STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Frágangur á nokkrum mínútum

skrifað 22-06-2010 (2 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Fylkir 2 - 4 Breiðablik
1-0 Albert Brynjar Ingason ('15)
1-1 Olgeir Sigurgeirsson ('30)
1-2 Alfreð Finnbogson ('56)
1-3 Alfreð Finnbogason ('59)
1-4 Kristinn Steindórsson ('61)
2-4 Ingimundur Níels Óskarsson ('90 +3)

Það gengur allt á afturfótunum hjá Fylki og enn eitt tapið var niðurstaðan síðastliðið sunnudagskvöld. Þá voru það Blikar sem hirtu öll stigin á Fylkisvelli eftir að hafa sigrað 2-4. Fylkismenn hafa nú aðeins náð í 2 stig í síðustu sex deildarleikjum og ástandið dökknar með hverjum leik.

Fylkismenn hófu leikinn af krafti eins og þeir hafa gert í öllum sínum heimaleikjum til þessa. Eftir aðeins hálfa mínútu átti Alli fína sendingu inná Ingimund sem tók gott hlaup innfyrir en náði ekki skoti. Krafturinn var ágætur eins og áður segir í byrjun en fljótlega komust gestirnir úr Kópavogi betur inn í leikinn og fóru að halda boltanum betur og senda stutt á milli sín eins og þeir eru þekktir fyrir.

Alfreð Finnbogason hinn magnaði leikmaður Blika átti svo fyrstu alvöru tilraun leiksins þegar hann átti skot eftir að Einari mistókst að hreinsa nógu langt frá. Fjalar náði að verja skotið og slá boltann í horn.
Alfreð átti svo mun betra færi í næstu sókn þegar hann laumaði sér bakvið sofandi varnarmenn Fylkis og fékk sendingu í gegn en skaut framhjá í færi sem hann hefði sannarlega átt að klára.

Fylkismenn refsuðu Blikum fyrir þetta klúður örskömmu síðar eða á 15 mínútu þegar þeir náðu forystunni. Addi átti þá agætis fyrirgjöf yfir Ingvar í marki Blika sem misreiknaði boltann sem hrökk svo af Gústa og að lokum til Alla sem skoraði úr auðveldasta færi veraldar. Alli heldur betur búinn að reima á sig skotskóna í sumar en þarna var hann að skora sitt sjötta mark í deildinni.

Fylkismenn fengu aukið sjálfstraust við markið og áttu ágætis spretti og spiluðu ágætlega. Pape átti laust skot sem var auðveldlega varið og svo var Einar næstum búinn að pota boltanum rétta leið eftir aukaspyrnu sem sigldi inná teiginn.

Gústi átti svo skemmtilega bakfallsspyrnu rétt yfir eftir að Pape hafi skallað knöttinn fyrir hann. Á þessum kafla voru Fylkismenn beittari í sínum sóknaraðgerðum.

Breiðablik náði hinsvegar að jafna eftir hálftíma leik þegar Kristinn Jónsson komst upp kantinn vinstra megin og sendi út á Olgeir Sigurgeirsson sem skoraði óáreittur frá vítateigslínu. Lipurlega spilað hjá Blikum og vörn Fylkis var þarna grátt leikin.

Baráttan var talsverð og jafnræði með liðunum fram að hálfleik. Alfreð var Fylkisvörninni erfiður ljár í þúfu og hefði getað náð fínu skoti undir lok fyrri hálfleiks en reyndi þess í stað sendingu sem gekk ekki upp.

1-1 í hálfleik og spilamennskan í fyrri hálfleik var alls ekki svo slæm hjá okkar mönnum. Það var hins vegar annað upp á teningnum í þeim síðari og Blikar gengu heldur betur á lagið. Þeir skoruðu þrjú mörk á rúmlega fimm mínútum í síðari hálfleik og kom það fyrsta á 56. mínútu. Þá gaf Kristinn Jónsson fyrir á Alfreð sem skallaði örugglega inn af markteig enda var enginn sem setti hann undir pressu. Alfreð bætti svo við öðru marki þremur mínútum síðar þegar hann slapp innfyrir vörnina, lék á Fjalar og renndi knettinum í tómt markið.

