Umfjöllun: Sama sagan - Forskotið hrynur
skrifað 24-08-2010 (2 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
FH 4 - 2 Fylkir
0-1 Andrés Már Jóhannesson ('28)
0-2 Jóhann Þórhallsson ('31)
1-2 Freyr Bjarnasson ('44)
2-2 Gunnar Már Guðmundsson ('70)
3-2 Atli Viðar Björnsson ('71)
4-2 Atli Viðar Björnsson ('74)
Fylkismenn eru í slæmum málum eftir enn eitt tapið og að þessu sinni voru það FH-ingar sem hirtu þau þrjú stig sem í boði voru.
Fylkir komst í góða stöðu með því að skora tvö fyrstu mörkin í leiknum en FH-ingar svöruðu heldur betur með fjórum mörkum. Með tapinu er staðan orðin ansi erfið fyrir okkar menn og alveg á hreinu að liðið verður að ná í stig í næstu leikjum.
Fylkisliðið var nokkuð breytt frá leiknum við Val á dögunum. Albert Brynjar Ingason meiddist í leiknum gegn Val og var ekki með og þeir Pape Faye og Ingimundur Níels Óskarsson fóru á bekkinn. Inn í byrjunarliðið komu Ásgeir Örn Arnþórsson, Kjartan Ágúst Breiðdal og Jóhann Þórhallsson.
FH-ingar hófu leikinn af mun meiri krafti og Atli Guðnason kom sér í gott færi strax i upphafi en Fjalar varði. Matthías Vilhjalmsson átti síðan skot sem og Atli Guðnason en í bæði skiptin var Fjalar vandanum vaxinn og varnaði því að FH kæmist yfir í leiknum.
Fylkismenn komust smátt og smátt inn í leikinn og á 28 minútu tóku þeir forystuna eftir laglega sókn. Sóknirnar höfðu ekki verið margar fram að þessu en þessi sókn var einstaklega vel útfærð. Tómas lék þá framhjá varnarmönnum FH á vinstri kantinum og laumaði boltanum inn á Andrés Má sem náði fínu skoti sem Gunnleifur réð ekki við.
Aðeins þremur mínútum síðar kom annað mark og aftur voru þar okkar menn á ferðinni. Aftur átti Tómas stoðsendingu, í þetta skiptið inná Jóhann Þórhallsson sem stakk Frey Bjarnason af án vandkvæða lék inn í teiginn og í stað þess að senda fyrir eins og Gunnleifur virtist reikna með í markinu, laumaði hann boltanum í netið á nærstönginni. Frábær kafli hjá Fylkismönnum sem nýttu sér alla þá veikleika sem voru til staðar í FH vörninni.
FH-ingar voru þarna heldur betur slegnir út af laginu og í raun gerðist fátt meira í fyrri hálfleik. Það sem var þó sannarlega mikilvægt fyrir Hafnfirðinga var að þeir náðu að troða inn marki rétt fyrir leikhlé. FH fékk þá aukaspyrnu eftir klaufalega tæklingu frá Stjána Vald úti í kantinum vinstra megin. Aukaspyrnan rataði á kollinn á Frey Bjarnasyni sem skallaði óvaldaður knöttinn í netið. Kunnuleg sjón að sjá okkar menn fá á sig mörk úr föstum leikatriðum.
Staðan 1-2 í hálfleik og útlitið fínt hjá okkar mönnum.
Lengi vel í seinni hálfleik spilaðist leikurinn ágætlega fyrir okkur. FH-ingar ógnuðu ekki mikið þrátt fyrir að vera heldur sterkari aðilinn. Þeir fengu þó ansi gott færi á 56 mínútu þegar Björn Daníel skallaði í þverslá af örstuttu færi eftir atgang í teignum sem kom upp úr hornspyrnu. Enn voru okkar menn sofandi í þessum föstu leikatriðum en sluppu þarna með skrekkinn.
Gunnar Már Guðmundsson og Ólafur Stígsson komu svo báðir inná í sitthvoru liðinu þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Á þessum tíma var talsvert jafnvægi var í leiknum og Fylkismenn sáu ágætlega við sóknarlotum FH- inga. Þessir tveir menn höfðu því miður báðir mikil og ólík áhrif á leikinn. Gunnar Már náði að jafna metin með sinni fyrstu snertingu þegar hann dúndraði knettinum í slánna og inn á. Óli Stígs var þarna of seinn eins og aðrir Fylkismenn og enginn náði að loka á skotið .
Ólafur fór svo mjög illa að ráði sínu þegar hann gáði ekki að sér og missti boltann á versta stað og það má ekki gegn FH-ingum. þeir refsa! Það gerðu þeir svo sannarlega, unnu boltann og sendu innfyrir á Atla Viðar sem hélt Þóri Hannessyni aftur af sér og kláraði færið með stæl. Reyndar stórt spurningarmerki hvort þarna hafi verið um rangstöðu að ræða, en því miður þá býður íslensk fótboltamyndataka ekki uppá það að hægt sé að komast að óyggjandi niðurstöðu til að kveða úr um þetta. Einnig kom á óvart að hvorki í Pepsi mörkunum né Íslenska boltanum hafi veri ð sérstaklega reynt að komast að þessari niðurstöðu (með því að stöðva myndina) en kannski var það bara gjörsamlega ómögulegt útfrá myndunum.
