STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Fylkismenn komnir í úrslitaleik Lengjubikarsins

skrifað 20-04-2011 (1 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Fylkismenn tryggðu sér í kvöld sæti í úrsltaleik Lengjubikarsins með 1-0 sigri á KR. Ingimundur Níels Óskarsson skoraði sigurmarkið á 49 mínútu eftir frábæra stoðsendingu frá Bjarna Þórði markmanni. Fylkir mætir því annaðhvort Val eða FH sem mætast í hinum undanúrslitaleiknum á Skírdag. Úrslitaleikurinn verður svo leikinn í Kórnum á annan í páskum.

Frekar rólegt var yfir fyrri hálfleiknum og lítið um stórbrotin tilþrif. Fylkismenn byrjuðu heldur betur en KR-ingar náðu síðan ágætis tökum á leiknum. Helst bar til tíðinda langsskot sem fóru framhjá frá Viktori Bjarka og Óskari Erni og Jóhann Þórhallsson slapp í gegn hinumegin á vellinum en skot hans var framhjá markinu. Fylkismenn fengu mikið af hornspyrnum en náðu ekki að nýta þær alveg nógu vel þó að Þórir Hannesson hafi tvisvar fengið fría skalla en þeir fóru báðir nokkuð framhjá.

Seinni hálfleikur byrjaði fjörlega og Fylkismenn tóku forystuna þegar Bjarni Þórður flengdi boltanum langt fram, boltinn skoppaði yfir Guðmund Reyni Gunnarsson og fyrir fætur Ingimundar sem hamraði boltann á lofti í netið og kom Fylki yfir. Frábær stoðsending hjá Bjarna og vel klárað hjá Ingimundi.

KR-ingar voru fljótir að taka við sér eftir markið og fengu nokkur færi. Viktor Bjarki fékk það fyrsta þegar hann laumaði sér frá miðjunni, en Bjarni varði skot hans vel. Guðjón Baldvinsson slapp svo í gegn, lék framhjá Bjarna og var í þann mund að skora en Gústi var mættur á línuna og bjargaði glæsilega í horn. Óskar Örn Hauksson var einnig líflegur og var tvívegis nálægt því að skora. Hann lék fyrst auðveldlega á Gústa upp hægra megin og átti skot sem strauk þverslána. Síðan fékk annað færi en skot hans fór þá yfir.

Fylkismenn tóku við sér þegar leið á seinni hálfleikinn og nokkrir varamenn frískuðu upp á leikinn. Einn þeirra var Ásgeir Börkur Ásgeirsson sem fékk fínt færi þegar hann slapp óvænt í gegn, hafði möguleika á að senda á Ingimund en valdi að taka skotið sem vinstri sem fór beint á Hannes.

Fylkismönnum gekk síðan ágætlega að halda knettinum í lokin og KR-ingar komust lítt áleiðis. Fylkir er því komið í úrslit Lengjubikarsins í fyrsta skipti síðan 2002 en þá tapaði Fylkir í vítakeppni í úrslitaleiknum fyrir FH. Úrslitaleikurinn verður eins og áður segir á annan í páskum eða mánudaginn 25.apríl kl 19:00.

Lið Fylkis: Bjarni - Þórir, Daníel (Andri Þór), Kristján, Gústi (Davíð) - Baldur, Gylfi (F) (Ásgeir B.), Andrés - Ingimundur (Jóhann Andri), Jóhann Þ. (Albert), Tómas (Andri Már)

eftir haukur 10:26 21-04-2011

snilld