Umfjöllun: Vonbrigði á heimavelli
skrifað 12-05-2011 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 0-0 Fram
Fylkismenn og Framarar gerðu markalaust jafntefli í lítilfjörlegum leik í Árbænum í kvöld. Fylkismenn hafa nú krækt í fjögur stig í þremur leikjum en aðeins eitt þeirra hefur komið á heimavelli.
Ólafur Þórðarson neyddist til að gera eina breytingu á sigurliðinu úr Eyjum. Gústi var meiddur og Tommi kom því inn í vinstri bakvarðarstöðuna í hans stað.
Leikurinn fór ágætlega af stað og strax í upphafi komust Fylkismenn í fínustu sókn þar sem Andrés Már slapp innfyrir og náði þokkalegu skoti sem Ögmundur í markinu sló frá og síðan gerði Kristján Hauksson vel í að skófla honum afturfyrir. Alli beið eins og gammur fyrir aftan hann en því miður var Kristján á undan í knöttinn.
Jón Guðni Fjóluson átti bærilega tilraun skömmu síðar en Fjalar varði ágætlega skot hans sem kom beint úr aukaspyrnu. Hinumegin náði Jói Þórhalls síðan ekki nægilega góðum skalla þrátt fyrir mjög frambærilega fyrirgjöf Tomma frá vinstri. Fjörið í upphafi virtist gefa fyrirheit um fjörugan leik en svo var nú aldeilis ekki raunin.
Liðin fengu auðvitað hálffæri eins og gengur og gerist en eina alvöru hættan skapaðist þegar Arnar Gunnlaugsson var óvaldaður í teignum og náði skoti, Fjalar varði í stöngina og síðan var Valur Fannar á undan sóknarmanni Fram og náði að hreinsa frá á ögurstundu.
Ingimundur fékk ágætis möguleika rétt áður en flautað var til leikhlés þegar hann tók vel á móti boltanum við vítateigshornið en náði ekki almennilegu skoti og Ögmundur lenti aldrei í teljandi vandræðum í markinu.
Markalaust í hálfleik og það væri lygi að segja að fjörið hafi aukist mikið í síðari hálfleik, þvert á móti var leikurinn enn daufari en í fyrri hálfleik og það kom í raun aldrei kafli þar sem annað liðið náði að setja andstæðinganna undir verulega pressu.
Almarr Ormarsson minnti á sig í upphafi síðari hálfleiks og átti þrusugott skot vel utan af velli sem fór naumlega yfir markið.
Á 60 mínútu fengu Fylkismenn aukaspyrnu. Addi sendi fyrir og Þórir tók sig til og flikkaði boltann áfram og gerði það augljóslega með hendinni, Gylfi Einarsson fékk í kjölfarið algjört dauðafæri en skalli hans fór yfir markið. Handknattleikstilburðir Þóris fóru hinsvegar framhjá dómaratrióinu sem dæmdi ekkert. Framararnir voru skiljanlegir æfir út í dómaratríóið að missa af þessu og hefðu orðið margfalt brjálaðari ef að Gylfi hefði skallað í markið og okkar menn hefðu komist yfir á kolólöglegu marki. Það mátti þó alls ekki miklu muna og það kom manni á óvart að Gylfi skyldi skalla yfir en ekki í netið.
Það var hins vegar þegar tuttugu og þrjár mínútur voru eftir sem Fylkismenn komust næst því að skora. Jóhann Þórhallsson átti þá skot í varnarmann, fékk boltann aftur og hamraði hann með hægri á lofti, já takk fyrir, rakleiðis í stöngina. Boltinn barst síðan af stönginni út í teiginn þar sem Valur Fannar náði skoti sem varnarmaður Framara náði að henda sér fyrir.
Þarna hefði sannarlega verið frábær tími til að ná forystunni en því miður var lukkan ekki á okkar bandi að þessu sinni. Fleiri markverð færi voru ekki á dagskrá og voru Framarar þó heldur líklegri ef eitthvað var og þar var Jón Guðni Fjóluson atkvæðamestur og alveg óhræddur við að láta vaða á markið.
Niðurstaðan því nokkuð sanngjarnt 0-0 jafntefli sem menn munu gleyma fljótt. Það er því gott að það sé stutt í næsta heimaleik okkar en hann er næsta sunnudag gegn Valsmönnum kl 19:15. Þar verða okkar drengir að herða sig upp og mæta klárir til leiks. Valsmenn munu mæta særðir eftir að Eyjamenn skemmdu fyrir þeim afmælispartýið á Hlíðarenda í kvöld.
Eins og Óli Þórðar nefndi réttilega í samtali við okkur eftir leikinn fannst manni vanta meira hungur og meiri greddu í að berjast fyrir að taka öll stigin í leiknum. Seinni hálfleikurinn var sérstaklega of daufur og maður var alltaf að bíða eftir því að einhverjir tæki af skarið, eða að sóknarþunginn myndi aukast en leikurinn fjaraði einhvernveginn bara út.
Betur má ef duga skal og nú er aðalmálið að einsetja sér og byrja að vinna markvisst að því markmiði að taka þrjú stig næsta sunnudag.
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 7 – Öruggur í sínum aðgerðum og greip vel inn í þegar á þurfti. Stóð vel fyrir sínu.
Þórir Hannesson 6 – Leysir bakvarðarstöðuna mjög vel varnarlega, en er sem fyrr í vandræðum með að sækja. Eini sóknarbakvörðurinn sem við eigum hægra megin er Addi sem er auðvitað að spila á miðjunni þannig að Þórir er ágætis lausn þarna.
