Góður sigur á Grindavík
skrifað 02-04-2011 (1 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 2-1 Grindavík
1-0 Tómas Joð Þorsteinsson
1-1 Yacine Si Salem
2-1 Þórir Hannesson
Fylkir hélt lífi í baráttunni um að komast í undanúrslit Lengjubikarsins með 2-1 sigri á Grindavík í gær. Tómas Þorsteinsson og Þórir Hannesson voru á skotskónum fyrir Árbæinga.
Leikurinn byrjaði afar fjörlega og strax í upphafi komust Fylkismenn yfir þegar Tómas Þorsteinsson skoraði laglegt mark eftir sendingu frá Gylfa Einarssyni.
Þrátt fyrir þetta var leikurinn mjög rólegur lengst af og lítið um færi. Grindvíkingar náðu svo að jafna metin í fyrri hálfleik en heppnisstimpill var á marki þeirra. Stórreykingamaðurinn Yacine Si Salem átti þá skot sem hrökk af varnarmanni Fylkis og í bláhornið.
1-1 í hálfleik og leikurinn algjörlega í járnum. Eftir tíu mínútur í síðari hálfleik var sóknarmaður Grindvíkinga tékkinn Michal Pospisil rekinn af velli fyrir að kýla Þóri Hannesson í magann þegar boltinn var hvergi nærri. Það fór ekki framhjá árvökulum augum aðstoðardómara 2 (AD 2) sem sendi tékkann í bað.
Fylkismenn náðu ekki almennilega að nýta sér liðsmuninn og áfram var lítið um færi. Meiðsli hrjáðu sóknarlínu Fylkis en Albert og Rúrik gátu ekki leikið vegna meiðsla og þá fór Jói Þórhalls útaf snemma í fyrri hálfleik einnig vegna meiðsla.
Þegar allt stefndi í jafntefli kom bjargvættur úr óvæntri átt. Í uppbótartíma átti Tommi hornspyrnu sem hitti beint á kollinn á Þóri sem hamraði knöttinn í netið. Grindvíkingar höfðu engan tíma til að jafna metin og Fylkir krækti í dýrmætan 2-1 sigur.
Fylkismenn eiga því enn þokkalega möguleika að ná inn í undanúrslit en með sigri á Haukum förum við í 16 stig. Framarar eru eina liðið sem getur skákað okkur og við þurfum helst að treysta á að þeir nái minna en fjórum stigum úr síðustu tveimur leikjum sínum gegn ÍBV og Víkingi Ó. Framarar hafa fjögurra marka forskot á okkur í markamun og því mun þeim líklega duga að ná 4 stigum úr þessum tveimur leikjum.
Lið Fylkis: Bjarni - Andri Þór, Kristján, Þórir, Gústi - Baldur, Gylfi (Ásgeir Börkur) , Andrés (Andri Már) - Ingimundur (Davíð Þór), Jóhann Þ. (Jóhann Andri (Trausti)), Tómas.


eftir haukur 09:14 2-04-2011
vel gert! nú er bara að afgreiða nafna mína úr Hafnarfirði