Fylkir áfrýjar brottvísun Fjalars
skrifað 24-05-2011 (0 athugasemdir)
Knattspyrnudeild Fylkis hefur sent inn til Aganefndar KSÍ athugasemdir varðandi brottvísun Fjalars Þorgeirssonar í leiknum gegn Breiðablik á sunnudag.
Fylkir telur að sú ákvörðun dómara leiksins að vísa Fjalari af velli hafi verið röng, sbr. Knattspyrnulög KSÍ (12 grein, bls. 20) sem eiga að leiða til brottvísunar en þar segir:
„Leikmanni, varamanni eða leikmanni sem skipt hefur verið út af skal vísað af leikvelli og sýnt rautt spjald, ef hann fremur eitthvert eftirfarandi sjö leikbrota:
6. hefur augljóst marktækifæri af mótherja, sem er á leið að marki leikmannsins, með leikbroti sem refsað er fyrir með aukaspyrnu eða vítaspyrnu"
Refsing Fylkis við broti Fjalars er því langt umfram efni brotsins þar sem leikmaðurinn lék knettinum til hliðar eða frá marki!
Lögin eru skýr og var þeim beitt rangt í leiknum samkvæmt orðanna hljóðan.
Refsigleði dómarans og túlkun hans og lögum er einnig óskiljanleg vegna þess að Alþjóðanefnd FIFA (IFAB) hefur ákveðið að skoða hina svokölluðu „þreföldu refsingu" þegar einföldu broti innan teigs er refsað með, víti, brottvísun og leikbanni þar sem hún þykir afar ósanngjörn. Nánar hér (3.22 Grein 12) sem kynnt var dómurum fyrir mót.
Það versta er að ekki er hægt að leiðrétta afglöp dómara í leik með áfrýjun sem þessari því að sjálfkrafa leikbann við brottvísun stendur alltaf en áfrýjun getur aðeins leitt til refsilækkunar ef um fleiri en eins leiks bann sé um að ræða eða þyngingar á dómi.
Fjalar verður því að öllum líkindum í leikbanni gegn FH á fimmtudag í bikarnum en með áfrýjuninni vill Knattspyrnudeild Fylkis vekja athygli á að ekki skuli vera hægt að breyta refsingu eftir leik þegar sýnt þyki að um brot á Knattspyrnulögum hafi verið að ræða nema að röngum manni hafi verið refsað.