Og Blikar með Alfreð fremstan í flokki voru hvergi hættir. Alfreð tók nú að sér hlutverk sendingamanns og sendi stungusendingu á Olgeir sem hafði möguleika á að skjóta en gerði það ekki. Hann valdi hins vegar betri valkostinn sem var að senda boltann á Kristinn Steindórsson sem var við hlið hans og gat rennt honum þægilega í autt markið. Staðan orðin 1-4 og Breiðablik búið að slátra leiknum á örstuttum kafla.

Þeir náðu þarna hvað eftir annað bókstaflega að rölta í gegnum vörn Fylkis með stungusendingum og góðum hlaupum innfyrir marflata vörnina.
Varnarmenn Fylkis tóku upp á því að spila einhverja furðulega útgáfu af rangstöðutaktík sem misfórst herfilega með fyrrgreindum afleiðingum.

Enn var nóg eftir af leiknum og þó staðan væri orðin vonlaus fyrir heimamenn gáfust þeir ekki upp. Á 63 mínútu fékk Fylkir svo dæmda vítaspyrnu þegar Ólafur Stígsson átti skot í hönd varnarmanns Breiðabliks. Alli fór á punktinn sem endranær en að þessu sinni brást honum bogalistinn. Ingvar Kale sá þá við honum með frábæri markvörslu. Þarna fór gullið tækifæri okkar til að halda smá lífi í leiknum

Fjalar lokaði síðan vel þegar Kristinn Steindórsson komst á auðan sjó og Alli átti að gera betur á hinum endanum þegar hann komst á góðan sprett en negldi í hliðarnetið.

Jóhann Þórhallsson kom inná sem varamaður með smá líf en honum voru mislagðir fætur upp við markið. Þegar um korter var eftir lék hann upp allan kantinn og inn í teig þar sem hann var búinn að koma sér í úrvalsskotstöðu á vinstri fótinn. Fóturinn brást honum verulega illa því skot hans fór himinhátt yfir og góða leið upp í Brekkubæ.

Haukur Baldvinsson skaut svo knettinum sömu leið yfir hitt markið og hefur eflaust tekist að hitta í eldri borgara í heita pottinum í Árbæjarlaug. Það færi kom eftir enn eina sóknina þar sem Blikar löbbuðu tiltöllulega fyrirhafnarlaust í gegn.

Ingimundur náði síðan að laga stöðuna í blálokin þegar hann skoraði með fínu skoti í nærhornið. Hann kom þá á blússandi ferð og náði viðstöðulausu skoti eftir að Blikar höfðu skallað hornspyrnu frá.

Lokatölur 2-4 og verðskuldaður sigur Kópavogsbúa því staðreynd. Fylkisliðið var arfaslakt í síðari hálfleik og auðvitað sérstaklega á þessum kafla þar sem Blikarnir kláruðu leikinn.

Ljóst er að Fylkisliðið er í miklu basli, sérstaklega varnarleikur liðsins og þá er ég ekki bara að tala um öftustu fjóra eða fimm heldur er varnarleikur alls liðsins í lamasessi á löngum köflum og sérstaklega í síðari hálfleik. Við höfum nú fengið á okkur 18 mörk í deildinni sem er helmingi meira en var eftir 8 leiki í fyrra (fyrir þá sem eru ekki sterkir í reikningi vorum við semsagt með 9 mörk fengin á okkur eftir 8 leiki í fyrra). Þetta er auðvitað skelfileg tölfræði en á móti kemur erum við að skora meira en í fyrra. Það munar þó ekki miklu því mörkin okkar í deildinni eru nú orðin 15 í 8 leikjum en voru 14 eftir 8 leiki í fyrra.

