Fylkir - B68 á sunnudaginn
skrifað 02-03-2011 (0 athugasemdir)
Fylkir leikur á sunnudaginn næsta 6. mars æfingaleik við færeyska liðið B68. Leikurinn fer fram í Kórnum í Kópavogi og hefst kl. 17:30. B68 lenti í 7. sæti í efstu deild Færeyja á síðasta tímabili. Hvetjum við alla Fylkismenn til að gera sér ferð í Kórinn á sunnudaginn til að sjá spennandi og skemmtilegan leik.

