Umfjöllun: Selfyssingar teknir í kennslustund
skrifað 19-07-2010 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 5 - 2 Selfoss
1-0 Pape Mamadou Faye ('24)
2-0 Andrés Már Jóhannesson ('57)
3-0 Jóhann Þórhallsson ('62)
4-0 Ásgeir Örn Arnþórsson ('72)
5-0 Jóhann Þórhallsson ('73)
5-1 Arilíus Marteinsson ('76)
5-2 Arilíus Marteinsson ('88)
Fylkismenn tóku Selfyssinga í kennslustund í Árbænum í gær. Lokatölur urðu 5-2 en Fylkismenn komust í 5-0 en Selfyssingar klóruðu í bakkann með tveimur mörkum.
Leikur Fylkis og Selfoss var afar mikilvægur fyrir bæði lið enda bæði liðin í neðri hlutanum fyrir leik liðanna. Fylkismenn þurftu nauðsynlega á þremur stigum að halda til að spýta sér frá botnliðunum og Selfyssingar sem hefur gengið afleitlega að undanförnu þurftu einnig nauðsynlega á stigum að halda.
Í Fylkisliðið vantaði nokkra menn; Óli Stígs er enn meiddur sem og auðvitað Baldur Bett sem verður líklega frá út tímabilið. Þá er Gústi handleggsbrotinn og gat ekki leikið og Einar og Ingimundur voru tæpir og sátu á bekknum allan leikinn. Þá tók Ásgeir Börkur út síðasta leik sinn í leikbanni.
Addi lék inná miðjunni og byrjaði strax að láta til sín taka á annari mínútu þegar hann lagði boltann innfyrir á Alla sem átti fínasta skot sem Jói markvörður gestanna varði í horn. Selfyssingar geystust svo í sókn og Sævar Þór kom sér í fínasta færi en hitti boltann alls ekki og því sigldi hann framhjá marki. Selfoss liðið var sterkari aðilinn næstu fimm mínútur og skapaði hættu með snörpum sóknum. Davíð Birgisson var aðgangsharður upp við mark Fylkis og það var líka Albert hinum megin sem átti annað skot sem var varið.
Leikurinn var talsvert opinn í byrjun og í raun má segja að hann hafi verið nokkuð opinn allan tímann. Andri Freyr Björnsson fékk sannkallað dauðafæri þegar um tuttugu mínútur voru liðnar en skóflaði boltanum yfir einn á nærstöng. Jói Þórhalls komst svo í fínt skotfæri og náði skoti í varnarmann og rétt framhjá.
Það var svo Pape Mamadou Faye sem skoraði fyrsta mark leiksins á 24 mínútu. Hann stakk sér framfyrir varnarmenn Selfyssinga og skallaði inn sendingu Tomma úr hornspyrnu. Vel að verki staðið og mikilvægt fyrir okkar menn að ná fyrsta marki leiksins.

Pape er hér í þann mund að setja fyrsta markið
Alli átti síðan skömmu síðar skot naumlega framhjá eftir ágætis sókn. Okkar menn efldust talsvert eftir að hafa náð forystunni og voru heldur sterkari það sem eftir lifði fyrri hálfleiks þó leikurinn væri nokkuð jafn.
Addi stjórnaði spilinu frábærlega á miðjunni og bjó til góð færi fyrir samherja sína. Eitt slíkt færi fékk Ásgeir Örn en hann var alltof lengi að skjóta og varnarmaður Selfoss komst fyrir.
Lítið markvert gerðist undir lok fyrri hálfleiks en þó var Einar Ottó Selfyssingur heppinn að sleppa með gult spjald þegar hann fór ansi harkalega inní návígi með olnbogann á undan sér.
Sævar Þór átti svo hálffæri örskömmu áður en Gunnar Jarl flautaði til hálfleiks. Fylkismenn því einu marki yfir í leikhléi og enn var allt opið.
Fylkismenn tóku síðan alfarið við stjórninni í síðari hálfleik og gjörsamlega kafsigldu andstæðinga sína.
Annað markið kom á 57 mínútu þegar Addi skrúfaði boltann fyrir markið og að lokum inn í markið án þess að nokkur annar snerti hann. Þórir Hannesson gerði reyndar afar vel í að trufla Jóhann í markinu þannig að hann náði ekki til boltans. Staðan því orðin 2-0 og það var eins og Selfyssingar virtust gefast upp eftir þetta því nú opnuðust allar flóðgáttir.