Næsti leikur Fylkismanna er bikarleikur á Fylkisvelli gegn Fram næsta fimmtudag kl.19:15 og það er deginum ljósara að Fylkismenn þurfa að spila betur til að eiga möguleika á sigri gegn ógnarsterku liði Fram.

Enginn leikmaður okkar átti neitt sérstaklega góðan dag og frammistaða liðsins í heild var mjög slök. Hér á eftir er mín einkunnargjöf fyrir leikmenn
Fylkis (Ég tel það ekki þjóna tilgangi að útskýra hana nánar).

Fjalar Þorgeirsson 6

Andrés Már Jóhannesson 6

Einar Pétursson 4

Kristján Valdimarsson 4

Þórir Hannesson 5

Valur Fannar Gíslason 5

Ólafur Stígsson 5

Kjartan Ágúst Breiðdal 5

Albert Brynjar Ingason 6

Ingimundur Níels Óskarsson 6

Pape Mamadou Faye 4

Jóhann Þórhallsson 5

Ásgeir Örn Arnþórsson 5

Tómas J. Þorsteinsson –

Fylkir (4-2-3-1): Fjalar Þorgeirsson, Andrés Már Jóhannesson (Ásgeir Örn Arnþórsson 60), Kristján Valdimarsson, Einar Pétursson, Þórir Hannesson (Tómas Joð Þorsteinsson 75) - Valur Fannar Gíslason (F), Ólafur Ingi Stígsson - Ingimundur Níels Óskarsson, Albert Brynjar Ingason, Kjartan Ágúst Breiðdal (Jóhann Þórhallsson 60) - Pape Mamadou Faye

Ónotaðir varamenn: Andrew Bazi (M), Andri Már Hermannsson, Friðrik Ingi Þráinsson, Andri Þór Jónsson.

Breiðablik (4-3-1-2): Ingvar Þór Kale- Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Kári Ársælsson (F), Elfar Freyr Helgason, Kristinn Jónsson - Finnur Orri Margeirsson, Guðmundur Kristjánsson (Andri Rafn Yeoman 77), Jökull Elísabetarson - Olgeir Sigurgeirsson (Haukur Baldvinsson 77) - Kristinn Steindórsson, Alfreð Finnbogason (Guðmundur Pétursson 69).

Ónotaðir Varamenn: Sigmar Ingi Sigurðarson (M), Árni Kristinn Gunnarsson, Rannver Sigurjónsson, Elvar Páll Sigurðsson.

Markskot: Fylkir 9(4) - Breiðablik 12(6)

Horn: Fylkir 3 – Breiðablik 3

Aðstæður: Völlurinn góður og veðrið fínt.

Dómari: Gunnar Jarl Jónsson 9 – Frábær. Mér finnst hann vera einn besti dómari deildarinnar þrátt fyrir að hafa ekki mikla reynslu.

Aðstoðardómarar: Jóhann Gunnar Guðmundsson og Guðmundur Ársæll Guðmundsson

Maður leiksins: Alfreð Finnbogason Breiðablik

Gul spjöld: Kristinn Steindórsson (’49).

Áhorfendur: 1144

Myndir úr leiknum:

Myndir teknar af hinum frábæra myndavef Einars en slóðin á hann er http://www.flickr.com/photos/aeinar11/

eftir TobbZ 04:22 22-06-2010

Já núna verða menn að fara þjappa sér saman, væri flott upp úr þessu að ná að fara hirða einhver stig og sigla lygnan sjó í 6-7 sæti. Mjög óþæginlegt að vera svona nálægt fallsvæðinu. Nú er það bara að taka Grindjánavík í næsta leik og byrja að vinna leiki aftur. Áfram Fylkir. Jeee

eftir Dilbert 08:38 22-06-2010

Eins einhver myndi segja þá er þetta ekkert sniðugt lengur. Fallsæti blasir við ef ekkert verður að gert. Fylkir hefur miklu betri mannskap en þetta. Nú er bara að girða í brók og taka nokkur stig.

Áfram Fylkir, að eilífu...