Fjalar á leið til Víkings - APRÍLGABB!
skrifað 01-04-2011 (0 athugasemdir)
Fjalar Þorgeirsson markvörður Fylkismanna er á leið til Víkings R. Eins og menn vita hefur verið hörð samkeppni um markvarðarstöðuna í vetur.
Samkvæmt okkar heimildum hefur Ólafur Þórðarson tjáð Fjalari að Bjarni Þórður Halldórsson verði aðalmarkvörður í sumar. Fjalar hefur því viljað róa á önnur mið og í dag kom tilboð frá Víkingum sem Fylkir féllst á. Fjalar skrifar undir við Víkinga seinna í dag.
Við þökkum Fjalari samfylgdina undanfarin ár og óskum honum velfarnaðar í Víkinni.
Skýrt skal tekið fram að hér var um aprílgabb síðunnar að ræða og því er Fjalar Þorgeirsson enn leikmaður Fylkis og ekkert mark takandi á þessari frétt.
Heyrst hefur að nokkuð margir hafa fallið fyrir gabbinu sem er skemmtilegt og í raun skiljanlegt miðað við orðróm þess efnis að Fjalar gæti verið á förum frá félaginu. Hvort að eitthvað rætist úr þeim orðrómi getur aðeins tíminn einn leitt í ljós

