömmu síðar fékk Hemmi Aðalgeirs að líta rauða spjaldið fyrir frekar litlar sakir, fékk sitt annað gula spjald eftir frekar saklausa tæklingu.
Fylkismenn féllu nú aftar á völlinn og gáðu ekki að sér þegar Rafn Andri Haraldsson hélt vonum Þróttara á lofti með góðu skoti framhjá Fjalari í markinu.
Þetta tryggði dramaþyrstum bikaráhorfendum vítaspyrnukeppni þar sem við Fylkismenn bárum sem betur fer sigur úr býtum. Hér kemur svo nákvæm lýsing á henni.
Vítaspyrnukeppnin:
0-1 Valur Fannar Gíslason skoraði af stóískri ró og sendi Andra Fannar í vitlaust horn.
0-1 Hjörtur Hjartarson sem er venjulega örugg vítaskytta, lét Fjalar Þorgeirsson verja frá sér.
0-2 Peter Gravesen vítapyrnusérfræðingur Fylkis hafði heppnina með sér þegar hann skaut undir Andra sem fór í rétt horn.
1-2 Rafn Andri Helgason skoraði með fínu skoti í bláhornið.
1-3 Guðni Rúnar Helgason steig fram sallarólegur og plantaði boltanum í netið
1-3 Dennis Danry með frekar slakt víti og sjóðheitur Fjalar Þorgeirsson varði spyrnuna.
1-3 Ian Jeffs gat tryggt Fylki áfram en brágst bogalistinn þegar Andri varði frá honum
2-3 Jens Elvar Sævarsson þrumaði öruggu víti vinstra megin uppi í hornið, óverjandi fyrir Fjalar.
2-4 Allan Dyring tryggði Fylki í 16-liða úrslit með fanta öruggri spyrnu.
Feykilega mkikilvægt fyrir okkur Fylkismenn að komast áfram í bikarnum, bikarinn er mót sem við gætum hæglega faraið langt í ef við erum rétt stemmdir. Þessi sigur var erfið fæðing enda Þróttar erfiðir andstæðingar þrátt fyrir að hafa ekki teflt fram sínu allra sterkasta liði.
Fylkismenn spiluðu á köflum fínan fótbolta, boltinn rúllaði vel og okkur tókst ágætlega að skapa marktækifæri. Vörnin er hinsvegar áhyggjuefni, við erum búnir að fá á okkur einna flest mörk í deildinni og það er vonbrigði hversu langt er síðan liðið hélt markinu hreinu.
Breytingin að setja Val Fannar á miðjunni virkaði mjög vel, hann átti mjög góðan leik, vann aragrúa af boltum og kom með gott jafnvægi milli miðju og varnar.
Nú er það bara að vinna næstu fjóra leiki í bikarnum og þá er titilinn okkar, vissulega ekki auðvelt en við verðum að hafa sterka trú á að það sé hægt svo að draumurinn verði að veruleika.
Þróttur 4-5-1: Andri Fannar Helgason, Jón Ragnar Jónsson, Þórður Steinar Hreiðarsson, Jens Elvar Sævarson, Ingvi Sveinsson, Dennis Danry, Hallur Hallsson (Rafn Andri Haraldsson ’73), Arnljótur Ástvaldsson, Magnús Már Lúðvíksson, Ismael Silva Franscisco (Hjörtur Hjartarson, ’63), Andrés Vilhjálmsson (Bjarni Óskar Þorsteinsson ’80)
Ónotaðir varamenn: Bjarki Freyr Guðmundsson, Eysteinn Pétur Lárusson, Kristján Ómar Björnsson, Trausti Eiríksson.
Fylkir 4-3-3: Fjalar Þorgeirsson 8, Guðni Rúnar Helason 6, Kristján Valdimarson 7, Þórir Hannesson 7, Kjartan Ágúst Breiðdal 7, Ólafur Ingi Stígsson 5 (Hermann Aðalgeirsson 6, 56), Valur Fannar Gíslason 8, Halldór Hilmisson 7 (Allan Dyring ‘109), Ian Jeffs 6, Jóhann Þórhallsson 8 (Kjartan Andri Baldvinsson ‘111), Peter Gravesen 7.
Ónotaðir varamenn: Björn Metúsalem Aðalseinsson, Viðar Guðjónsson, Björn Orri Hermannsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson.
Horn: Fylkir 5– Þróttur 8
Dómari: Valgeir Valgeirsson stóð sig með stakri prýði
Aðstoðardómarar: Einar K. Guðmundsson og Oddbergur Eiríksson
Aðstæður: Með besta móti
Maður leiksins: Fjalar Þorgeirsson sýndi enn snilli sína í markinu og var hetja Fylkismanna í vítakeppninni.
Gul spjöld: Þórir Hannesson (Fylkir, '24), Andrés Vilhjálmsson (Þróttur, '45), Denis Danry (Þróttur, '79), Ingvi Sveinsson (Þróttur, '106), Hermann Aðalgeirsson (Fylkir, '107).
Rautt spjald: Hermann Aðalgeirsson (Fylkir, '111).
Áhorfendur: 367, getur vart talist ásættanlegt.


eftir elvarorn 02:35 24-06-2008
Flottur Krisz, klikkar ekki... viljum bikarinn í árbæinn!
eftir Dilbert 03:37 24-06-2008
Hvar í veröldinni finnast betri umfjallanir um leiki. Hvergi svo ég viti af. Var einn af 300 á þessum leik og gaman að rifja hann upp svona alveg lið fyrir lið.
eftir Viggó 04:05 24-06-2008
Frábær umfjöllun, greinilegt að hausin á Sandy Cohen sé komin í gang eftir lettlandsför.
eftir Hyppia 06:46 24-06-2008
Við förum á steininn 2x í viku og mætum aldrei í líkamsrækt
Við förum til Lettlands um helgar með mynd af Kidda á kassanum.
Krissi þú og félagarnir voruð frábærir í Lettlandi hvenær kemur ferðasagan.
eftir fylkismadur 08:45 24-06-2008
Glæsileg umfjöllun! þetta var snildar sigur í laugardalnum
eftir freysi 10:18 24-06-2008
Snilldar umfjöllun hjá krissa eins og vanalega
eftir Krissi 12:11 25-06-2008
Ferðasagan kemur vonandi sem fyrst, hún verður mögnuð.