Fylkir og ÍR skyldu jöfn
skrifað 18-03-2011 (0 athugasemdir)
Fylkir og ÍR gerðu 1-1 jafntefli í bragðdaufum leik í Egilshöllinni í gærkvöldi. ÍR komst yfir með marki frá Elíasi Inga Árnasyni og var staðan 1-0 í hálfleik ÍR í vil. Fylkismenn komu síðan grimmari inn í seinni hálfleikinn og náðu að jafna en þar var að verki markamaskínan Albert Brynjar Ingason. Okkar menn pressuðu stíft í lokin en tókst því miður ekki að skora sigurmarkið og því var 1-1 niðurstaðan.
Í Fylkisliðið vantaði fjölmarga leikmenn, sem er engin afsökun samt sem áður, en í liðið vantaði Gylfa, Val, Þóri, Daníel, svo einhverjir séu nefndir. Næsti leikur er gegn Þrótti sunnudaginn 27. mars í Egilshöll og þar kemur ekkert annað til greina en þrjú stig.

