STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Dapurt tap í Kópavogi

skrifað 23-05-2011 (0 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Breiðablik 3 - 1 Fylkir
1-0 Kristinn Steindórsson (13)
2-0 Kristinn Steindórsson (18)
2-1 Þórir Hannesson (32)
3-1 Kristinn Steindórsson (71)

Fylkismenn þurftu að sætta sig við 3-1 tap á Kópavogsvelli í gær gegn Breiðabliki. Það sem var enn verra var að okkar menn luku leiknum níu eftir að Valur Fannar Gíslason og Fjalar Þorgeirsson markvörður fengu báðir vafasöm rauð spjöld.

Óli Þórðar stillti upp nákvæmlega sama liði og vann frækinn sigur á Valsmönnum og í raun var enginn ástæða til annars. Þó leikmennirnir væru þeir sömu, þá var ekki sama baráttuþrek í mönnum og í síðasta leik og Blikarnir tóku strax öll völd á vellinum.

Fylkismenn komust ekki í takt við leikinn og Blikarnir gengu á lagið. Kristinn Steindórsson skoraði fyrsta markið á 13 mínútu og var það afar klaufalegt af hálfu okkar drengja. Eftir hornspyrnu og smá klafs í teignum var Kristinn gapandi frír og skoraði af öryggi þegar boltinn barst til hans á fjærstöng. Dekkningin klikkaði þarna illa og alltaf svekkjandi að fá á sig mark eftir fast leikatriði.

Ekki batnaði ástandið fimm mínútum síðar þegar Blikar bættu við marki. Það kom eftir vandræðagang hjá okkar mönnum, Ástralinn var á undan Stjána Vald í boltann, kom honum áfram á Guðmund Kristjáns sem sendi út á Kristinn Steindórsson sem lék á Þóri sem seldi sig svakalega og Kristinn átti í engum vandræðum með að skora sitt annað mark.

Fylkismenn voru því lentir tveimur mörkum undir eftir 18 minútur og manni var sannarlega hætt að lítast á blikuna í stúkunni. Blikar voru áfram með yfirhöndina og fóru sér enn hægar í sínum aðgerðum og héldu boltanum vel. Spilið hjá okkar mönnum komst aldrei í gang og við vorum mikið að tapa boltanum á slæmum stöðum sem er stórhættulegt gegn liði eins og Breiðablik.

Fylkismenn skánuðu aðeins þegar leið á leikinn og náðu að koma inn mikilvægu marki. Addi tók þá aukaspyrnu stutt út á Tomma sem átti frábæra fyrirgjöf þar sem markamaskínan Þórir Hannesson hamraði boltann inn með pönnunni. Þetta gerðist á 32 mínútu og Fylkismenn voru þá einum færri eftir að Alli hafði meiðst. Því miður þurfti Alli að fara af velli og inn kom Andri Þór Jónsson sem fór í vinstri bakvörðinn, Tommi á vinstri kantinn og Jói fór upp á topp.

Færin voru svo sem ekki mjög mörg í leiknum en Fylkismenn gátu ágætlega unað við stöðuna 2-1 miðað við hvernig leikurinn hafði þróast enda ennþá vel inn í leiknum.

Fylkismenn byrjuðu svo síðari hálfleikinn mun betur en þann fyrri. Þeim gekk betur að halda boltanum og settu Blika undir smá pressu og voru nokkuð hættulegir í föstum leikatriðum. Því miður gekk erfiðlega að skapa opin færi og átti það við um bæði lið.

Vendipunktur leiksins var síðan á 64 mínútu þegar Valur Fannar fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Hann hafði skömmu áður fengið gult spjald fyrir brot sem var hárréttur dómur. Seinna gula spjaldið var hinsvegar umdeildara og frekar „soft". Valur braut á Andra Yeoman sem var að sleppa frá honum en Andri ýkti brotið talsvert og kannski blekkti það dómarann. Auðvitað er kannski hægt að réttlæta þetta spjald, en miðað við þá línu sem dómarinn var búinn að leggja í leiknum þá kom það á óvart.

Í fyrri hálfleik sleppti hann t.d. Blika sem tók Adda niður þegar hann var að komast í ákjósanlega stöðu, þannig að það vantaði algjörlega samræmið í dómgæsluna hjá honum.

Vandræði Fylkismanna jukust svo enn frekar þegar Fjalar markvörður fékk beint rautt fyrir að brjóta á Kristni Steindórssyni. Þetta fannst mér mjög strangur dómur, þar sem Kristinn var á leið út frá marki og varnarmenn Fylkis voru mættir á marklínuna. Brotið var líka alls ekki gróft eða af ásetningi, þannig ég held að gula spjaldið hefði átt að nægja þarna, enda held ég að enginn úr Breiðabliksliðinu hafi verið að biðja sérstaklega um rautt spjald.

