STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Baráttusigur gegn Haukum og undanúrslitasæti enn mögulegt

skrifað 07-04-2011 (2 athugasemdir)

Valur Ingi Johansen skrifar

Fylkismenn sóttu Hauka heim á teppið á Ásvöllum í gærkvöldi. Fyrir leikinn var Fylkir með 13 stig eftir 6 umferðir og þurfti lífsnauðsynlega á sigri að halda, til að halda möguleikanum um undanúrslita sæti á lofti.

Það var kalt í veðri og nokkuð rok, eins og reyndar alltaf á Ásvöllum. Fylkismenn byrjuðu betur og komust yfir strax á 4 mínútu leiksins með marki frá Stjána Vald. Þá kom aukaspyrna inn í teig og eftir mikið klafs endaði boltinn í kassanum á Stjána og inn og staðan orðin 1-0 fyrir Fylki eins og hún var í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn einkenndist af því að vindurinn hirti allar sendingar fram völlinn og voru ófáar markspyrnurnar sem Daði Lárusson markvörður Hauka þurfti að taka. Þegar um hálftími var til leiksloka slapp vinstri vængmaður Hauka í gegn og Þórir Hannesson kom vaðandi úr hafsentinum og átti að mínu mati fullkomna tæklingu í boltann sem fór í horn, en þá heyrðist flaut úr flautu dómarans sem að þessu sinni var Gunnar Jarl Jónsson og vítaspyrna dæmd. Davíð Birgisson fór á punktinn og jafnaði metin fyrir Hauka.

Fylkismenn reyndu að sækja og vinna leikinn eftir þetta en eins og áður sagði voru aðstæður til fótboltaiðkunar ekki upp á marga fiska í gær. Baldur Bett var hársbreidd frá því að koma okkur yfir þegar um 10 mínútur voru til leiksloka en skot hans yfir.

Það var svo á 89 mínútu sem Daníel Freyr tók langt innkast sem Stjáni Vald flikkaði inn á Ingimund sem lagði boltann út á teig á Davíð Ásbjörnsson sem skoraði með hnitmiðuðu skoti nirði í bláhornið. 2-1 fyrir Fylki og stuttu seinna flautaði Gunnar Jarl til leiksloka.

Þetta þýðir að við endum riðilinn með 16 stig. Frammarar eiga tvo leiki eftir í sínum riðli og eru með 12 stig og betri markatölu en við. Þeir eiga eftir að keppa við ÍBV og Víking Ólafsvík og verða að tapa öðrum hvorum leiknum til að Fylkir eigi séns á að fara áfram.

Fylkismenn halda utan núna á laugardaginn 9. apríl og verða í viku. Ég vil nota tækifærið og óska leikmönnum og þjálfarateyminu góðrar ferðar út og

Áfram Fylkir

eftir Valli 12:10 8-04-2011

Hrikalega skemmtilegur ávani, vonandi ná þeir ekki að hætta honum fyrr en eftir tímabil.

eftir haukur 12:32 9-04-2011

ég verð að taka undir með Valla og Krissa, það er miklu skemmtilegri ávani að skora á lokamínútunum en að fá á sig mark á lokamínútunum.