Bónus og BYR styrktaraðilar knattspyrnudeildar Fylkis
skrifað 07-04-2011 (2 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Knattspyrnudeild Fylkis, Bónus og BYR skrifuðu undir nýjan samstarfssamning síðastliðinn mánudag. Bónus og BYR hafa verið styrktaraðilar félagsins lengi og því mikið gleðiefni að samstarfið haldi áfram. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá forsvarsmenn fyrirtækjanna og Fylkis ásamt leikmönnum Fylkis "gömlum" og ungum í nýjum Hummel búningum en allir flokkar deildarinnar munu leika í Hummel í sumar.

Til að skoða búningana nánar skulum við líta á gamlar myndir (frá 11.des 2010) sem teknar voru við undirritun samstarfssamnings við Hummel. Þarna var ósamið við styrktaraðila en nú er ljóst að Bónusgrísinn verður áfram á búningnum. Eina sem vantar á þessa mynd er því merki BYR sem verður sitthvoru megin við Hummel merkið eins og sést ef rýnt er í búninginn sem Laufey Björnsdóttir leikmaður m.fl. kvenna klæðist á myndinni hér fyrir ofan. Á sömu mynd sést Gylfi Einarsson klæðast varabúningnum sem að þessu sinni verður alveg blár s.s. bæði treyjan og stuttbuxurnar.




eftir haukur 11:14 7-04-2011
veit einhver hvort það er hægt að kaupa treyjuna án auglýsinga? þó ég fíli alveg beikon, þá er ég ekki að meika þennan grís.
eftir freysi 02:03 7-04-2011
Það verður eflaust hægt að fá þessar treyjur án auglýsinga hjá BROS. En sjálfur ætla ég bara að fá mér hana með auglýsingum, ekkert að því að ganga um með bónusgrísinn á sér meðan þeir eru að styrkja félagið. Svo sýnist mér, er þó ekki viss, að grísinn sé minni en verð hefur hingað til.
Held mig þó fast við það að það ætti frekar að nota þetta logo:
http://www.matarkarfan.is/is/images/Bonus-LOGO%20.jpg