BEINT: FK Riga - Fylkir
skrifað 21-06-2008 (12 athugasemdir)
Hér verður bein textalýsing frá leik FK Riga og Fylkis sem fer fram kl. 15:00 í dag eða 18:00 að staðartíma.
ATH. Nýjustu fréttir munu birtast efst á síðunni þegar þær berast.
Það þarf að hendurhlaða síðuna til að sjá nýjustu fréttir en fólk er beðið að refresha ekki oftar en á um 10-15 mínútna fresti svo tölvukerfið hjá okkur fara nú ekki á hvolf í miðjum leik.
-----------------------------------------------
16:52 - 1-2: Leik lokið. Frækinn sigur Fylkismanna í Lettlandi 1-2.
16:46 - 1-2: Venjulegur leiktími liðinn - 3 mínútur í uppbótartíma. Viðar Guðjónsson komst einn inn fyrir vörn Lettanna en klúðraði færinu. Fylkismenn eiga hornspyrn sem ekkert verður úr.
16:44 - 1-2: Fylkir á ágæta sókn en ekkert verður úr henni.
16:43 - 1-2: Mikill sóknarþungi frá Rigamönnum en Fylkismenn gefa engin færi á sér. Tvær breytingar hjá Fylki: Kjartan Andri inn fyrir Allan Dyring og Viðar Guðjónsson kom inn fyrir Björn Orra.
16:30 - 1-2: FK Riga skorar. Skot fyrir utan teig sem Fjalar varði í stöng og inn. Markið kemur á 76. mínútu.
16:25 - 0-2: MARK!!!! Peter Gravesen skorar úr víti á 70. mínútu sem Allan Dyring fiskaði.
16:24 - 0-1: Fylkir á víti
16:21 - 0-1: Gravesen tæklaður rétt fyrir utan teig eftir stórsókn. Aukaspyrna sem Gravesen tekur sjálfur en beint í varnarvegginn. Fylkir á aðra aukaspyrnu út við hornfánann sem Gravesen tekur einnig, botlinn inn í teig en Valur Fannar brotlegur. Fylkismenn liggja í sókn og Kiddi Tomm á völlinn að sögn heimamanna.
16:13 - 0-1: Lettarnir eiga stórhættulegt færi, Þórir bjargar. Þeir fylgja eftir og eiga skalla rétt framhjá. Lettar eiga síðan aukaspyrnu sem ekkert verður úr. Stuðningsmenn Fylkis hafa enn mikla yfirburði í stúkunni.
16:06 - 0-1: Seinni hálfleikur er hafinn. FK Riga átti aukaspyrna á hættulegum stað en ekkert varð úr því. Fylkismenn hafa líka komist í sókn sem ekkert varð úr.
15:50 - 0-1: Hálfleikur. Fylkismenn síst síðri aðilinn í leiknum. Lið FK Riga er mjög sterkt en vörn Fylkis hefur verið gríðarlega öflug og tekur allar tæklingar 100%. Mark Vals Fannars var hið glæsilegasta en leikurinn hefur verið mjög jafn og Fylkismenn standa sig mjög vel gegn sterkum Lettunum.
15:42 - 0-1: FK Riga pressa stíft en Fjalar Þorgeirsson og vörn Fylkis eru vel á verði. Fylkir er ekki aðeins að vinna á vellinum heldur er Stuðningsmannafélagið Kiddi Tomm að rústa baráttunni í stúkunni!
15:33 - 0-1:FK Riga átti aukaspyrnu en Fjalar réði auðveldlega við hana.
15:27 - 0-1: Stórhættulegt færi FK Riga eftir hornspyrnu. Fyrst bjargaði Fjalar á marklínu og síðan bjargaði Kristján aftur á marklínu. Fylkismenn eru hér marki yfir og þetta útivallarmark hlýtur að teljast gríðarlega mikilvægt!
15:26 - 0-1: MARK!!! Valur Fannar skorar mark með skalla eftir hornspyrnu frá Gravesen. Markið kemur á 26. mínútu!
15:22 - 0-0: Valur Fannar bjargar á marklínu eftir hættulega hornspyrnu Letta.
15:18 - 0-0: Lettarnir eiga dauðafæri. Fylkismenn spila þéttan varnarleik.
15:15 - 0-0: Fylkir hefur legið í vörn og treysta þess að beita skyndisóknum. Mjög fámennt er á vellinum en Kidda Tomm-menn reyna sitt besta.
15:10 - 0-0: Fylkir átti hornspyrnu sem ekkert varð úr. Lettarnir áttu góða skyndisókn eftir það en ekkert varð úr því þar sem vörn Fylkis náði að stöðva það. Fylkismenn sækja í sig veðrið og hafa verið að auka pressuna.
15:07 - 0-0: Þá er leikurinn hafinn. Ekki er mikið um manninn á vellinum en gríðarleg stemning meðal Fylkisfólks. Fylkir leikur í hefðbundnum appelsínugulum treyjum en engin auglýsing er á búningnum. Það er heiðskýrt og um 14°C . Völlurinn er glæsilegur, 5000 manna stúka. Það er markalaust og enn hafa engin hættuleg færi skapast.
14:55 - Nú eru aðeins nokkrar mínútur í leik og um að gera að senda góða strauma til Lettlands.
