Næsti Leikur: Mikilvægur leikur gegn Val
skrifað 14-08-2010 (5 athugasemdir)
Fylkir - Valur| Fáðu SMS
Pepsi-deildin, 16. umferð
mánudagur, 16. ágúst 2010
kl. 19:15
Eftir landsleikjahlé er komið að því að Pepsi-deildin rúlli af stað á ný á mánudagskvöld en þá taka okkar menn í Fylki á móti Val í Árbænum. Hvorugt liðið hefur staðið undir væntingum það sem af er tímabili en þó eiga þau bæði ágæta möguleika á að nálgast baráttuna um Evrópusæti með sigri á mánudagskvöldið.
Í liðinni viku var ekki leikið í Pepsi-deildinni sökum landsleikja hjá bæði A-landsliði Íslands og U-21 árs liðinu. Fylkir átti einn leikmann sem lék fyrir hönd Íslands en það var Andrés Már Jóhannesson sem kom inn á í síðari háfleik í stórsigri íslenska U-21 liðsins á Evrópumeisturum Þjóðverja.
Á síðasta tímabili mættust liðin í tvígang þar sem Fylkismenn höfðu betur í bæði skiptin. Aftur á móti fór illa fyrir okkar mönnum fyrr í sumar á Vodafonevellinum þegar Fylkir mátti þoli mikla niðurlægingu þar sem Valsmenn skoruðu 5 mörk gegn tveimur mörkum Fylkis.
Pepsi-deildin 2010: Valur 5-2 Fylkir
Pepsi-deildin 2009: Valur 0-1 Fylkir
Pepsi-deildin 2009: Fylkir 1-0 Valur
Landsbankadeildin 2008: Valur 2-0 Fylkir
Landsbankadeildin 2008: Fylkir 2-0 Valur
Gengi liðanna undanfarið:
Fylkir náði í síðasta leik í 3 góð stig á Laugardalsvelli þar sem Framarar voru lagðir af velli, 1-2. Í leikjunum á undan hafði liðinu gengið illa að safna stigum en það vekur athygli að í síðustu 6 leikjum hafa Fylkismenn náð forystunni en þó hefur aðeins tekist að landa tveimur sigrum í þessum leikjum. Með sigrinum í síðustu viku náði Fylkir að rífa sig nokkuð frá liðunum þremur sem eiga í hvað harðastri fallbaráttu og eru nú 7 stigum frá fallsæti og eiga að auki leik til góða. Sætið í deildinni er þó langt frá því að vera tryggt og margt sem getur gerst á síðasta þriðjungi mótsins.
Valur hefur átt afleitu gengi að fagna undanfarið og er nú í 8. sæti deildarinnar með stigi meira en Fylkir. Í síðustu umferð gerðu Valsmenn 0-0 jafntefli við Grindavík á heimavelli í leik þar sem þeir voru síst sterkari aðilinn. Fjórum dögum áður voru þeir rauðklæddu niðurlægðir á Kópavogsvelli þar sem Kjartan Sturluson þurfti að sækja boltann 5 sinnum í netið í 5-0 tapleik gegn Breiðablik. Valsmenn náðu síðast að krækja í 3 stig þann 14. júní s.l. þegar þeir lögðu Selfoss að velli.
Staðan um miðja deild:
Með sigri á mánudaginn geta bæði lið slitið sig mjög vel frá nokkurri fallbaráttu og um leið blandað sér af alvöru í baráttuna um sæti í Evrópudeildinni á næsta tímabili. Þó að nokkuð langt sé í liðið í 3. sæti þá er enn nóg eftir af mótinu og flest lið eiga enn eftir að mætast
3. FH 26 stig (+7)
4. Keflavík 23 stig (-1)
5. KR 22 stig (+5) - [á einn leik til góða]
6. Stjarnan 20 stig (+1)
7. Fram 20 stig (-1)
8. Valur 19 stig (-5)
9. Fylkir 18 stig (0) - [á einn leik til góða]
Töfluna í heild sinni má sjá hér
Dómarar:
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Aðstoðardómari 1: Frosti Viðar Gunnarsson
Aðstoðardómari 2: Birkir Sigurðarson
Eftirlitsmaður: Þórður Georg Lárusson
Stuðlar:
Lengjan telur meiri líkur á heimasigri í þessum leik en þó eru stuðlarnir nokkuð jafnir.
Fylkir: 1,90
Jafntefli: 2,85
Valur: 2,90
16. umferðin
mánudagur 16. ágúst
Breiðablik - ÍBV BEINT
Haukar - Stjarnan
Fylkir - Valur
fimmtudagur 19. ágúst
Selfoss - Keflavík BEINT
Grindavík - FH
KR - Fram
SMS-þjónusta:
Fyrir þá sem sjá sér ekki fært að mæta á leikinn bendum við á SMS þjónustu Úrslit.is, hver SMS kostar 10kr.
Fáðu SMS úr Fylkir - Valur
-fg


eftir TobbZ 03:32 14-08-2010
Já klassa upphitun, verðum að taka 3 stig á mánudaginn. Áfram Fylkir. Jee
eftir freysi 05:13 14-08-2010
Ef bikarmeistararnir verða í einu af þremur efstu sætunum mun 4. sætið gefa þáttökurétt í evrópu, er það ekki?
eftir Valli 06:41 14-08-2010
jú það er rétt Freysi, svo það eru ágætis líkur á að það gerist. En fyrst og fremst skipta stigin 3 sem í boði eru á mánudaginn máli og við ætlum að ná í þau !!!
eftir BJ 06:56 14-08-2010
Glæsileg upphitun! Nauðsynlegt að klára valsmenn og koma okkur upp töfluna. Fylkir á klárlega að nýta sigurinn í síðasta leik og setja stefnuna á topp 4!
eftir tom 12:07 15-08-2010
góð upphitun! verðum svo að klára val á morgun og rífa okkur í efri hlutann. Mjög margir erfiðir leikir framundan