Þetta var til þess að hinn ungi Ísak Björgvin Gylfason sem verður 18 ára næsta föstudag kom inn í markið og verður að öllum líkindum á milli stanganna í næsta leik gegn FH.

Kristinn Steindórsson skoraði úr vítaspyrnunni og þar með voru úrslitin ráðin staðan 3-1 en samt ennþá um 20 mínútur eftir.

Fylkismenn gerðu þó vel 9 á móti 11 og náðu að forða því að Bikar skoruðu fleiri mörk. Þeir fengu þó eðlilega ágætis tækifæri til þess en varnarmenn gerðu vel í að henda sér fyrir skot þeirra og í lokin bjargaði Stjáni skoti frá Marko Pavlov á marklínu.

Hjá okkar mönnum bar hæst tvö langskot frá Tomma og aukaspyrna frá Davíð sem fór framhjá. Lokaniðurstaðan því 3-1 og ljóst að Fjalar og Valur Fannar verða í banni í næsta leik og svo er óvissa með Alla sem meiddist.

Næsti leikur er mjög erfiður. Gegn bikarmeisturum FH í Kaplakrika í 32 liða úrslitum Valitor bikarsins næsta fimmtudag kl 20 og er leikurinn sýndur í beinni á Stöð 2 Sport.

Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:

Þetta var einn af þeim dögum þar sem fáir náðu sér á strik og kannski óþarfi að fara nákvæmlega í frammistöðu hvers og eins í löngu máli. Það var kannski helst Tommi sem mér fannst standa upp úr.

Fjalar Þorgeirsson 6

Þórir Hannesson 6

Kristján Valdimarsson 5

Valur Fannar Gíslason 5

Tómas Joð Þorsteinsson 7

Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6

Gylfi Einarsson 6

Andrés Már Jóhannesson 6

Albert Brynjar Ingason 6 .

Ingimundur Níels Óskarsson 5

Jóhann Þórhallsson 5

Andri Þór Jónsson 6

Davíð Þór Ásbjörnsson 6

Ísak Björgvin Gylfason -

Breiðablik Ingvar Kale - Arnór Sveinn Aðalsteinsson (Andri Rafn Yeoman 46'), Elfar Freyr Helgason, Finnur Orri Margeirsson (F), Kristinn Jónsson - Guðmundur Kristjánsson, Jökull Elísabetarsson, Rafn Andri Haraldsson (Marko Pavlov 82') - Arnar Már Björgvinsson, Kristinn Steindórsson, Dylan Jacob McAllister (Tómas Óli Garðarsson 82')

Ónotaðir varamenn: Sigmar Ingi Sigurðarson (M), Kári Ársælsson, Viktor Unnar Illugason, Olgeir Sigurgeirsson.

Fylkir (4-3-3): Fylkir: Fjalar Þorgeirsson - Þórir Hannesson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason, Tómas Joð Þorsteinsson - Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Gylfi Einarsson (F), Andrés Már Jóhannesson (Ísak Björgvin Gylfason (M), 70') - Ingimundur Níels Óskarsson , Jóhann Þórhallsson (Davíð Þór Ásbjörnsson 65´), Albert Brynjar Ingason (Andri Þór Jónsson 34).

Ónotaðir varamenn: Daníel Freyr Guðmundsson, Andri Már Hermannsson, Trausti Björn Ríkharðsson, Hjörtur Hermannsson.

Markskot: Breiðablik 15 (7) - Fylkir 8 (4)

Horn: Breiðablik 5 - Fylkir 1

Aðstæður: Fínar.

Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson – Afleitur. Skil ekkert í því að Gunnar Jarl sitji upp í stúku þegar heil umferð er í gangi og að þessi manngarmur sem að ég held hefur ekkert dæmt í deildinni í sumar sé settur á leikinn. Enginn taktur eða samræmi í dómgæslunni hjá honum og rauðu spjöldin voru ansi hörð og sérstaklega það síðara. Að mínu mati ekki klár í efstu deild.

Aðstoðardómarar: Gylfi Már Sigurðsson og Leiknir Ágústsson

Maður leiksins: Kristinn Steindórsson Breiðabliki - Þarf ekkert að ræða það frekar.

Gul spjöld: Tómas Þorsteinsson (45 ), Dylan McAllister (47), Valur Fannar Gíslason (62), Andri Þór Jónsson (83).

Rauð spjöld: Valur Fannar Gíslason (64), Fjalar Þorgeirsson (68).

Áhorfendur: 1260

Myndir úr leiknum