Heimamenn gengu á lagið og stungu sér hvað eftir annað á bakvið vörn Selfoss sem var afar illa á verði og hreinlega alls ekki til staðar. Aðalmennirnir voru Addi á miðjunni sem dældi sendingum innfyrir og Jói Þórhalls sem stakk sér innfyrir vörnina trekk í trekk. Í fyrsta skiptið náði Jóhann nafni hans markvörðu að hirða boltann af honum og bjarga en næst þegar þetta gerðist gerði Jói sér lítið fyrir og smellti boltanum í stöng og inn og kom Fylki í 3-0.
Í millitíðinni fékk Selfoss að vísu fínt upphlaup þegar Jón Daði sendi á Sævar sem komst á ágætis skrið en skaut framhjá.
Veislan hélt síðan áfram, enn komst Jói í gegn og lék inn völlinn og átti fínasta skot sem hafnaði í stönginni og aldrei þessu vant var skotið með hægri fæti. Stefán hægri bakvörður sem átti að gæta hans virtist hætta að nenna að elta hann á þessum kafla, auk þess sem varnarleikur alls Selfoss liðsins virtist í lamasessi hvar sem litið var niður.
Jói bjó svo til fjórða markið á 72 mínútu þegar hann slapp óáreittur upp vinstra megin og inn á teig og í stað þess að skjóta sendi hann mjög óeigingjarnt á Ásgeir Örn sem potaði honum í tómt markið.
Aðeins mínútu síðar kom svo enn ein snilldarsendingin frá Adda upp í vinstra hornið þar sem Jói tók á rás og fékk allan tímann í heiminum til að athafna sig og hlaða í skotið. Hann smurði knöttinn beint í „sammann“ fjær og gerði endanlega út um vonir Selfyssinga væru þær ekki horfnar áður.

Okkar menn höfðu ærna ástæðu til að fagna
Nokkrir Selfyssingar sáust ganga hnípnir af velli en þeir sem fóru eftir fimmta markið misstu af besta kafla síns liðs í leiknum. Það gef mér útfrá því að á þessum mínútum sem enn voru eftir tókst Selfyssingum að skora tvívegis og laga þar með stöðuna úr 5-0 í 5-2. Mörkin voru hins vegar í ódýrari kantinum. Það fyrra kom eftir skelfilegt úthlaup Fjalars í markinu, hann misreiknaði aukspyrnu sem kom inn í teiginn og boltinn féll til Arilíusar Marteinssonar sem skoraði.
Arilíus skoraði svo aftur eftir mikinn darraðadans í vítateig Fylkis þremur mínútum fyrir leikslok og hann verður því ekki sakaður um að hafa ekki gert sitt til að hjálpa sínu liði.
Fylkismenn slökuðu aftur á móti fullmikið á klónni og Addi og Ásgeir Örn fóru útaf og það dró heldur tennurnar úr Árbæingum. Áður hafði Alli verið tekin útaf enda eitthvað tæpur kallinn. Leikur okkar fjaraði því aðeins út á lokakaflanum en það skiptir ekki nokkru máli því sigurinn var flottur.
Mögulega var þetta besti leikur okkar manna í sumar enda gekk afar vel að splundra vörn andstæðinganna með árangursríkum hætti. Það er ekki hægt að kvarta yfir því að skora fimm mörk í leik og sérstaklega þegar aðeins eitt var komið eftir fyrri hálfleikinn.
Enn hangir þó yfir okkar sá draugur um að við náum ekki að halda hreinu og því miður gerði hann vart við sig þegar við í stúkunni vorum innilega að vona að okkur tækist að halda þessu í 5-0.
Það er óhætt að segja að það sé hægt að taka margt jákvætt út úr leik liðsins, vörnin var í fínu standi lengst af, miðjan var mjög öflug með Adda í fararbroddi og sóknin var hættuleg með Jóa í fimmta gír.
Með sigrinum tókst okkur að skilja við botnbaráttuna og sjá tækifæri í að mjakast ofar á töfluna. Við erum nú í 7.sæti með 15 stig eftir 11 leiki, tveimur stigum á eftir Fram og þremur á eftir Valsmönnum en bæði lið hafa leikið 12 leiki.

