Fylkismenn komnir í undanúrslit Lengjubikarsins
skrifað 09-04-2011 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkismenn komust í dag í undanúrslit lengjubikarsins og það án þess að spila sjálfir, en með sigri ÍBV á Fram í dag varð ljóst að Fylkir fer í undanúrslit með bestan árangur í öðru sæti.
Fylkismenn fara því með góð tíðindi með sér í utanlandsferðina til Spánar en þeir flugu út síðdegis í dag. Þar verða þeir í viku en leikið verður í undanúrslitum lengjubikarsins miðvikudaginn 20.apríl og á eftir að draga hvaða lið mætast. Hin liðin í pottinum eru öll feykisterk en þau eru Valur, FH og KR. Við munum að sjálfsögðu færa ykkur fréttir af því þegar drátturinn liggur fyrir

