STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Skelfilegt andleysi

skrifað 16-06-2008 (2 athugasemdir)

KR – Fylkir 3-0
1-0 Björgólfur Takefusa ('31)
2-0 Björgólfur Takefusa ('50)
3-0 Björgólfur Takefusa (víti, '71)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

KR-ingar höfðu lítið fyrir að sigra andlausa og áhugalausa Fylkismenn í Vesturbænum á sunnudaginn með þremur mörkum gegn engu.

Tvær breytingar voru á liði Fylkis frá leiknum gegn Fjölni. Guðni Rúnar Helgason og Halldór Hilmisson fóru út, Ásgeir Börkur Ásgeirsson fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliðinu og Kristján Valdimarsson kom aftur inn eftir leikbann.

Leikurinn byrjaði mjög rólega, en fljótlega var þó ljóst að KR-inga virtust mun ákveðnari og hungraðari án þess að sýna nein glanstilþrif, en Fylkismenn virtust hafa lítinn áhuga á að spila leikinn.

Þeir komust þó nálægt því að skora þegar KR-ingar björguðu á línu eftir aukaspyrnu Peter Gravesen.

KR – ingar voru samt sem áður ekki að skapa sér mörg færi en áttu nokkra ágætis samleikskafla og voru nokkuð beittir í sínum aðgerðum.

Björgólfur Takefusa setti fyrsta mark leiksins og var það KR –ingum geysilega mikilvægt, því það var einmitt sem Fylkismenn hefðu þurft í þessum leik að ná forystunni og ná upp sjálfstraustinu eftir dapurt gengi í síðustu tveimur leikjum á undan.

Eftir markið voru Vesturbæingar allan tímann með tröllatak á leiknum og var það mun fremur vonlaus spilamennska Árbæinga en snilld KR-inga.

KR –ingar bættu við öðru marki í upphafi síðari hálfleiks, Björgólfur Takefusa aleinn og óvaldaður skallaði boltann í netið og þetta drap leikinn gjörsamlega

Þeir bættu síðan enn við marki þegar Guðmundur Reynir Gunnarsson átti frábæran sprett upp kantinn og sendi fyrir í hendina á Ólafi Stígssyni og Magnús Þórisson dæmdi vítaspyrnu, samt sem áður strangur dómur.

Fylkismenn áttu loksins tvær tilraunir sem Stefán Logi sá nokkuð auðveldlega við, þetta var nú allt það sem kom út úr sóknarleik Fylkis í leiknum.

Enginn leikmaður Fylkis spilaði vel, Fjalar Þorgeirsson skástur og hann virðist vera langbesti leikmaðurinn í þessu Fyliksliði. Ég veit hreinlega ekki hvað menn voru að gera inná vellinum, það var allavega enginn barátta, enginn vilji, ekkert spil, ekkert sem liðið bauð uppá annað en peningaeyðslu fyrir stuðningsmenn félagsins að mæta á völlinn. Þeir voru samt sem áður alltof fáir, áhugaleysið fyrir klúbbnum er skelfilegt uppá að horfa og ládeyðan er algjör.

Þetta verður ekki verra, og einhver klisja segir að leiðin hljóti þá að liggja upp á við. Vonandi er það svo en það bendir ekkert til þess miðað við þessa frammistöðu. Einkunnargjöf leikmanna fyrir þennan leik hefur ekkert uppá sig svo slakir voru leikmenn Fylkis. Algjör hörmung eru lokaorð sem lýsa leik Fylkismanna vel.

Það má þó ekki taka það af KR-ingum að þeir spiluðu vel, boltinn gekk vel manna á milli og spilið mjög gott og mikið öryggi í leik liðsins.

Næsta verkefni okkar er Þróttur í bikarnum, leikur sem má ALLS ekki tapast ef að menn ætla að gera eitthvað í sumar. Bikarinn er alltaf galopinn, við fórum í undanúrslit í fyrra og nú er að girða sig í brók og vinna Þrótt, erfiður leikur en nú er nauðsynlegt að vinna til að halda lífi í sumrinu.

KR (4-4-2): Stefán Logi Magnússon (M) - Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Pétur Hafliði Marteinsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson - Atli Jóhannsson (Jordao Diogo 21,( Gunnar Örn Jónsson 54)), Jónas Guðni Sævarsson, Viktor Bjarki Arnarsson, Óskar Örn Hauksson - Björgólfur Takefusa (Guðmundur Pétursson 82), Guðjón Baldvinsson.
Ónotaðir varamenn: Kristján Finnbogason (M), Kristinn Jóhannes Magnússon, Ingimundur Níels Óskarsson, Grétar Ólafur Hjartarson.

Fylkir ( 4-2-3-1 ): Fjalar Þorgeirsson (M) - Þórir Hannesson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason, Kjartan Ágúst Breiðdal - Ian Jeffs, Ólafur Stígsson, Allan Dyring (Halldór Arnar Hilmisson 65) -Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Haukur Ingi Guðnason 57), Peter Gravesen, Jóhann Þórhallsson (Kjartan Andri Baldvinsson 79).
Ónotaðir varamenn: Viðar Guðjónsson, Guðni Rúnar Helgason, Hermann Aðalgeirsson, Freyr Guðlaugsson.

Markskot: KR 10 (7) – Fylkir 5 (2)
Horn: KR 5 - Fylkir 5
Rangstöður: KR 3 – Fylkir 0
Aðstæður: Í fínu lagi, góður völlur og stúkan alltaf skemmtileg, gaman að vera nálægt vellinum.
Dómari: Magnús Þórisson þokkalegur
Aðstoðardómarar: Gunnar Gylfason og Smári Stefánsson
Maður leiksins: Björgólfur Takefusa (KR). Það er freistandi að velja einhvern annan og jafnvel Fylkismann uppá grínið en það er hreinlega ekki hægt annað en að velja mann sem skorar þrjú mörk.
Gul spjöld: Jóhann Þórhallsson (Fylkir) (’45), Björgólfur Takefusa (KR) (’67), Valur Fannar Gíslason (Fylkir) (’68), Þórir Hannesson (Fylkir) (’75), Gunnar Örn Jónsson (KR) ('90)
Áhorfendur: 1103

eftir TobbZ 02:37 17-06-2008

Já nú verða menn bara að þjappa sér saman og taka Þróttarana á miðvikudaginn og fara að sýna hvað býr í Fylkisliðinu. Fylkir nú klapp-klapp-klapp Fylkir svo jeee

eftir ES 02:40 17-06-2008

Já orð að sönnu TobbZ, Þýðir ekki að hanga með haus það er ekki félaginu sæmandi, nú verða leikmenn að líta sér nær og gera eitthvað í málunum.