Fylkir mætir FH í Valitor-bikarnum
skrifað 10-05-2011 (9 athugasemdir)
Rétt í þessu var dregið í 32-liða úrslit Valitor-bikarsins í höfuðstöðvum KSÍ. Fór svo að Fylkir dróst gegn FH og verður leikið í Kaplakrika. Leikurinn fer fram 26. maí kl. 19:15.
FG


eftir Dilbert 01:36 10-05-2011
Það er til léttari andstæðingur. En bæði lið byrja með 11 menn, og svo er allt hægt. Það vitum við...
Áfram Fylkir, að eilífu...
eftir Valli 01:38 10-05-2011
Versti dráttur sem í boði var. En ekkert er ómögulegt!
Áfram Fylkir
eftir Stinni 02:20 10-05-2011
Þetta er flottur dráttur !
eftir freysi 02:29 10-05-2011
Þetta verður hörku leikur á flottasta leikvangi landsins. Hef fulla trú á okkar mönnum á móti FH. Til að vinna bikarkeppnina þarf að slá út stóru liðin og alveg eins gott að byrja á Hafnfirðingum!
eftir haukur 03:02 10-05-2011
þetta verður hörkuleikur þar sem hafnfirðingar verða urðaðir útí hrauni,
eftir TobbZ 03:18 10-05-2011
Já hefði verið þæginlegt að byrja á móti neðri deildarliði. En við erum klárlega með nógu gott lið til að slá þá út. Gaman að fá stórleik líka. Áfram Fylkir. Jee
eftir katabomm 09:34 10-05-2011
Það má segja að það sé virkileg óheppni fyrir FH-inga að þurfa að byrja á því að keppa við svona gott lið eins og Fylki. Þetta hefði nú geta verið léttari dráttur fyrir þá.
eftir Skúli 11:48 10-05-2011
Það er betra að fá sterkasta liðið núna frekar en að mæta þeim seinna ef við ekki getum unnið þá er betra að detta strax út!!
eftir Valli 08:23 11-05-2011
Ég er sammála þér Skúli.