Eftir þetta var aldrei spurning hvort liðið myndi fara með sigur af hólmi því Fylkismenn voru steinrotaðir en FH-ingar héldu áfram að þjarma að þeim.
Á 76 mínútu kom svo náðarhöggið þegar Atli Viðar hristi af sér varnarmenn Fylkis og afgreiddi okkur endanlega með frábærri afgreiðslu.
Fleira markvert átti sér ekki stað í leiknum og FH-ingar fóru með verðskuldaðan 4-2 sigur af hólmi. Þessi úrslit setja Fylkismenn í mikinn bobba og framundan er blóðug botnbarátta sérstaklega ef stigin fara ekki að koma sem allra allra fyrst.
Liðið er ansi brothætt, lítið sjálfstraust og þó að við náum forystunni í leikjum þá virðist það ekki duga til og enn hefur liðinu ekki tekist að halda markinu hreinu í sumar.
Enn á ný höldum við áfram að glutra niður forskoti og er þetta sjöundi leikurinn í sumar sem Fylkismenn komast yfir í en ná ekki að halda forskotinu og missa leikina niðrí jafntefli og töp. Annað sem er athyglisvert er að Fylkir hefur fengið á sig 14 mörk á 70-90 mínútu. Eftirfarandi tafla sýnir þetta svart á hvítu.
Fylkir glutrar niður forskoti (lokatölur innan sviga)
32 mörk fengin á sig (aldrei haldið hreinu). 14 á 70-90 mínútu (þar af 8 á síðustu 10 mínútunum)
KR-ingar koma í heimsókn í Árbæinn á fimmtudaginn en þeir hafa verið á feykilegri siglingu, fimm sigrar í röð í deidinni og þeir vilja að sjálfsögðu halda áfram á þeirri braut og koma sér af alvöru í toppbaráttuna.
Ef ekki á illa að fara í þeim leik verða okkar menn að berja sig saman og spila hver fyrir annan og fyrir félagið og það í 90 mínútur plús
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 6
Andri Þór Jónsson 6
Valur Fannar Gíslason 4
Þórir Hannesson 6
Kjartan Ágúst Breiðdal 7
Kristján Valdimarsson 6
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6
Andrés Már Jóhannesson 7
Tómas Þorsteinsson 7
Jóhann Þórhallsson 6
Ásgeir Örn Arnþórsson 4
Ingimundur Níels Óskarsson 5
Ólafur Stígsson 4
Pape Mamadou Faye 5
FH (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson - Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (Gunnar Már Guðmundsson 69), Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, Hjörtur Logi Valgarðsson - Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson - Atli Guðnason (Gunnar Kristjánsson 86), Atli Viðar Björnsson, Ólafur Páll Snorrason.
Ónotaðir varamenn: Gunnar Sigurðsson (M), Torger Motland, Helgi Valur Pálsson, Einar Karl Ingvarsson, Aron Freyr Eiríksson.
Fylkir (4 -5- 1/4-3-3): Fjalar Þorgeirsson - Andri Þór Jónsson (Pape Mamadou Faye 72), Þórir Hannesson, Valur Fannar Gíslason (F), Kjartan Ágúst Breiðdal - Kristján Valdimarsson (Ólafur Stígsson 69), Andrés Már Jóhannesson (Ingimundur Níels Óskarsson 61) - Ásgeir Örn Arnþórsson, Tómas Þorsteinsson, Jóhann Þórhallsson
Ónotaðir varamenn: Andrew Bazi (M), Andri Már Hermannsson, Friðrik Ingi Þráinsson, Davíð Þór Ábjörnsson.
Markskot: FH 19(13) - Fylkir 7(3)
Horn: FH 9 - Fylkir 3
Aðstæður: Aðstæður í Kaplakrika eru til fyrirmyndar og völlurinn skemmtilegur.
Dómari: Kristinn Jakobsson 8 - Góður
Aðstoðardómarar: Sigurður Óli Þórleifsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson
Maður leiksins: Atli Viðar Björnsson FH
Gul spjöld: Þórir Hannesson (’18), Andrés Már Jóhannesson (’19), Björn Daníel Sverrisson (’35), Ólafur Páll Snorrason(’39).
Áhorfendur: 1777. Guð minn almáttugur hvað stuðningsmenn FH eru leiðinlegir. Þeir sem voru á vellinum vita nákvæmlega hvað ég er að meina.


eftir einaras 11:42 24-08-2010
Sammála þér með fanið þeirra eru jafnvel verri en kr-ingar hér á árum áður.
eftir Valli 08:13 24-08-2010
Þeir tuðuðu yfir öllu. Tæklingar sem hittu ekki mann einu sinni, þá var vælt. Alveg með ólíkindum. En koma nú fylkismenn, það eru nokkrir leikir eftir og við ætlum að vera í þessari deild að ári. Allir á völlinn á fimmtudaginn og sjáum strákana taka KR!! Áfram Fylkir