Kristján Valdimarsson 8 - Kannski skásti maður Fylkis, steig ekki feilspor í vörninni og var pottþéttur á sínu. Vantar örlítið meira öryggi á boltanum en það er svo sem ekkert nýtt.
Valur Fannar Gíslason 7 – Virkaði frekar þungur og klaufalegur á mig sérstaklega í fyrri hálfleik en það er skiljanlegt þar sem hann hefur lítið æft. Hann nýtti hinsvegar alla sína reynslu og þekkingu á leiknum til að komast í gegnum hann og gerði það vel.
Tómas Joð Þorsteinsson 7 - Fínn í leiknum og átti ágætis spretti án þess kannski að eiga neinn glansleik. Komst vel frá sínu og leysti stöðuna býsna vel í fjarveru Gústa
Baldur Bett 6 - Spilaði fyrri hálfleikinn og fór meiddur útaf í hálfleik. Frekar lítið í boltanum en gerði ágætlega í skyldum varnartengiliðs eins og til dæmis að loka svæðum.
Gylfi Einarsson 7 - Skilaði sínu ágætlega án þess að skara fram úr. Hann kemur með ró á boltann inn á miðjuna og góðar sendingar, þegar orðinn algjör lykilmaður í liðinu og flott að hann sé að spila 90 mínútur í hverjum leik.
Andrés Már Jóhannesson 6 – Þarf að stíga upp og taka það afgerandi hlutverk sem honum er ætlað í sumar. Fékk ágætis færi í byrjun en því miður náði hann ekki að nýta það. Krafa á mark eða stoðsendingu í næsta leik!
Albert Brynjar Ingason 6 – Komst ekki í mikinn takt við leikinn frekar en aðrir sóknarmenn Fylkis. Gerði ágætlega í að fá boltann í fætur, halda honum og skila honum frá sér en vantaði að koma sér í færi til að klára leikinn.
Ingimundur Níels Óskarsson 5 – Kantspilið okkar var nánast alveg dautt í þessum leik. Ingimundur var hvergi sjáanlegur, enda var hann tekinn útaf frekar snemma. Það hefði hins vegar verið hægt að taka alla sóknarmennina útaf því enginn var að skapa alvöru hættu.
Jóhann Þórhallsson 5 – Mjög slakur og fátt af því sem hann reyndi skapaði hættu eða var hættulegt. Of mikið að hlaupa sig í vandræði og var ekki nógu beittur í sinni nálgun. Það er stutt á milli hláturs og gráturs í fótbolta og ef skot hans í síðari hálfleik hefði farið stöngin inn en ekki stöngin út væri allt annað upp á teningnum, hann hefði líklega tryggt okkur þrjú stig, fengið hærri einkunn og stolið fyrirsögnum leiksins.
Oddur Ingi Guðmundsson 7 - Þokkalega líflegur og reyndi hvað hann gat að búa til hluti fram á við. Gott að fá Odd inn í hópinn og hann gæti reynst okkur drjúgur þegar á reynir í sumar.
Rúrik Andri Þorfinnsson– Komið lítið við sögu þær 20 mínútur sem hann lék. Kom inná fyrir Ingimund þegar um hálftími var eftir en meiddist og þurfti að fara útaf.
Davíð Þór Ásbjörnsson - Kom inn og lék í um tíu mínútur
Fylkir (4-3-3): Fylkir: Fjalar Þorgeirsson - Þórir Hannesson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason, Tómas Joð Þorsteinsson - Baldur Bett (Oddur Ingi Guðmundsson 45´), Gylfi Einarsson (F), Andrés Már Jóhannesson - Ingimundur Níels Óskarsson (Rúrik Andri Þorfinnsson 62´ (Davíð Þór Ásbjörnsson 82´)), Jóhann Þórhallsson, Albert Brynjar Ingason.
Ónotaðir varamenn: Ísak Björgvin Gylfason (M), Daníel Freyr Guðmundsson, Andri Már Hermannsson, Andri Þór Jónsson.
Fram (4-3-3): Ögmundur Kristinsson - Daði Guðmundsson, Kristján Hauksson (F), Jón Orri Ólafsson, Samuel Lee Tillen - Halldór Hermann Jónsson, Jón Guðni Fjóluson, Almarr Ormarsson - Kristinn Ingi Halldórsson, Guðmundur Magnússon (Andri Júlíusson 69´), Arnar Bergmann Gunnlaugsson (Tómas Leifsson 80´)
Ónotaðir varamenn: Denis Cardaklija (M), Jón Gunnar Eysteinsson, Hlynur Atli Magnússon, Alan Lowing, Ívar Björnsson.
Markskot: Fylkir 8(4) - Fram 10 (5)
Horn: Fylkir 5 - Fram 4
Aðstæður: Fínt veður. Fylkisvöllurinn ekki í sínu besta standi en samt vel nothæfur miðað við það sem maður sér annarsstaðar.
Dómari: Magnús Þórisson 8 – Flottur í þessum leik, leikurinn reyndar frekar auðdæmdur.
Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson og Ásgeir Þór Ásgeirsson
Maður leiksins: Kristján Valdimarsson Fylki - Erfitt að velja mann leiksins þar sem enginn skaraði fram úr.
Gul spjöld: Davíð Þór Ásbjörnsson (89 mín), Þórir Hannesson (63 mín), Oddur Ingi Guðmundsson (52 mín).
Áhorfendur: 1242