Skúli og Svabbi sáu um að allt færi vel fram
Næsta verkefni okkar er að fara á teppið í Garðabæ og leika gegn Stjörnunni. Stjörnumönnum hefur ekki gengið eins vel á heimavelli og í fyrra og vonandi tekst okkur að ná þremur stigum út úr þeirri viðureign.
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 5 – Hræðilegt úthlaup hans bjó til fyrsta mark Selfoss. Hefði verið hrikalega sterkt fyrir vörnina og Fjalar sjálfan að halda loks hreinu og þetta var leikurinn til þess en því miður tókst það ekki.
Andri Þór Jónsson 7 – Skilaði gríðarlega góðu verki og var afar traustur. Gerði aðeins ein mistök þegar að Sævar slapp innfyrir hann í byrjun en eftir það stóð hann vaktina mjög vel. Hefur spilað sig inn í liðið á skemmtilegan hátt og það er erfitt að taka hann út og sennilega engin ástæða til eftir virkilega flotta leiki að undanförnu.

Andri hefur komið feykilega vel inn í Fylkisliðið
Valur Fannar Gíslason 8 - Feykilega öruggur og rólegur í öllum sínum aðgerðum. Óli er greinilega búinn að finna honum farveg sem miðvörður og mér líst bara ágætlega á það þó að hann hafi verið feykilega mikilvægur sem aftasti miðjumaður síðustu ár.
Þórir Hannesson 8 – Kominn í sína uppáhaldsstöðu sem miðvörður og það gekk allt saman mjög vel. Það var eitt áberandi í leiknum og það er að hann er klárlega hraðasti leikmaðurinn af þeim sem hafa spilað miðvörð í sumar og það sást glögglega þegar hann náði í nokkur skipti að hlaupa sóknarmenn Selfoss uppi. Hefur alla burði til að verða frábær miðvörður og ég vona að hann fái að spila þarna áfram.
Tómas Þorsteinsson 7 – Leysti sitt hlutverk vel og stimplaði sig ágætlega inn með sínum leik. Lenti í litlum vandræðum í vörninni en þó á hann það til að skilja of stórt svæði fyrir aftan sig, það var ekki sérstakt vandamál í þessum leik og Tommi komst vel frá sínu.
Kristján Valdimarsson 7 – Var í smá basli í byrjun sérstaklega með að hemja boltann. Vann sig síðan smátt og smátt inn í leikinn og gerði kannski sérstaklega vel í að halda stöðunni og halda góðri völdun fyrir framan vörnina. Vann góða vinnu og gerði Adda kleift að blómstra fyrir framan sig.
Andrés Már Jóhannesson 9 – Klárlega besti leikur hans í sumar og var hann maður leiksins að mínu viti. Hann var í nýrri stöðu sem eins konar „central midfielder“ fyrir framan Stjána og aðeins fyrir aftan Alla. Hann gjörsamlega tók yfir og stjórnaði miðjunni eins og herforingi með frábærum sendingum og þær voru sko allmargar. Þá átti hann einnig frábær hlaup í svæði og svo lék hann oft Selfyssinga grátt. Skorðaði svo auðvitað beint úr aukaspyrnu skemmtilegt mark og lagði upp bæði mörkin fyrir Jóa með gullsendingum innfyrir.
Albert Brynjar Ingason 7 – Alli gerði ágætlega þær mínútur sem hann var inná. Er að læra betur inná þessa stöðu fyrir aftan fremsta mann en var kannski samt ekki alveg eins áberandi og stundum áður. Kom sér þó nokkrum sinnum í skotfæri og var nálægt því að skora. Var síðan kippt útaf því hann var eitthvað tæpur og ég er sammála Óla Þórðar í því að nýta tækifærið og hvíla þennan feykilega mikilvæga leikmann.
Ásgeir Örn Arnþórsson 7 – Átti fína spretti og var hættulegur og nokkuð kraftmikill sem kom vinstri bakverði Selfoss í bobba. Vatnar stundum herslumuninn hjá honum til að klára hlutina með aðeins markvissari hætti, en það kemur allt með aukinni leikreynslu. Skoraði mark og hefði þess vegna getað verið þátttakandi í fleirum.