14:26 - Góðan daginn! Nú er u.þ.b. hálftími í leik og tími til að koma sér í stellingar fyrir fyrsta Evrópuleikinn í fjögur ár. Stuðningsmenn Fylkis skemmta sér ógurlega í Lettlandi og hafa verið að blanda geði við þá stuðningsmenn Riga liðsins sem einnig hafa lagt á sig nokkuð ferðalag til að sjá lið sitt spila. Fregnir herma að Fjalar Þorgeirsson hafi mætt út í glugga á hótelinu og öskrað "FJALAR ÞORGEIRSSON" að hætti Ingólfs Lekve hér fyrr í dag.
-----------------------------------------------
Upphitun:
FK Riga er kemur frá höfuðborg Lettlands, Riga. Liðið var stofnað árið 1999 og varð það ár lettneskur bikarmeistari eftir sigur á Skonto í úrslitaleik, en Skonto er lang sigursælasta lið Lettlands. Árið 2007 náði liðið sínum besta árangri frá upphafi þegar þeir enduðu í 3. sæti í deildinni og unnu sér þar með inn sæti í Intertoto keppninni.
Liðið situr nú í 2. sæti í lettnesku úrvalsdeildinni. Þeir hafa spilað 12 leiki; unnið 7, gert 2 jafntefli og tapað 3.
Leikurinn hefst kl. 18:00 að staðartíma eða 15:00 að íslenskum tíma. Leikurinn fer ekki fram í Riga eins og aðrir heimaleikir FK Riga heldur verður hann spilaður í annarri borg nokkuð langt frá Riga sem heitir Liepaja en þar búa um 85 þúsund manns.
Nokkrir úr Stuðningsmannafélginu Kidda Tomm eru mættir til Liepaja ásamt fleiri stuðningsmönnum Fylkis. Stemningin er góð og menn byrjaðir að hita upp fyrir leikinn síðar í dag.
Dómarar:
Dómararnir þrír sem dæma leikinn í dag koma frá Noregi. Dómarinn heitir Svein-Erik Edvartsen og aðstoðar menn hans eru Kim Andre Johnsen og Harald Strand.
Byrjunarliðið í dag (4-2-3-1):
Fjalar Þorgeirsson
Guðni Rúnar Helgason - Þórir Hannesson - Kristján Valdimarsson - Kjartan Ágúst Breiðdal
Hermann Aðalgeirsson - Valur Fannar Gíslason
Björn Orri Hermannsson - Halldór Hilmisson - Peter Gravesen
Allan Dyring
Ólafur Stígsson er meiddur og verður ekki með
Ástlæða þess að leikurinn fer fram í Liepaja en ekki Riga er sú að verið er að gera upp aðalvöll FK Riga og bráðabirgðavöllur þeirra er ekki löglegur samkvæmt UEFA reglum. Stór tónlistarhátið er í gangi í Riga þessa helgina og aðrir löglegir vellir í notkun vegna þess. Því var ákveðið að flytja leikinn til Liepaja sem er þónokkuð langt frá.



eftir viktor 02:27 21-06-2008
Vantar ekki 1 í byrjunarliðið? þeir eru bara 10. Vantar ekki þóri við hliðiná Stjána Vald
eftir admin 02:32 21-06-2008
Jú passar, þakka þér fyrir. Þó við séum með yfirburðar uppstillingu þá er kannski óþarfi að byrja manni færri. Gaman að segja frá því að það er gríðarleg traffík hér um síðuna og svo virðist sem það sé mikill áhugi fyrir þessum leik. Vonandi heldur allt áfram að ganga vel og tölvukerfið ráði áfram við þetta. Vil annars benda fólki á að "refresha" síðuna ekki oftar en á svona 10-15 mínútna fresti, enda munu fréttir líklega ekki berast mikið oftar en það.
eftir viktor 03:56 21-06-2008
Glæsilegt að skora. mark í þessum leik. Vonum ða vörnin okkar verði eins sterk í seinni hálfleik. Flott að sigra þennan leik
eftir sandra 03:59 21-06-2008
Já það væri ekki smá flott að sigra þennan leik en eg vil hrósa honum Frey og strákunum úti, sem eru á leiknum, fyrir frábæra lýsingu á leiknum. Ekki smá flott hja þeim!
eftir ingo lekve 04:15 21-06-2008
gegjað skora mar n'ú er bara að halda 'út
eftir viktor 04:33 21-06-2008
Glæsilegt..! Fylkir loksins að spila eftir getu.
eftir haukur 05:11 21-06-2008
stórkostlegt! glæsilegur sigur!
eftir admin 05:11 21-06-2008
GLÆSILEGT!
eftir Sprelli 07:00 21-06-2008
Já frábær sigur hjá okkar mönnum siðan að fjölmenna næsta laugardag á laugardalsvellinn
eftir BJ 11:27 21-06-2008
Til hamingju með frábærlega vel heppnaða lýsingu í dag og snilldarlega umfjöllun um Fylki það sem af er tímabili. Mér finnst að Fylkir hefði átt að hljóta stuðningsmannaverðlaunin þó ekki hefði nema bara verið fyrir þessa síðu. þó kiddi tomm hafi að sjálfsögðu farið á kostum!!
eftir fylkismadur 10:46 22-06-2008
Þvílík þjónusta. Var frábært að geta fylgst með leiknum hér, takk!
eftir lekx287 06:46 28-06-2008
We gonna beat you tomorrow :D