Seiglusigur á Reykjavíkur-Þrótti
skrifað 28-03-2011 (1 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson og Valur Ingi Johansen kíktu í Egilshöll
Fylkir 3-2 Þróttur
0-1 Guðfinnur Þórir Ómarsson ('3)
0-2 Halldór Arnar Hilmisson ('24)
1-2 Ingimundur Níels Óskarsson (víti) ('40)
2-2 Albert Brynjar Ingason ('51)
3-2 Albert Brynjar Ingason ('90)
Fylkismenn unnu góðan 3-2 sigur á Þrótti R. eftir að hafa lent undir 0-2 í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Markamaskínan Albert Brynjar Ingason virðist vera að taka við sér og hann tryggði Fylki sigur með tveimur mörkum í síðari hálfleik.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir okkar menn því Þróttarar komust yfir á þriðju mínútu. Þar var að verki Guðfinnur Þórir Ómarsson en markið var umdeilanlegt þar sem hugsanlega var brotið á Kristjáni Valdimarsson varnarmanni Fylkis.
Þróttarar hafa verið hörmulegir á undirbúningstímabilinu og hafa eftir leikinn í gær tapað öllum fimm leikjum sínum í Lengjubikarnum. Þá töpuðu þeir einnig öllum þremur leikjum sínum í Reykjavíkurmótinu. Þeir voru hins vegar býsna öflugir í fyrri hálfleiknum og náðu tveggja marka forystu með stórglæsilegu marki. Þar var það snillingurinn og galdramaðurinn Halldór Arnar Hilmisson fyrrum leikmaður Fylkis sem skoraði glæsilegt mark. Fékk boltann út frá hægri og smellti honum viðstöðulaust í bláhornið fjær, óverjandi fyrir Bjarna í marki Fylkis og Þróttarar þar með komnir í 0-2
Fylkismenn sóttu samt sem áður af ágætis krafti í fyrri hálfleik og var Ingimundur þar atkvæðamestur. Þróttarar náðu þó að halda markinu hreinu þar til á 40 mínútu þegar við fengum vítaspyrnu eftir að varnarmaður Þróttara handlék knöttinn innan teigs. Vítaspyrnan var kannski í ódýrari kantinum en Ingimundur lét það ekki á sig fá og fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi og staðan því orðin 1-2 og allt hægt.
Seinni hálfleikur byrjaði vel því Alli jafnaði leikinn snemma fyrir okkur og ekkert sem ætlaði að geta komið í veg fyrir að við myndum rúlla yfir þá. Lítið var þó um marktækifæri eftir þetta. Fylkismenn freistuðu þess að ná sigurmarkinu en Þróttarar vörðust ágætlega og áttu sín tækifæri í skyndisóknum. Óli þjálfari hafði kannski heldur ekki marga valmöguleika á bekknum til að efla sóknarleikinn, svo það var kannski eðlilegt að leikurinn skyldi þróast með þessum hætti.
Á 90.mínútu kom svo sigurmarkið langþráða en Ingimundur sólaði þá vinstri bakvörð Þróttara uppúr skónum og sendi á Alla sem potaði boltanum í markið, 3-2 fyrir Fylki. Frábær endurkoma hjá okkar mönnum eftir mjög svo dapran fyrri hálfleik.
Í Fylkisliðið vantaði einnig sterka leikmenn á borð við Jóa Þórhalls, Gylfa Einars sem getur ekki spilað í Egilshöllinni vegna hversu mjúkt gervigrasið þar er, Adda sem er í u-21 árs verkefni, Ásgeir Börk, Val Fannar, Rúrik Andra svo einhverjir séu nefndir. Það er hinsvegar engin afsökun gegn liði eins og Þrótti sem eiga líklega eftir að vera í basli í fyrstu deildinni í sumar,allavega af undirbúningstímabilinu að dæma.
Fylkir er í þriðja sæti riðilsins með 10 stig eftir 5 leiki. ÍR-ingar eru sæti ofar á markamun en hafa leikið einum leik meira. FH kláraði riðilinn með fullt hús stiga (21 stig) og hafa klárað sína leiki og eru komnir í undanúrslit. Liðin í efsta sæti í riðlunum þremur fara í undanúrslit, auk þess liðs sem er með bestan árangur í öðru sæti. Möguleikar okkar eru því enn fyrir hendi, ef við vinnum síðustu tvo leikina förum við í 16 stig sem gæti dugað okkur áfram.
Næsti leikur er gegn Grindavík á Fylkisvelli (gervigrasinu) föstudaginn 1. apríl kl 20:00.
Lið Fylkis: Bjarni - Þórir (Benedikt Óli '87), Daníel Freyr (Andri Þór '46), Kristján, Gústi - Baldur, Davíð (Trausti '79), Andri Már (Styrmir '87) - Ingimundur, Tómas (Jóhann Andri '67), Albert.


eftir tom 08:22 28-03-2011
Flott grein. Frábær síða. Ég vil þakka sérstaklega að tekið sé fram í fyrirsögn að um Reykjavíkur-Þrótt sé að ræða, ég stóð í þeirri meiningu að þeir væru að etja kappi við Neskaupstaðarpeyja :)
Áfram Fylkir!