Pape Mamadou Faye 8 – Mjög ánægður með hans framlag, hann hljóp mikið og skoraði mikilvægt mark. Þó að hann hafi ekki unnið marga skallabolta þá telur skallamarkið hans mikið enda var það fyrsta mark leiksins. Er að fá mikinn spilatíma og hefur nýtt hann ágætlega uppá síðkastið og sjálfstraustið er að koma sem er mikilvægt fyrir hans frammistöðu.
Jóhann Þórhallsson 9 – Frábær í þessum leik og sérstaklega í seinni hálfleik þegar hann fór hamförum. Stefán hægri bakvörður Selfyssinga var reyndar sennilega versti maður vallarins og sleppti því algjörlega að dekka Jóa á þeim kafla sem Fylkir stútaði leiknum. Það má hins vegar ekki taka neitt af Jóa, hann stakk sér í þetta svæði og innfyrir vörnina sem skilaði tveimur frábærum mörkum, stoðsendingu og skoti í stöng. Er nú kominn með sex deildarmörk og það verður ekki annað sagt en að hann sé að skila góðu verki og betra en margir þorðu að vona fyrir tímabilið. Hann hefði eins og Addi verðskuldað að vera maður leiksins enda held ég að hann hafi fengið þá nafnbót í flestum fjölmiðlum og er hann sannarlega vel að því kominn.

Jói átti sennilega sinn besta leik fyrir Fylki
Friðrik Ingi Þráinsson 6 – Sást afar lítið og var nokkuð týndur í spilinu en gerði aftur á móti engin mistök.
Davíð Þór Ásbjörnsson og Andri Már Hermannsson – Komu inná í þægilegri stöðu og létu lítið að sér kveða en gaman fyrir þá engu að síður að koma inná og fá leik.
Fylkir (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson - Andri Þór Jónsson, Þórir Hannesson, Valur Fannar Gíslason (F), Tómas Þorsteinsson - Kristján Valdimarsson, Andrés Már Jóhannesson (Davíð Þór Ásbjörnsson ’76), Albert Brynjar Ingason (Friðrik Ingi Þráinsson ‘66) - Ásgeir Örn Arnþórsson (Andri Már Hermannson ‘76), Jóhann Þórhallsson, Pape Mamadou Faye.
Ónotaðir varamenn: Andrew Bazi (M), Einar Pétursson, Ingimundur Níels Óskarsson.
Selfoss (4-4-2): Jóhann Ólafur Sigurðsson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Kjartan Sigurðsson, Agnar Bragi Magnússon, Guðmundur Þórarinsson - Jón Daði Böðvarsson, Jón Guðbrandsson, Einar Ottó Antonsson (Ingólfur Þórarinsson‘66), Andri Freyr Björnsson - Davíð Birgisson (Arilíus Marteinsson‘66), Sævar Þór Gíslason (F) (Ingþór Jóhann Guðmundsson‘66).
Ónotaðir varamenn: Elías Örn Einarsson (M), Ingvi Rafn Óskarsson, Ingi Rafn Ingibergsson, Óskar Guðjónsson.
Markskot: Fylkir 14(9) - Selfoss 9(4)
Horn: Fylkir 4 – Selfoss 4
Aðstæður: Veðrið gerist ekki betra, sól og blíða og völlurinn í sínu besta standi.
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson 8 – Einn af albestu dómurum deildarinnar ef ekki sá besti. Hann dæmdi leikinn virkilega vel, þó að ávallt komi upp umdeilanleg atvik sem hægt er að rífast um fram og til baka. Spurning með rautt spjald í stað þess gula á harkalega árás Einars Ottós í fyrri háflleik en annað merkilegt var það nú varla.
Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson
Maður leiksins: Andrés Már Jóhannesson Fylki. Hann fékk að launum gjafabréf fyrir tvo á BK Kjúkling.
Gul spjöld: Tómas Þorsteinsson (’33), Einar Ottó Antonsson (’44), Andrés Már Jóhannesson (’54).
Áhorfendur: 1534
Myndir teknar af hinum frábæra myndavef Einars en slóðin á hann er
http://www.flickr.com/photos/aeinar11/

